Þjónustuhópur aldraðra - 58. fundur - 10. september 2008
Mætt voru: Rannveig Þorvaldsdóttir, formaður, Helgi Sigmundsson, Geirþrúður Charlesdóttir, Halldóra Hreinsdóttir og Margrét Geirsdóttir. Auk þess sat fundinn Sædís María Jónatansdóttir, starfsmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Sædís María Jónatansdóttir ritaði fundargerð. Geirþrúður Charlesdóttir vék af fundi kl. 18:10 undir liðnum trúnaðarmál.
Þetta var gert:
1. Bygging hjúkrunarheimilis. 2008-06-0016
Unnin umsögn og þarfagreining vegna fyrirhugaðrar byggingar hjúkrunarheimilis í Ísafjarðarbæ. Greinargerð samþykkt og send bæjarráði Ísafjarðarbæjar.
2. Trúnaðarmál.
Með vísan til 4. tölul. 8. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 vék fulltrúi félags eldri borgara af fundi undir þessum lið.
Einstaklingsmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók þjónustuhóps aldraðra.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:00
Rannveig Þorvaldsdóttir, formaður.
Margrét Geirsdóttir.
Halldóra Hreinsdóttir.
Geirþrúður Charlesdóttir.
Helgi Kr. Sigmundsson.
Sædís María Jónatansdóttir.