Þjónustuhópur aldraðra - 54. fundur - 30. janúar 2008
Mætt voru: Rannveig Þorvaldsdóttir, formaður, Halldóra Hreinsdóttir, Geirþrúður Charlesdóttir, Margrét Geirsdóttir og Helgi Sigmundsson. Auk þess sátu fundinn Grétar Þórðarson og Sædís María Jónatansdóttir, starfsmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Sædís María Jónatansdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Könnun um heimaþjónustu og heimahjúkrun
Farið yfir drög að könnun Þjónustuhóps aldraðra á heimaþjónustu og heimahjúkrun, sem leggja á fyrir á nýju ári.
2. Samþætting heimaþjónustu og heimahjúkrunar
Umræðu frestað.
3. Trúnaðarmál
Með vísan til 4. tölul. 8. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 vék fulltrúi félags eldri borgara af fundi undir þessum lið.
Einstaklingum boðin pláss samkvæmt umræðum á fundinum.
4. Önnur mál
Engin önnur mál.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:00.
Rannveig Þorvaldsdóttir, formaður
Halldóra Hreinsdóttir
Geirþrúður Charlesdóttir
Helgi Sigmundsson
Margrét Geirsdóttir
Sædís María Jónatansdóttir
Grétar Þórðarson