Skipulags- og mannvirkjanefnd - 468. fundur - 21. desember 2016
Dagskrá:
1. |
Sjókvíaeldi í ísafjarðardjúpi - Háafell - 2016020056 |
|
Skipulagsstofnun óskar umsagnar Ísafjarðarbæjar á frummatsskýrslu um allt að 6.800 tonna framleiðslu á laxi í sjókvíum á vegum Háafells, í Ísafjarðardjúpi. Umsögn óskast send Skipulagsstofnun fyrir 9. Janúar 2017 |
||
Afgreiðslu frestað til 11.janúar |
||
|
||
2. |
Deiliskipulag - Birkilundur Furulundur - 2016120035 |
|
Teiknistofan Eik/Verkís leggur fram þrjár breytingartillögur fyrir nýtt deiliskipulag við Furulund og Birkilund. Lagt fram til kynningar og afstöðu nefndarinnar óskað. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram út frá umræðum. |
||
|
||
3. |
Fremri Breiðadalur/Þverárvirkjun - Stofnun Lóðar - 2016120024 |
|
Birkir Þór Guðmundsson, f.h. AB-Fasteigna sækir um stofnun lóðar vegna virkjunar, skv. lóðablaði dags. 29.08.2016 og samningi við Bændur ehf. sem eru landeigendur að Fremri Breiðadal. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila stofnun lóðar í landi Fremri Breiðadals 2 landnr. 212073 skv. uppdrætti dags. 29.08.2016 |
||
|
||
4. |
Selakirkjuból / Kaldárvirkjun - Ósk um stofnun lóðar - 2016120026 |
|
Birkir Þór Guðmundsson, f.h. AB-Fasteigna, sækir um stofnun lóðar í landi Selakirkjubóls vegna Kaldárvirkjunar, skv. lóðablaði dags. 06.09.2016 og samningi við landeigenda að Selakirkjubóli 1-4, Halldór Mikkaelsson. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila stofnun lóðar í landi Selakirkjubós landnúmer 141048 skv. uppdrætti dags. 06.09.2016 |
||
|
||
5. |
Umsókn um Stöðuleyfi - Gunnar Sæmundsson - 2016120003 |
|
Gunnar Sæmundsson sækir um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám. Tilgreindar eru tvær staðsetningar á umsókn, annarsvegar við Wardstún milli Guðmundarbúðar og Aðalstrætis og hinsvegar við Suðurgötu. |
||
Skipulags- mannvirkjanefnd hafnar umsókn um stöðuleyfi en bendir umsækjanda á gámasvæði við Suðurtanga. |
||
|
||
6. |
Umsókn um stöðuleyfi við menntaskólann - 2016120043 |
|
Daníel Jakobson, f.h. Fossavatnsgöngunnar, sækir um stöðuleyfi fyrir smáhýsi við Menntaskólann á Ísafirði skv. umsókn dags. 19.12.2016. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir umsókn um stöðuleyfi við Menntaskólann á Ísafirði, en umsækjanda bent á að sækja þarf um byggingarleyfi fyrir húsið á Seljalandsdal. |
||
|
||
7. |
Seljalandsvegur 70 - Umsókn um byggingarleyfi. - 2016120044 |
|
Árni Þór Árnason sækir um byggingarleyfi vegna útlitsbreytinga og breytinga að innra fyrirkomulagi hússins að Seljalandsvegi 70. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið og málinu því vísað til nefndar. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir byggingaráform og telur að ekki þurfi að grenndarkynna þar sem grenndaráhrif eru óveruleg. |
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:30
Sigurður Jón Hreinsson |
|
Magni Hreinn Jónsson |
Sigurður Mar Óskarsson |
|
Lína Björg Tryggvadóttir |
Ásgerður Þorleifsdóttir |
|
Inga Steinunn Ólafsdóttir |
Brynjar Þór Jónasson |
|
Axel Rodriguez Överby |