Skipulags- og mannvirkjanefnd - 455. fundur - 27. apríl 2016
Dagskrá:
1. |
Deiliskipulag fyrir Suðureyrarmalir, Suðureyri - 2016010045 |
|
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Suðureyrarmalir, Suðureyri, uppdráttur ásamt greinargerð. Deiliskipulagið var auglýst, skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, frá og með 10. mars 2016 til og með 22. apríl 2016. Ein athugasemd barst frá lóðarhafa Freyjugötu 6, sem mótmælir að lóðir hafi verið skipulagðar inn á þinglýsta lóð sem hann hefur á leigu hjá Ísafjarðarbæ. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt að teknu tilliti til innsendrar athugasemdar og lóðir fyrir fiskihjalla sem ná inn á lóð Freyjugötu 6 verði felldar niður. |
||
|
||
2. |
Aðalstræti 26 Þingeyri - Umsókn um byggingarleyfi - 2016040048 |
|
F&S Hópferðabílar ehf sækja um leyfi til þess að breyta gluggum og breyta skipulagi innanhúss, bæta við snyrtingum, skv. uppdráttum frá Tækniþjónustu Vestfjarða dags. 20.02.2016. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að veitt verði byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni og að grenndarkynning falli niður þar sem grenndaráhrif eru óveruleg. |
||
|
||
3. |
Smárateigur 4 - umsókn um byggingarleyfi - 2015110064 |
|
Hlöðver Pálsson sækir um leyfi til að byggja sólstofu við sumarhús skv. uppdráttum frá Tækniþjónustu Vestfjarða dags. 20.11.2015. Húsið er á snjóflóðahættusvæði í flokki C. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Skipulags- og mannvirkjanefnd lagði til við bæjarstjórn að samþykkja umsókn vegna Smárateigs 4 og leyfa breytta notkun úr sumarhúsi í garðplöntustöð. Bæjarstjórn vísaði málinu aftur til skipulags- og mannvirkjanefndar á 378. fundi sínum þann 07.04.2016. |
||
Óskað er eftir að umsækjandi skili áliti ráðherra sbr. 11. gr. laga nr. 49/1997 um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. |
||
|
||
4. |
Sandar Dýrafirði, Umsókn um framkvæmdaleyfi - 2016040054 |
|
Orkubú Vestfjarða sækir um framkvæmdaleyfi fyrir plægingu jarðstrengs á Söndum í Dýrafirði. Jafnframt er sótt um heimild landeiganda, Ísafjarðarbæjar, til að plægja strenginn í jörðu. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi og leyfi landeiganda til að plægja strenginn í jörðu verði veitt. Hafa skal samráð við Minjastofnun ríkisins. |
||
|
||
5. |
Bakkavegur 23 - Land í fóstur - 2016040041 |
|
Kristján Loftur Bjarnason sækir um að taka spildu austanmegin við lóðina Bakkaveg 23 í Hnífsdal í fóstur. Þar hyggst hann rækta kartöflur og planta grenitrjám. Meðfylgjandi er uppdráttur. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að umsækjandi taki svæðið í fóstur en hafnar ósk um að planta grenitrjám á svæðið. Mörk svæðisins verði gerð í samráði við tæknideild Ísafjarðarbæjar. |
||
|
||
6. |
Ísafjarðarhöfn - stöðuleyfi fyrir torgsöluhús - 2016040066 |
|
Kristín Þórunn Helgadóttir sækir um stöðuleyfi fyrir 7,2 fm torgsöluhús við Ísafjarðarhöfn. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir torgsöluhúsinu enda verði húsið staðsett í samráði við hafnarstjóra. Samþykkt var að óska eftir fundi með hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar til að skoða framtíðarskipulag svæðisins með tilliti til ferðaþjónustu. |
||
|
||
7. |
Núpsskóli - uppskipting lóðar - 2016040064 |
|
Plan 21 ehf. f.h. Ríkiseigna sækir um heimild til að skipta lóð Núpsskóla í 6 lóðir skv. meðfylgjandi uppdrætti dags. 08.04.2016. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina fyrir eigendum húsa á svæðinu og landeigendum Núpsjarðarinnar. |
||
|
||
8. |
Oddavegur 13, Flateyri - umsókn um lóð - 2016040068 |
|
Ísfell ehf. sækir um lóðina Oddaveg 13, Flateyri fyrir nótaþvottastöð. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Ísfelli ehf verði úthlutað framangreindri lóð með þeim reglum sem um hana gilda. |
||
|
||
9. |
Efstaból í landi Neðri-Engidals - 2016040070 |
|
Teiknistofan Eik ehf. f.h. Guðmundar Jens Jóhannssonar, sækir um leyfi til að stofna sumarhúsalóð í landi Neðri-Engidals skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina fyrir hagsmunaaðilum. |
||
|
||
10. |
Seljalandsvegur 85 fyrirspurn um stækkun - 2016040046 |
|
Helga Hausner spyr hvort heimilt yrði að byggja við Seljalandsveg 85, skv. meðfylgjandi afstöðumynd. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd fellst á að heimila að sótt verði um byggingarleyfi fyrir fyrirhugaðri viðbyggingu. |
||
|
||
11. |
Silfurtorg 2 - fyrirspurn um viðbyggingu - 2016040071 |
|
Daníel Jakobsson, f.h. Ísbjargar fjárfestingar ehf. spyr hvort heimilt yrði að byggja viðbyggingu við Hótel Ísafjörð, skv. meðfylgjandi afstöðumynd. |
||
Óskað er eftir frekari gögnum. |
||
|
||
12. |
Umsókn um rannsóknarleyfi á vatnasviði Selár í Súgandafirði - 2016040058 |
|
Orkustofnun óskar eftir umsögn um rannsóknarleyfi sbr. bréf dags. 15. apríl 2016. Umsögn þarf að berast fyrir 6. maí nk. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur gögn sem fylgdu umsagnarbeiðni það ófullnægjandi að ekki sé hægt að taka ákvörðun um rannsóknarleyfi á grundvelli þeirra og óskar eftir betri gögnum. |
||
|
||
13. |
Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048 |
|
Lagt fram svar Hafsteins Steinarssonar, verkefnastjóra hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, vegna fyrirspurnar Ísafjarðarbæjar um nauðsyn lagningar þjónustuvegar vegna ofanflóðavarna í Kubba. Bæjarráð telur að lágmarka þurfi raskið og vísar erindinu til skipulags- og mannvirkjanefndar. Jóhann Birkir starfsmaður Verkís kynnir fyrirhugaðar framkvæmdir. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir að fá að sjá sambærilegar hugmyndir um kláf og gerðar hafa verið fyrir vegslóða til að bera saman lausnir. |
||
|
||
Gestir |
||
Jóhann Birkir Helgason - 09:50 |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00
Sigurður Jón Hreinsson |
|
Sigurður Mar Óskarsson |
Lína Björg Tryggvadóttir |
|
Ásgerður Þorleifsdóttir |
Inga Steinunn Ólafsdóttir |
|
Axel Rodriguez Överby |
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir |
|
Brynjar Þór Jónasson |