Skipulags- og mannvirkjanefnd - 453. fundur - 30. mars 2016
Dagskrá:
1. |
Smárateigur 4 - umsókn um byggingarleyfi - 2015110064 |
|
Hlöðver Pálsson sækir um leyfi til að breyta notkun á sumarhúsi í garðplöntustöð og byggja 75 fm gróðurskála við núverandi hús, skv. uppdráttum frá Tækniþjónustu Vestfjarða dags. 20.11. 2015. Húsið er á snjóflóðahættusvæði í flokki C. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Byggingarfulltrúi vísar umsókn til afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar sem samþykkti að grenndarkynna umsóknina. Umsóknin var grenndarkynnt og bárust tvær athugasemdir. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja umsókn vegna Smárateigs 4 og leyfa breytta notkun úr sumarhúsi í garðplöntustöð. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum úr grenndarkynningu. |
||
|
||
2. |
Hlíðarvegur 6- umsókn um byggingarleyfi - 2016020084 |
|
Elfar Reynisson sækir um leyfi til þess að byggja verönd á suð- austurhlið Hlíðarvegar 6. Einnig að setja opnanlegt fag á svefnherbergisglugga og breyta stofuglugga í glugga með svalahurð. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráformin fyrir eigendum fasteignanna Hlíðarvegi 4 og 8 og Túngötu 3 og 5. |
||
|
||
3. |
Sæborg í Aðalvík - stofnun þriggja lóða - 2016010020 |
|
Eigendur Sæborgar í Aðalvík sækja um leyfi til að stofna þrjár nýjar lóðir skv. uppdráttum frá teiknistofunni Eik, dags. 17.12.2015. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðir 1, 2 og 3 verði stofnaðar samkvæmt uppdrætti. Nefndin bendir á að til að reisa nýtt hús á landi Sæborgar, Sæbóls og Garða þurfi að liggja fyrir samþykki allra eigenda jarðanna. |
||
|
||
4. |
Kirkjuból í Bjarnadal - Umsókn um framkvæmdaleyfi - 2016030068 |
|
Guðmundur V. Magnússon sækir um leyfi fyrir heimarafstöð í landi Kirkjubóls, allt að 15kW af uppsettu afli. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að gefið verði út framkvæmdaleyfi fyrir 15kW heimarafstöð í landi Kirkjubóls í Bjarnadal enda sé það í samræmi við ákvæði Aðalskipulags um heimarafstöðvar. |
||
|
||
5. |
Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 11 - 1603016F |
|
Fundargerð 11. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa sem haldinn var 16. mars sl., fundargerðin er í 2. liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:25
Sigurður Jón Hreinsson |
|
Lína Björg Tryggvadóttir |
Ásgerður Þorleifsdóttir |
|
Jón Kristinn Helgason |
Brynjar Þór Jónasson |
|
|