Skipulags- og mannvirkjanefnd - 446. fundur - 25. nóvember 2015
Dagskrá:
1. |
Skrúður á Núpi í Dýrafirði - breyting á deiliskipulagi - 2014110004 |
|
Framkvæmdasjóður Skrúðs sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Skrúð á Núpi í Dýrafirði. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að komið hafi verið til móts við innsendar athugasemdir að svo miklu leyti sem hægt er og leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt. Óskað er eftir að umsókn um byggingarleyfi verði vísað til nefndarinnar. |
||
|
||
2. |
Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar - endurskoðun - 2015100008 |
|
Lögð fram lýsing á endurskoðun á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, ásamt grunni að endurskoðun. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Framkvæmdaleyfi - skíðasvæði Seljalandsdal - 2015110042 |
|
Ísafjarðarbær sækir um leyfi fyrir framkvæmdum á gönguskíðasvæðinu á Seljalandsdal, 1. áfanga, skv. uppdrætti dags. 13.11.2015. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að framkvæmdum, 1. áfangi, verði samþykkt þar sem svæðið er innan gildandi deiliskipulags og þegar raskað. Nefndin leggur jafnframt til að hafin verði endurskoðun á deiliskipulagi fyrir skíðasvæðið í heild. Framkvæmdin verði tilkynnt til umhverfisstofnunar þar sem svæðið er á náttúruminjaskrá. |
||
|
||
4. |
Þverárvirkjun - aðalskipulagsbreyting - 2015110045 |
|
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, Þverárvirkjun, frá AB - Fasteignir ehf. Tillagan er unnin af teiknistofunni EIK ehf dags. 5. nóvember 2015. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 í samræmi við fyrirliggjandi beiðni. Aðalskipulagsbreytingin verði skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
||
|
||
5. |
Kaldárvirkjun - aðalskipulagsbreyting - 2015110046 |
|
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020, Kaldárvirkjun, frá AB - Fasteignir ehf. Tillagan er unnin af teiknistofunni EIK ehf dags. 5. nóvember 2015. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 í samræmi við fyrirliggjandi beiðni. Aðalskipulagsbreytingin verði skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
||
|
||
6. |
Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048 |
|
Erindi frá Gauta Geirssyni dags. 24.03.2015 þar sem lagt er til að Ísafjarðarbær í samstarfi við Ofanflóðasjóð endurskoði varnir í Kubba frá grunni með tilliti til greinargerðar sem fylgir erindinu. |
||
Ljóst er af minnisblaði Veðurstofu Íslands og framvindu verksins að erfitt og kostnaðarsamt yrði að breyta þeim áætlunum sem gerðar voru og þegar hafa verið framkvæmdar að hluta til með snjóflóðavarnargarði. Samþykki Ofanflóðasjóðs um að ljúka þeim framkvæmdum liggur þegar fyrir. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45
Sigurður Jón Hreinsson |
|
Erla Rún Sigurjónsdóttir |
Magni Hreinn Jónsson |
|
Ásgerður Þorleifsdóttir |
Inga Steinunn Ólafsdóttir |
|
Ralf Trylla |
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir |
|
Brynjar Þór Jónasson |