Skipulags- og mannvirkjanefnd - 441. fundur - 9. september 2015
Dagskrá:
1. |
Dagverðardalur 3 - byggingarleyfi - 2012060005 |
|
Einar Ólafsson sækir um byggingarleyfi fyrir hönd Framfarar, styrktarsjóðs. Framkvæmdir voru stöðvaðar þar sem deiliskipulag Dagverðardals reyndist ekki í gildi og þarf því að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn. |
||
Í ljósi viðræðna við hlutaðeigandi felur skipulags- og mannvirkjanefnd skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða málið með bæjarlögmanni. |
||
|
||
2. |
Ljósleiðari - Botn og Birkihlíð Súgandafirði - Umsókn um skipulag - 2015080020 |
|
Snerpa ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu fjarskiptastrengja í landi Botns og Birkihlíðar skv. uppdrætti frá Snerpu dags. 27.07.2015. |
||
Í ljósi gagna sem fylgdu umsókn telur nefndin að um óverulega framkvæmd sé að ræða sem sé ekki framkvæmdaleyfisskyld. |
||
|
||
3. |
Ljósleiðari - Innrihluti Skutulsfjarðar og Engidalur - Umsókn um framkvæmdaleyfi - 2015080018 |
|
Snerpa ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir plægingu ljósleiðara í innri hluta Skutulsfjarðar og Engidal skv. uppdrætti frá Orkubúi Vestfjarða dags. 07.07.2015. |
||
Í ljósi gagna sem fylgdu umsókn telur nefndin að um óverulega framkvæmd sé að ræða sem sé ekki framkvæmdaleyfisskyld. |
||
|
||
4. |
Umsókn um byggingarleyfi - 2015060072 |
|
Elías Guðmundsson sækir um leyfi til að endurbyggja og byggja við Brekkustíg 7, Suðureyri. |
||
Í ljósi framlagðra gagna samþykkir skipulags- og mannvirkjanefnd að byggingarleyfi verði gefið út. |
||
|
||
5. |
Skrúður á Núpi í Dýrafirði - breyting á deiliskipulagi - 2014110004 |
|
Framkvæmdasjóður Skrúðs sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Skrúð á Núpi í Dýrafirði. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur undir innkomnar athugasmedir og felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjendur. |
||
|
||
6. |
Hafnarstræti 29, Flateyri - umsókn um lóð - 2015080059 |
|
Sigurbjörn Svavarsson sækir um lóðina Hafnarstræti 29, Flateyri skv. gildandi deiliskipulagi. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðarumsóknin verði samþykkt. |
||
|
||
7. |
Svæði við Skógarbraut 2, umsókn um að taka svæði í fóstur. - 2015080022 |
|
Ólafur Sigurðsson óskar eftir, f.h. húsfélagsins Skógarbraut 2 og 2a, að taka í fóstur opið svæði skv. meðfylgjandi uppdrætti. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir umsóknina og felur tæknideild að ganga frá samningi í samræmi við reglur um afnotasamning. |
||
|
||
8. |
Sjávargata 16, umsókn um að taka lóð í fóstur - 2015080001 |
|
Wouter Van Hoeymissen, sækir um að taka lóðina Sjávargata 16, Þingeyri í fóstur. |
||
Deiliskipulag fyrir svæðið er í vinnslu og lóðir verða auglýstar þegar það hefur tekið gildi. Umsókn hafnað. |
||
|
||
9. |
Skólavegur 1, Hnífsdal - hellulögn - 2015080066 |
|
Inga María Guðmundsdóttir óskar eftir leyfi til að helluleggja bílastæði, lóð og hluta af gangstétt framan við Skólaveg 1, Hnífsdal. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir hellulögn sem hluta af gangstétt. |
||
|
||
10. |
Hlíðarvegur 36 - lóðarleigusamningur - 2015070001 |
|
Guðbjörg Halla Magnadóttir sækir um stækkun lóðarinnar Hlíðarvegur 36 skv. meðfylgjandi uppdrætti. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóð Hlíðarvegs 36 verði stækkuð að nýjum lóðamörkum lóðarinnar Hlíðarvegur 34 og sett verði kvöð um aðkomu lóðarhafa Hlíðarvegs 38, 40, 42, 44 og 46 að baklóðum. Að öðru leyti verði lóðarmörk skv. lóðablaði dags. 31. maí 2005. |
||
|
||
11. |
Kalkþörunganám í Ísafjarðardjúpi - umsagnarbeiðni - 2015080041 |
|
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um tillögu að matsáætlun vegna kalkþörunganáms í Ísafjarðardjúpi, skv. 2. mgr. 8. gr laga nr. 106/2000 og 15. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum. Bréf dags. 11.08.2015, móttekið 17. ágúst 2015. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemdir við tillögu að matsáætlun en leggur áherslu á að áhrif efnistöku og vinnslu efnisins verði metin heildstætt. |
||
|
||
12. |
Staða skipulags- og byggingarmála - 2015090002 |
|
Erindi skipulags- og byggingarfulltrúa um stöðu skipulags- og byggingarmála. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur áherslu á að umhverfis- og eignasvið hafi mannskap til að sinna þeim verkefnum sem undir sviðið heyra. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45
Sigurður Jón Hreinsson |
|
Erla Rún Sigurjónsdóttir |
Magni Hreinn Jónsson |
|
Sigurður Mar Óskarsson |
Ásgerður Þorleifsdóttir |
|
Inga Steinunn Ólafsdóttir |
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir |
|
Brynjar Þór Jónasson |