Skipulags- og mannvirkjanefnd - 434. fundur - 20. maí 2015
Dagskrá:
1. |
Leyfi til leitar og borunar eftir vatni fremst í Botnsdal - 2014030045 |
|
Dalsorka ehf sækir um framkvæmdaleyfi til að bora eftir heitu vatni í Botni í Súgandafirði. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að veitt verði leyfi fyrir borun á umræddum prufuholum með þeim skilyrðum sem fram koma í umsögnum um málið. |
||
|
||
2. |
Neðri Tunga 1 - umsókn um stofnun fasteigna í fasteignaskrá - 2015030089 |
|
Ragnheiður Hákonardóttir sækir um leyfi til að skipta lóðinni Neðri Tunga 1 í þrjá sérafnotahluti. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði að lóðinni verði skipt í þrjá sérafnotahluti. |
||
|
||
3. |
Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048 |
|
Erindi frá Gauta Geirssyni dags. 24.03.2015 þar sem lagt er til að Ísafjarðarbær í samstarfi við Ofanflóðasjóð endurskoði varnir í Kubba frá grunni með tilliti til greinargerðar sem fylgir erindinu. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir að Verkís endurskoði framlögð gögn með tilliti til þess hvort hægt verði að koma fyrir lausn sem hafi minni umhverfisáhrif og viðhald. |
||
|
||
4. |
Skrúður á Núpi í Dýrafirði - breyting á deiliskipulagi - 2014110004 |
|
Framkvæmdasjóður Skrúðs sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Skrúð á Núpi í Dýrafirði. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að um sé að ræða verulega breytingu á deiliskipulagi og leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. |
||
|
||
5. |
Móar, Hesteyri - endurbygging - 2014120061 |
|
Marðareyri sf sækir um leyfi til að endurbyggja húsið að Móum á Hesteyri skv. uppdráttum frá Verkís dags. 01.04.2015 . |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir að veita leyfi fyrir endurbyggingunni. |
||
|
||
6. |
Hafraholt 48 - Umsókn um byggingarleyfi - 2015040044 |
|
Einar Valur Kristjánsson spyr hvort heimilað yrði að lengja bílgeymslu um 5 m skv. meðfylgjandi uppdrætti. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn lóðarhöfum Hafraholts 42, 40 og 46. |
||
|
||
7. |
Brekkugata 54, Þingeyri - fyrirpurn um byggingarleyfi - 2015040043 |
|
Viðar Magnússon spyr hvort heimilað yrði að gera tvær íbúðir á neðri hæð í einbýlishúsinu að Brekkugötu 54 á Þingeyri skv. meðfylgjandi teikningum. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í erindið og og samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn lóðarhöfum Brekkugötu 52 og 56. |
||
|
||
8. |
Hlíðarvegur 34, Ísafirði - Umsókn um stækkun lóðar - 2015040042 |
|
Jón Rafn Oddsson sækir um stækkun lóðar skv. meðfylgjandi uppdrætti. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur byggingarfulltrúa að gera nýtt lóðablað af stækkaðri lóð, skv. uppdrætti, til afgreiðslu í bæjarstjórn. |
||
|
||
9. |
Aðalgata, Suðureyri, akstursstefna - 2014090031 |
|
Erindi bæjarráðs frá 855. fundi um að skipulags- og mannvirkjanefnd skoði kosti þess og galla að breyta Aðalgötu á Suðureyri í tvístefnugötu. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt i tillöguna. Nefndin óskar eftir umsögn hverfisráðs Súgandafjarðar. |
||
|
||
10. |
Rekstrarleyfi til laxeldis í Arnarfirði - 2011020012 |
|
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 10. apríl 2015, móttekið 21. apríl 2015, þar sem óskað er eftir umsögn Ísafjarðarbæjar um frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum 7.000 tonna aukaframleiðslu Arnarlax ehf. á laxi í Arnarfirði. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar telur afleitt að enga stefnumörkun stjórnvalda er að finna um sjókvíaeldi á Vestfjörðum, fremur en annars staðar. Sérstaklega er þetta slæmt í ljósi þess að sveitarfélögin hafa ekki skipulagsvald yfir aðliggjandi strandsvæðum, fjörðum og flóum. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30
Sigurður Jón Hreinsson |
|
Erla Rún Sigurjónsdóttir |
Magni Hreinn Jónsson |
|
Sigurður Mar Óskarsson |
Inga Steinunn Ólafsdóttir |
|
Ralf Trylla |
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir |
|
Brynjar Þór Jónasson |