Skipulags- og mannvirkjanefnd - 426. fundur - 28. janúar 2015
Dagskrá:
1. |
2014010001 - Landsskipulagsstefna 2015 - 2026, Kynningar- og samráðsfundur um greiningu valkosta og umhverfismat. |
|
Lagt fram að nýju bréf frá Skipulagsstofnun dags. 19. desember 2014 þar sem Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd telur mikilvægt að landskipulagsstefna skerði ekki skipulagsvald sveitarfélaganna. Jafnframt áréttar nefndin að hún telur mikilvægt að sveitarfélög öðlist skipulagsvald yfir strandsvæðum sínum út að einni sjómílu frá grunnlínupunktum. |
||
|
||
2. |
2014090004 - Deiliskipulag - Mjósund |
|
Frestað frá síðasta fundi. Teknar fyrir fimm tillögur af deiliskipulaginu "Mjósund", Ísafirði frá Teiknistofunni Eik. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við húsbyggingasjóð Þroskahjálpar um lausnir sem koma til móts við þarfir þeirra. |
||
|
||
3. |
2014030045 - Leyfi til leitar og borunar eftir vatni fremst í Botnsdal |
|
Frestað frá síðasta fundi. Lögð fram greinargerð Jóns Reynis Sigurvinssonar, dags. í janúar 2015 um áhrif grunnvatnstöku úr borholum í Botnsdal á vatnsverndarsvæði Skutulsfjarðar. |
||
Í ljósi niðurstöðu framlagðrar greinargerðar og líkleg áhrif á vatnsveitu Ísafjarðar getur nefndinn ekki fallist á borun innan vatnsverndarsvæðisins. Óskað er eftir umsögn Umhverfisstofnunar vegna borholu utan vatnsverndarsvæðis þar sem svæðið er á náttúruuminjaskrá. |
||
|
||
4. |
2014090019 - Látrar í Aðalvík - ósk um niðurrif |
|
Tekið fyrir að nýju ósk um niðurrif á húsi nr. 03 0101 á Látrum (fastanúmer 226-4555) í Aðalvík, Sléttuhreppi í Ísafjarðarsýslu. Bréf frá Lagastoð dags. 20. janúar 2015 ásamt tveimur fylgiskjölum lagt fram. |
||
Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 27.01.2015 og henni falið að svara erindinu í samræmi við það í samráði við bæjarlögmann. |
||
|
||
5. |
2015010089 - Umsókn um lóð - Hrafnatangi 4 og 6 |
|
Tekin fyrir umsókn dags. 15. janúar 2015 frá Köldukinn ehf þar sem sótt er um lóðirnar Hrafnatangi 4 og 6. |
||
Deiliskipulag svæðisins er á lokastigi og munu lóðirnar verða auglýstar þegar deiliskipulagið hefur tekið gildi. |
||
|
||
6. |
2014090031 - Aðalgata, Suðureyri, akstursstefna |
|
Aftur á dagskrá bréf Hverfisráðs Súgandafjarðar dags. 7. janúar 2015 vegna fyrirhugaðra breytinga á akstursstefnu á Aðalgötu, Suðureyri. |
||
Greinargerð formanns nefnarinnar lögð fram. Formanni falið að kynna Hverfisráði Súgandafjarðar síðustu bókun nefndarinnar og hugmyndir. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:50
Sigurður Jón Hreinsson |
|
Erla Rún Sigurjónsdóttir |
Magni Hreinn Jónsson |
|
Sigurður Mar Óskarsson |
Ingólfur Hallgrímur Þorleifsson |
|
Jóhann Birkir Helgason |
Ralf Trylla |
|
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir |
|
|
|