Skipulags- og mannvirkjanefnd - 425. fundur - 14. janúar 2015
Dagskrá:
1. |
2014120061 - Móar, Hesteyri - endurbygging |
|
Lögð fram umsókn frá Marðareyri sf. um leyfi til endurbyggingar á húsinu Móum á Hesteyri, dags. 15. desember 2014. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd óskar eftir umsögn Umhverfisstofnunar á erindinu. |
||
|
||
2. |
2014010001 - Landsskipulagsstefna 2015 - 2026, Kynningar- og samráðsfundur um greiningu valkosta og umhverfismat. |
|
Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun dags. 19. desember 2014 þar sem Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
2014100013 - Virkjun bæjarlæksins á Hesteyri |
|
Tekið fyrir að nýju erindi frá Hrólfi Vagnssyni um leyfi til að virkja bæjarlækinn á Hesteyri. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir umsækjanda á að heimild landeigenda þarf að liggja fyrir áður en framkvæmdaleyfi er gefið út. |
||
|
||
4. |
2015010015 - Vegagerðin - starfsleyfi fyrir rekstur bikbirgðastöðvar á Ísafirði |
|
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar dags. 30. desember 2014 ásamt tillögu að starfsleyfi fyrir bikbirgðastöð Vegagerðarinnar á Mávagarði. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
2011020059 - Deiliskipulag á Suðurtanga, Ísafirði |
|
Auglýsinga og athugasemdafrestur vegna deiliskipulags á Suðurtanga er lokið. Ein athugasemd barst við tillöguna frá Jóni Sigurpálssyni dags. 27. ágúst 2014 |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir á að athugasemdir frá Jóni eins og fram kemur í bréfinu eiga að litlu leyti við deiliskipulagið sjálft. Varðandi svæði fyrir skemmtigarð fyrir Byggðasafnið þá gerir Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar ráð fyrir að Byggðasafnið og svæðið að skipasmíðastöð verði svæði fyrir opinberar stofnanir (samfélagsþjónustu skv. nýrri skipulagsreglugerð). Til að koma skemmtigarði inn á deiliskipulagið þyrfti að breyta aðalskipulagi af svæðinu og gera ráð fyrir að svæðið yrði afmarkað sem afþreyingar- og ferðamannasvæði. Nefndin fellst ekki á þennan hluta athugasemdarinnar. Nefndin tekur undir athugasemd Jóns um að gera ráð fyrir bryggju fyrir safnasvæðið á skipulagsuppdrætti. |
||
|
||
6. |
2009120009 - Þingeyri - deiliskipulag |
|
Auglýsinga- og athugasemdafresti vegna deiliskipulags fyrir miðbæ og hafnarsvæði á Þingeyri er lokið. |
||
Varðandi athugasemd Pálmars og Þóris verður kvöð um aðgengi sett inn í deiliskipulag. |
||
|
||
7. |
2014090031 - Aðalgata, Suðureyri, akstursstefna |
|
Tekið fyrir bréf Hverfisráðs Súgandafjarðar dags. 7. janúar 2015 vegna fyrirhugaðra breytinga á akstursstefnu á Aðalgötu, Suðureyri. |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd bendir Hverfisráði Súgandafjarðar á að málið hafi komið upp þar sem ekki fékkst lengur leyfi til að aka stórum bílum á móti einstefnu. |
||
|
||
8. |
2015010016 - Ársskýrsla 2014 - Slökkvilið Ísafjarðarbæjar |
|
Lögð fram ársskýrsla slökkviliðs Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2014. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
9. |
2014030045 - Leyfi til leitar og borunar eftir vatni fremst í Botnsdal |
|
Lögð fram greinargerð Jóns Reynis Sigurvinssonar, dags. í janúar 2015 um áhrif grunnvatnstöku úr borholum í Botnsdal á vatnsverndarsvæði Skutulsfjarðar. |
||
Afgreiðslu frestað til næsta fundar. |
||
|
||
10. |
2014090004 - Deiliskipulag - Mjósund |
|
Teknar fyrir fimm tillögur af deiliskipulaginu "Mjósund", Ísafirði frá Teiknistofunni Eik. |
||
Afgreiðslu frestað til næsta fundar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45
Erla Rún Sigurjónsdóttir |
|
Magni Hreinn Jónsson |
Sigurður Mar Óskarsson |
|
Ásgerður Þorleifsdóttir |
Inga María Guðmundsdóttir |
|
Jóhann Birkir Helgason |
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir |
|
|