Skipulags- og mannvirkjanefnd - 248. fundur - 3. janúar 2007
Mættir: Svanlaug Guðnadóttir, formaður, Sigurður Mar Óskarsson, varaformaður, Jóna Símonía Bjarnadóttir, Björn Davíðsson, Albertína Elíasdóttir og Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs.
Fundarritari var Jóhann B. Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs.
1. Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar (2006-03-0038).
Farið yfir markmið og stefnumótun í skipulagsmálum unnið af Teiknistofunni Eik. Umhverfisnefnd óskar eftir markmiðum nefnda Ísafjarðarbæjar í neðangreindum málaflokkum eigi síðar en mánudaginn 5. febrúar 2007.
Náttúruvá - Almannavarnarnefnd / Hafnarstjórn
Menningarminjar - Menningarmálanefnd
Mengunarvarnir - Hafnarstjórn / Staðardagskrárnefnd
Náttúruvernd - Staðardagskránefnd
Atvinna - Atvinnumálanefnd / Landbúnaðarnefnd
Ferðaþjónusta - Atvinnumálanefnd / Hafnarstjórn
Sjávarútvegur - Atvinnumálanefnd / Hafnarstjórn
Landbúnaður - Landbúnaðarnefnd
Sjór - Hafnarstjórn
Gönguleiðir og reiðleiðir - Atvinnumálanefnd
Veitur og sorp - Staðardagskrárnefnd
Félags- og velferðarmál - Fræðslunefnd / Félagsmálanefnd / Menningarmála-nefnd / Staðardagskrárnefnd
Opin svæði og útivist - Atvinnumálanefnd / Íþrótta- og tómstundanefnd / Fræðslunefnd / Stjórn skíðasvæðis
Fleira ekki gert, fundargerð undirrituð. Fundi slitið kl. 9:05
Svanlaug Guðnadóttir, formaður.
Sigurður Mar Óskarsson, varaformaður.
Albertína Elíasdóttir.
Björn Davíðsson.
Jóna Símonía Bjarnadóttir.
Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs.