Nefnd um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga - 6. fundur - 27. september 2010
Mættar voru: Guðfinna Hreiðarsdóttir, formaður, Anna Valgerður Einarsdóttir, Margrét Geirsdóttir, Harpa Stefánsdóttir, Sóley Guðmundsdóttir, sem mætti kl. 13:00 og Auður Finnbogadóttir. Harpa Stefánsdóttir fór af fundi kl. 12:20. Auður Finnbogadóttir fór af fundi kl. 14:15.
Margrét Geirsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Vinnufundur
Starfshópurinn hélt áfram vinnu sinni við undirbúning að yfirfærslu málefna fatlaðra til Ísafjarðarbæjar. Fjallað um nýtt skipurit vegna félagsþjónustunnar, húsnæðismál, starfsmannamál, samstarf við sveitarfélögin í kring, samráð við fulltrúa stéttarfélaga og trúnaðarmann SFR. Fundi verður framhaldið á morgun, þriðjudaginn 28. september 2010, kl. 08:30.
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14:45.
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, formaður.
Anna Valgerður Einarsdóttir.
Margrét Geirsdóttir.
Harpa Stefánsdóttir.
Sóley Guðmundsdóttir.
Auður Finnbogadóttir.