Menningarmálanefnd - 123. fundur - 29. maí 2006
Þetta var gert.
1. Undirbúningur dagskrár fyrir 17. júní hátíðahöld 2006.
Fram haldið undirbúningi að dagskrá fyrir hátíðahöldin þann 17. júní n.k. í Ísafjarðarbæ. Til fundar við menningarmálanefnd er mættur Elfar Logi Hannesson, sem mun sjá um og skipuleggja hluta hátíðarhaldanna.
Ákveðið var að hittast á óformlegum fundi á þriðjudag eða miðvikudag í næstu viku.
2. Umsóknir um styrki menningarmálanefndar 2006. 2006-02-0120.
Tekin fyrir að nýju styrkumsókn Tinnu Þorsteinsdóttur vegna verkefnisins ,,Við Djúpið?, en frestað var á 122. fundi nefndarinnar að taka afstöðu til hennar.
Menningarmálanefnd leggur til við bæjarráð að verkefnið ,,Við Djúpið? verði styrkt um sem svarar kr. 150.000.-, er samsvarar kostnaði vegna móttöku, gistingar og fæði, samkvæmt fjárhagsáætlun umsækjanda. Styrkur færist að hluta á fjárhagsáætlun menningarmálanefndar og að hluta á 21-81-995-1.
Jafnframt er nú lögð fram umsókn frá sjómannadagsráði á Þingeyri, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 50.000.- vegna hátíðahalda á sjómannadaginn þann 11. júní n.k.
Menningarmálanefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 50.000.-
123. fundur menningarmálanefndar er síðasti formlegi fundur nefndarinnar á þessu kjörtímabili. Inga Ólafsdóttir, formaður, þakkaði meðstjórnendum sínum, sem og bæjarritara fyrir samstarfið á líðandi kjörtímabili. Aðrir nefndarmenn og bæjarritari þökkuðu Ingu og samstarfið.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 16:45.
Þorleifur Pálsson, ritari.
Inga Ólafsdóttir, formaður.
Sigurborg Þorkelsdóttir.
Hansína Einarsdóttir.