Íþrótta-og tómstundanefnd - 95. fundur - 11. júní 2008
Mætt voru: Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður, Þórdís J. Jakobsdóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir, Stella Hjaltadóttir. Ingi Þór Ágústsson mætti fyrir HSV og Margrét Halldórsdóttir íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar sat fundinn. Ingólfur Þorleifsson boðaði forföll og Helga Margrét Marzellíusardóttir mætti í hans stað.
Fundargerð ritaði Margrét Halldórsdóttir.
Þetta var gert:
1. Lögð fram drög að verkefnasamningi milli Ísafjarðarbæjar og HSV. 2008-06-0027
Lögð fram drög að verkefnasamningi milli Ísafjarðarbæjar og HSV, þar sem gert er ráð fyrir að Ísafjarðarbær feli HSV, að taka að sér skilgreind verkefni á vegum bæjarins.
Nefndin fagnar samningnum og leggur til að hann verði samþykktur með eftirfarandi breytingu: síðasta málsgrein 1. gr. verði færð aftast í 3. gr.
2. Lagður fram samstarfssamningur um smíðavöll á Ísafirði. 2008-06-0026.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti samning um smíðavöll sem Ísfjarðarbær, Vestfirskir verktakar og Eimskip kom að.
Nefndin lýsir ánægju sinni með að opnaður verði smíðavöllur á Ísafirði.
3. Önnur mál
Íþrótta- og tómstundafulltrú kynnti stöðu mála í félagsmiðstöðvarmálum Suðureyrar og Þingeyrar. Gerð var grein fyrir þeirri hugmyndavinnu sem er í gangi varðandi menningarhús.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið klukkan kl. 9:15.
Guðný Stefanía Stefánsdóttir.
Þórdís J. Jakobsdóttir.
Helga Margrét Marzellíusardóttir.
Margrét Halldórsdóttir.
Rannveig Þorvaldsdóttir.
Stella Hjaltadóttir.
Margrét Geirsdóttir.