Íþrótta - 159. fundur - 2. september 2015
Dagskrá:
1. |
Verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar - 2014030027 |
|
Lagður fram verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar. |
||
Nefndin felur formanni að ræða við bæjarstjóra um framtíðalausn lyftingaraðstöðu íþróttafélaga. |
||
|
||
2. |
Hreyfivika - 2015080085 |
|
Lagður fram tölvupóstur frá UMFÍ dagsettur 21. ágúst 2015 þar sem evrópsk hreyfivika er kynnt. Hér á landi er það UMFÍ sem stendur fyrir hreyfiviku dagana 21.-27.september nk. |
||
Nefndin fagnar framtakinu og leggur til að Ísafjarðarbær komi á sama hátt að verkefninu og að sem flestum verið gert kleift að sækja atburði sem eru á dagskrá hreyfivikunnar. Undirbúningur og skipulag er í höndum HSV. |
||
|
||
3. |
Listamannaþing 2015 - boð - 2015050021 |
|
Lagt er fram bréf Félags vestfirskra listamanna, sem barst 22. júní sl., þar sem Félag vestfirskra listamanna hvetur Ísafjarðarbæ til að halda barnamenningarhátíð á Vestfjörðum. Málið var áður á dagskrá í bæjarráði sem vísaði erindinu til atvinnu- og menningamálanefndar, lagt fyrir nefndina til umsagnar. |
||
Nefndin fagnar öllu frumkæði að öflugu lista- og menningarstarfi fyri börn. |
||
|
||
4. |
Sjávarútvegsskóli Vestfjarða - 2015080086 |
|
Lögð fram bréf frá Antoni Helga Guðjónssyni og Gauta Geirssyni annarsvegar og Smára Haraldssyni hinsvegar, dagsettum 24.8. s.l., þar sem rætt er um sjávarútvegsskóla í samstarfi við Ísafjarðarbæ og þá vinnuskólann sérstaklega. |
||
Nefndin tekur jákvætt í hugmyndina. |
||
|
5. Önnur mál:
Formaður leggur til að fastur fundartími nefndarinnar verði fyrsta miðvikudag í mánuði.
Guðjón Þorsteinsson spurði hvort búið væri að gera áætlanir varðandi fótboltavellina á Torfnesi og hvað gert verði þar.
Nefndin kallar eftir nýtingatölum íþróttamannvirkja síðustu tvö ár.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15
Benedikt Bjarnason |
|
Þórir Karlsson |
Guðrún Margrét Karlsdóttir |
|
Þórdís Jónsdóttir |
Guðjón Már Þorsteinsson |
|
Margrét Halldórsdóttir |