Fræðslunefnd - 346. fundur - 3. júlí 2014
Dagskrá:
1. |
2012110034 - Endurskoðun erindisbréfa nefnda |
|
Lagt fram erindisbréf fyrir fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar. |
||
Erindisbréf fyrir fræðslunefnd lagt fram til kynningar. Fræðslunefnd samþykkir að Sigurlína Jónasdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi sé ritari nefndarinnar og að fundir fræðslunefndar verði 1. og 3. fimmtudag í mánuði kl. 8-10. |
||
|
||
2. |
2014030064 - Verkefnalisti fræðslunefndar |
|
Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar |
||
Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og eru í vinnslu. |
||
|
||
3. |
2014030064 - Verkefnalisti fræðslunefndar |
|
Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri Skóla- og tómstundasvið kynnti skólasviðið fyrir nýrri fræðslunefnd. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
2014060088 - Starfsáætlanir 2014-2015 |
|
Lagðar fram starfsáætlanir leikskólanna Sólborgar, Eyrarskjóls, Tjarnarbæjar, Laufáss og Grænagarðs fyrir skólaárið 2014-2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
2014050104 - Ósk um að hafa lokað 24. og 31. des. |
|
Lagt fram bréf, dagsett 28. maí 2014, frá leikskólastjórum Sólborgar, Laufáss, Tjarnarbæjar og Grænagarðs þar sem óskað er eftir að fá að hafa leikskólana lokaða á aðfangadag og gamlársdag. Leikskóli Hjallastefnunnar, Eyrarskjól, er lokaður þessa daga. Einnig lagðar fram ályktanir frá foreldraráðum Laufáss og Sólborgar, ekki komu ályktanir frá öðrum foreldraráðum. Málið var áður á dagskrá á 345. fundi fræðslunefndar. |
||
Fræðslunefnd samþykkir að leikskólarnir loki 24. og 31. desember og beinir því til bæjarráðs að skoða hvort að gefinn verði afsláttur í samræmi við aukalokun. |
||
|
||
6. |
2013090015 - Skýrslur og áætlanir skóla, skólaárið 2013-2014 |
|
Lagðar fram ársskýrslur Grunnskólans á Ísafirði, Grunnskólans á Suðureyri og Grunnskóla Önundarfjarðar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
2013090015 - Skýrslur og áætlanir skóla, skólaárið 2013-2014 |
|
Lögð fram sjálfsmatsskýrsla Grunnskólans á Ísafirði. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
2014020049 - Mennta- og menningarmálaráðuneyti - Ýmis erindi 2014 |
|
Lögð er fram Hvítbók um umbætur í menntamálum, gefin út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu í júní 2014. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
9. |
2010080057 - Stefnumótun í atvinnumálum Ísafjarðarbæjar. |
|
Lagt fram minnisblað frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, þar sem kemur fram hvað er á ábyrgð fræðslunefndar í tengslum við atvinnumálastefnu Ísafjarðarbæjar. Málið var áður á dagskrá á 345. fundi fræðslunefndar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
10. |
2014060005 - Ósk um aukinn fjölda kennslustunda veturinn 2014-2015 |
|
Lagt fram bréf, dagsett 2. júní 2014, frá Stefaníu Ásmundsdóttur, skólastjóra Grunnskólans á Þingeyri, þar sem óskað er eftir frekari kennslu úthlutunartímum skólaárið 2014-2015, til þess að sinna nýjum nemendum enn frekar. Óskað er eftir að minnsta kosti 4 aukatímum. Málið var áður á dagskrá á 345. fundi fræðslunefndar. |
||
Fræðslunefnd samþykkir 4 auka kennslu úthlutunartíma. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09.35
Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir |
|
Bragi Rúnar Axelsson |
Gunnhildur Björk Elíasdóttir |
|
Martha Kristín Pálmadóttir |
Jónas Þór Birgisson |
|
Sigurlína Jónasdóttir |
Margrét Halldórsdóttir |
|
|