Fræðslunefnd - 332. fundur - 15. maí 2013
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir leikskólamál: Svava Rán Valgeirsdóttir,fulltrúi leikskólastjóra og Sif Huld Albertsdóttir, fulltrúi foreldra.
Mættir áheyrnarfulltrúar fyrir grunnskólamál: Snorri Sturluson fulltrúi skólastjóra, Edda Graichen og Elfar Reynisson, fulltrúar kennara og Gunnhildur Björk Elíasdóttir, fulltrúi foreldra.
Dagskrá:
1. |
2013050008 - Skóladagatöl 2013-2014. |
|
Lögð fram skóladagatöl fyrir skólaárið 2013-2014 fyrir leikskólana Eyrarskjól, Sólborg, Grænagarð, Laufás og Tjarnarbæ. |
||
Fræðslunefnd samþykkir dagatölin en vill ítreka það sem kemur fram í Skólastefnu Ísafjarðarbæjar, að samræma skuli starfsdaga skóla innan byggðarkjarna. |
||
|
||
2. |
2013050012 - Ósk um að ráða tvo starfsmenn á leikskólann Sólborg, Ísafirði. |
|
Lagt fram bréf, dagsett 10. maí 2013, frá Helgu Björk Jóhannsdóttur, leikskólastjóra á Sólborg, þar sem hún óskar eftir að fá að ráða inn tvo starfsmenn í sitthvort 81,25% starfshlutfallið, vegna barna sem þurfa aðstoð í námi. |
||
Fræðslunefnd frestar erindinu til næsta fundar. |
||
|
||
3. |
2013020050 - Skýrslur grunnskóla 2013. |
|
Lagðar fram niðurstöður úr könnun sem var send á kennara Grunnskólans á Ísafirði, þar sem spurt var um viðhorf þeirra til fræðsluyfirvalda og sérfræðiþjónustu sveitarfélagsins. Könnunin var send í framhaldi af innra mati sem skólinn gerði. |
||
Fræðslunefnd óskar eftir frekari greiningu á svörunum. |
||
|
||
4. |
2013050017 - Skóladagatöl 2013-2014. |
|
Lögð fram skóladagatöl fyrir skólaárið 2013-2014 fyrir Grunnskólann á Ísafirði, Grunnskólann á Suðureyri, Grunnskólann á Þingeyri og Grunnskóla Önundarfjarðar. |
||
Fræðslunefnd samþykkir dagatölin en ítrekar eins og hjá leikskólunum , að samræma skuli starfsdaga skóla innan byggðarkjarna. |
||
|
||
5. |
2013020004 - Fréttabréf Grunnskólanns á Ísafirði 2013. |
|
Lagt fram fréttabréf fyrir apríl frá Grunnskólanum á Ísafirði. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.
Helga Dóra Kristjánsdóttir |
|
Ólöf Hildur Gísladóttir |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Sigurður Jóhann Hafberg |
Sigurlína Jónasdóttir |
|
Margrét Halldórsdóttir |
Magnús Reynir Guðmundsson |
|
|