Félagsmálanefnd - 402. fundur - 29. október 2015
Dagskrá:
Harpa Guðmundsdóttir og Harpa Lind Kristjánsdóttir mættu til fundar. |
||
1. |
Fjölsmiðja - samstarfsverkefni Starfsendurhæfingar og Vesturafls - 2014090066 |
|
Harpa Guðmundsdóttir forstöðumaður Vesturafls geðræktarmiðstöðvar og Harpa Lind Kristjánsdóttir forstöðumaður Starfsendurhæfingar Vestfjarða mættu til fundarins og kynntu hugmynd að fjölsmiðju sem er samstarfsverkefni þeirra og unnið hefur verið að frá árinu 2014. Þær lögðu fram erindi til Ísafjarðarbæjar dags. 12. október s.l., kostnaðaráætlun fyrir verkefnið og skjal sem sýnir rekstur annarra fjölsmiðja. |
||
Forstöðumennirnir kynntu framlagt erindi sitt þar sem óskað er eftir formlegri viljayfirlýsingu frá Ísafjarðarbæ um að taka þátt í rekstri fjölsmiðjunnar. |
||
|
||
Gestir |
||
Harpa Guðmundsdóttir - 00:00 |
||
Harpa Lind Kristjánsdóttir - 00:00 |
||
|
||
|
||
Margrét Halldórsdóttir og Hlynur Snorrason mættu til fundar. |
||
2. |
Fundur með félagsmálanefnd 29. okt. 2015 - 2015100059 |
|
Hlynur Snorrason og Margrét Halldórsdóttir fulltrúar Vá Vest mættu til fundarins. |
||
Hlynur og Margrét kynntu starf og helstu verkefni Vá Vest sem vinnur að forvarnarmálum á norðanverðum Vestfjörðum. |
||
|
||
Gestir |
||
Hlynur Snorrason - 00:00 |
||
Margrét Halldórsdóttir - 00:00 |
||
|
||
|
||
3. |
Trúnaðarmál. - 2011090094 |
|
Níu trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd. |
||
Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar. |
||
|
||
4. |
Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048 |
|
Margrét Geirsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerði grein fyrir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016. |
||
Fjallað var um sérstaka þætti fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 og mun nefndin funda þann 3. nóvember til þess að fjalla nánar um fjárhagsáætlunina. |
||
|
||
5. |
Breytingar á félagsstarfi aldraðra á Þingeyri - 2015100050 |
|
Lagt fram erindi frá Ástu Guðríði Kristinsdóttur umsjónarkonu félagsstarfs aldraðra á Þingeyri þar sem hún óskar eftir því að félagsstarfið verði aftur opið á mánudögum og fimmtudögum eins og áður var. Ásta vísar til vilja meirihluta notenda. |
||
Félagsmálanefnd samþykkir tillögu umsjónarkonu félagsstarfsins með vísan til niðurstöðu könnunar sem gerð var af henni. |
||
|
||
6. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2015 - 2015020078 |
|
Lagt fram erindi frá nefndarsviði Alþingis dags 5. október s.l. þar sem félagsmálanefnd er send til umsagnar tillaga til þingsályktunar um bráðaaðgerðir til að tryggja öllum húsnæði á viðráðanlegum kjörum, 15. mál. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
Samstarfsbeiðni Sólstafa Vestfjarða - 2015040006 |
|
Lagt fram erindi frá Sólstöfum Vestfjarða dags. 20. október 2015 þar sem óskað er eftir styrk vegna starfsemi félagsins á norðanverðum Vestfjörðum. Jafnframt lögð fram kostnaðaráætlun fyrir Sólstafi. Umbeðinn styrkur nemur kr. 717.797,- á ári. |
||
Félagsmálanefnd telur sér ekki fært að mæla með því við bæjarstjórn að samtökunum verði veittur styrkur sem nemur umbeðinni upphæð. Félagsmálanefnd vill þó árétta vilja sinn til að mæla með styrk til Sólstafa. |
||
|
||
|
||
Sólveig Sigríður Guðnadóttir og Arna Ýr Kristinsdóttir fóru af fundi. |
||
8. |
Umsókn um að gerast dagforeldri - 2015090048 |
|
Lögð fram á ný umsókn frá Örnu Ýr Kristinsdóttur um að gerast dagforeldri en afgreiðslu umsóknarinnar var frestað á síðasta fundi nefndarinnar þann 24. september s.l. |
||
Félagsmálanefnd hefur það hlutverk að fjalla um umsóknir einstaklinga um að annast daggæslu í heimahúsum, samanber reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005. Samkvæmt reglugerðinni eru leyfisveitingar háðar skilyrðum s.s. hæfi umsækjanda, húsakynnum, umhverfi og brunavörnum. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00
Gunnhildur Björk Elíasdóttir |
|
Helga Björk Jóhannsdóttir |
Steinþór Bragason |
|
Arna Ýr Kristinsdóttir |
Sólveig Guðnadóttir |
|
Guðjón Már Þorsteinsson |
Sædís María Jónatansdóttir |
|
Margrét Geirsdóttir |
Anna Valgerður Einarsdóttir |
|
Þóra Marý Arnórsdóttir |