Félagsmálanefnd - 361. fundur - 26. október 2011
Dagskrá:
1. |
2011090094 - Trúnaðarmál. |
|
Þrjú trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd. |
||
Trúnaðarmálin rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar. |
||
|
||
2. |
2011090091 - Fjölskyldusvið, fjárhagsáætlun 2012. |
|
Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir Hlíf. |
||
Rætt um fjárhagsáætlun fyrir Hlíf og starfsmanni falið að gera breytingar í samræmi við umræður og tillögur á fundinum. |
||
|
||
3. |
2007010072 - Sérstakar húsaleigubætur |
|
Lögð fram áætlun um heildargreiðslu sérstakra húsaleigubóta 2012. |
||
Rætt um áætlunina og óskar félagsmálanefnd eftir frekari upplýsingum um greiðslu sérstakra húsaleigubóta. |
||
|
||
4. |
2011090089 - Rekstur Verslunar íbúa Hlífar. |
|
Lagðar fram niðurstöðutölur úr rekstri fyrir janúar til apríl 2011. |
||
Umræður um rekstur verslunarinnar. |
||
|
||
5. |
2011020034 - Leyfi til daggæslu í heimahúsi |
|
Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur daggæslufulltrúa Ísafjarðarbæjar dags. 4. okt. s.l. þar sem Auður Helgadóttir dagforeldri sækir um undanþágu frá dagvistunarreglum um fjölda barna. |
||
Félagsmálanefnd samþykkir á grundvelli greinargerðar Sigurlínu að dagforeldrið taki fimmta barnið í vistun. |
||
|
||
6. |
2011090092 - Fundargerðir verkefnahóps BSVest. |
|
Lögð fram fundargerð 10. fundar verkefnahóps Byggðarsamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
2010070042 - Fundargerðir 2010/2011 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði |
|
Lögð fram fundargerð 7. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00
Guðfinna M Hreiðarsdóttir
Jón Reynir Sigurðsson
Gunnar Þórðarson
Rannveig Þorvaldsdóttir
Helga Björk Jóhannsdóttir
Sædís María Jónatansdóttir
Harpa Stefánsdóttir
Margrét Geirsdóttir