Félagsmálanefnd - 282. fundur - 3. apríl 2007
Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Hrefna R. Magnúsdóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir, Ásthildur Gestsdóttir og Elín Halldóra Friðriksdóttir. Jafnframt sátu fundinn Ingibjörg María Guðmundsdóttir, yfirmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar og Margrét Geirsdóttir, ráðgjafi Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Ingibjörg María Guðmundsdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Trúnaðarmál.
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálamöppu félagsmálanefndar.
2. Önnur mál.
Gísli Halldórsson og Rannveig Þorvaldsdóttir sögðu frá ráðstefnu sem þau sóttu 29.-30. mars s.l., á vegum félagsmálaráðuneytis um mótun framtíðar um félagsþjónustu í landinu.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 13:05.
Gísli H. Halldórsson, formaður.
Elín Halldóra Friðriksdóttir.
Rannveig Þorvaldsdóttir.
Hrefna R. Magnúsdóttir.
Ásthildur Gestsdóttir.
Ingibjörg María Guðmundsdóttir, forstm. Skóla- og fjölskylduskrifstofu.
Margrét Geirsdóttir, ráðgjafi.