Byggingarnefnd - 17. fundur - 12. mars 2007
Mættir eru Þorsteinn Jóhannesson, formaður, Svanlaug Guðnadóttir, Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri og Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs, er jafnframt ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Framkvæmdir við viðbyggingu Grunnskólans á Ísafirði.
Farið yfir stöðu mála og að mati eftirlitsmanns er verkið á áætlun. Greiðslur til verktaka eru komar í kr. 91.368.286,-. Aðspurður upplýsti sviðstjóri umhverfissviðs að fjármagn til uppbyggingar félagsmiðstöðvar var tekið af fjármagni, sem ætlað var við 2. áfanga grunnskólabyggingar á Ísafirði.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 16:00.
Þorsteinn Jóhannesson, formaður.
Skarphéðinn Jónsson, skólastjóri.
Svanlaug Guðnadóttir.
Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri umhverfissviðs.