Bæjarstjórn - 385. fundur - 15. september 2016
Dagskrá:
1. |
Dýrafjarðargöng - Deiliskipulag - 2016020061 |
|
Á 461. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar lagði nefndin til við bæjarstjórn að hún samþykkti deiliskipulagsuppdrætti og greinargerðir við Dranga í Dýrafirði annars vegar og við Rauðsstaði í Arnarfirði hins vegar, að teknu tilliti til athugasemda og umsagna. |
||
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti og Gunnhildur Elíasdóttir. |
||
|
||
2. |
Oddavegur 13 ósk um stækkun byggingarreits - 2016060086 |
|
Á 461. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar var tekin fyrir grenndarkynning vegna byggingarreits við Oddaveg 13 á Flateyri. Fram kom að hagsmunaaðilar hafi samþykkt með undirritun á kynningargögn grenndarkynningar að þeir geri ekki athugasemd við fyrirhuguð áform. Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi við Oddaveg 13 og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu. |
||
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti. |
||
|
||
3. |
Æðartangi 2-4 Stækkun byggingarreits - 2016070006 |
|
Á 461. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar var tekin fyrir grenndarkynning vegna Æðartanga 2 og 4 á Ísafirði. Hagsmunaaðilar hafa samþykkt með undirritun á kynningargögn grenndarkynningar að þeir geri ekki athugasemdir við fyrirhuguð áform. Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi við Æðartanga 2-4 og lagði til við bæjarstjórn að hún samþykkti breytinguna. |
||
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti. |
||
|
||
4. |
Áhugi á vatnskaupum af Ísafjarðarbæ - 2016080046 |
|
Á 943. fundi bæjarráðs lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að viljayfirlýsing vegna vatnskaupa af Ísafjarðarbæ yrði samþykkt. |
||
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti. |
||
|
||
5. |
Reykjanes við Ísafjarðardjúp, viljayfirlýsing - 2016090023 |
|
Á 943. fundi bæjarráðs lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að viljayfirlýsing vegna Reykjaness við Ísafjarðardjúp yrði samþykkt. |
||
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti, Kristín Hálfdánsdóttir, Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri, Daníel Jakobsson, Arna Lára Jónsdóttir, Jónas Þór Birgisson, Gunnar Jónsson, Marzellíus Sveinbjörnsson og Kristján Andri Guðjónsson. |
||
|
||
6. |
Snjótroðari - 2016080029 |
|
Á 943. fundi bæjarráðs lagði bæjarráð til við bæjarstjórn að samningurinn yrði samþykktur og bæjarstjóra falið að skrifa undir samning um kaup á snjótroðara. |
||
Til máls tók: Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti. |
||
|
||
7. |
Bæjarráð - 942 - 1609002F |
|
Lögð er fram fundargerð 942. fundar bæjarráðs sem haldinn var 5. september sl., fundargerðin er í 7 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
Bæjarráð - 943 - 1609005F |
|
Lögð er fram til kynningar fundargerð 943. fundar bæjarráðs sem haldinn var 12. september sl., fundargerðin er í 14 liðum. |
||
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti, Jónas Þór Birgisson, Arna Lára Jónsdóttir, Kristján Andri Guðjónsson, Daníel Jakobsson, Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri, Kristín Hálfdánsdóttir og Gunnar Jónsson. |
||
|
||
9. |
Fræðslunefnd - 371 - 1608014F |
|
Lögð er fram til kynningar fundargerð 371. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 1. september sl., fundargerðin er í 5 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
10. |
Hafnarstjórn - 186 - 1609006F |
|
Lögð er fram fundargerð 186. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 13. september sl., fundargerðin er í 7 liðum. |
||
Til máls tóku: Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti, Daníel Jakobsson, Gunnar Jónsson, Marzellíus Sveinbjörnsson, Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri, Kristján Andri Guðjónsson og Arna Lára Jónsdóttir. |
||
|
||
11. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 33 - 1608005F |
|
Lögð er fram til kynningar fundargerð 33. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 30. ágúst sl., fundargerðin er í 7 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 34 - 1608015F |
|
Lögð er fram fundargerð 34. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 13. september sl., fundargerðin er í 5 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:32
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Jónas Þór Birgisson |
|
Arna Lára Jónsdóttir |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gunnar Jónsson |
|
Kristín Hálfdánsdóttir |
Gunnhildur Björk Elíasdóttir |
|
Gísli Halldór Halldórsson |
Þórdís Sif Sigurðardóttir |
|
|