Bæjarráð - 965. fundur - 27. febrúar 2017
Dagskrá:
1. |
Sameining sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum - 2017020048 |
|
Umræður um hvort kanna eigi möguleika á sameiningu sveitarfélaga og sækja um fjárframlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til framkvæmdar slíkrar könnunar. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn eftirfarandi ályktun: |
||
|
||
2. |
Hestamannafélagið Hending - kröfugerð vegna reiðvallar - 2016050078 |
|
Lögð fram drög að samningi við Hestamannafélagið Hendingu. |
||
Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar bæjarstjórnar. |
||
|
||
3. |
Gjaldskrá fráveitu 2017 - 2016020047 |
|
Lögð er fram tillaga að endurnýjaðri gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2017. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2017. |
||
|
||
4. |
Fjárhagsáætlun 2018 - 2017020049 |
|
Kynnt er tillaga að ferli við fjárhagsáætlunarvinnu Ísafjarðarbæjar vegna ársins 2018 ásamt vinnuskipulagi þeirra starfsmanna sem koma að áætluninni. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna. |
||
|
||
Daníel Jakobsson yfirgaf fundinn kl. 8:43. |
||
5. |
Styrkbeiðni frá SFÍ - 2017010047 |
|
Viðauki vegna styrkbeiðni SFÍ vegna Unglingameistaramóts Íslands tekinn aftur á dagskrá. Á 394. fundi bæjarstjórnar var ákveðið að fresta viðauka vegna styrkbeiðni til SFÍ og skoða í samhengi við fyrirhugaðan uppbyggingarsamning við félagið. |
||
Bæjarráð fellur frá styrkveitingunni en felur sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs í samstarfi við Skíðafélag Ísafirðinga að fella það sem farið er fram á í styrkbeiðninni inn í fyrirliggjandi uppbyggingasamning Skíðafélags Ísafirðinga vegna Tungudals. |
||
|
||
6. |
Uppbyggingasamningar við SFÍ - Tungudal 2017-2019 - 2017020028 |
|
Kynnt eru drög að uppbyggingasamningi við Skíðafélag Ísfirðinga vegna uppbyggingar í Tungudal, þar sem lagt er til að framlag Ísafjarðarbæjar verði 3 milljónir á árunum 2017, 2018 og 2019, samtals 9 milljónir í samræmi við tillögu íþrótta- og tómstundanefndar frá 175. fundi nefndarinnar. |
||
Bæjarráð fellur frá styrkveitingunni en felur sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs í samstarfi við Skíðafélag Ísafirðinga að fella það sem farið er fram á í styrkbeiðninni inn í fyrirliggjandi uppbyggingasamning Skíðafélags Ísafirðinga vegna Tungudals. |
||
|
||
7. |
Uppbyggingas. við SFÍ - Seljalandsdalur 2017 - 2017020028 |
|
Kynnt eru drög að uppbyggingasamningi við Skíðafélag Ísfirðinga vegna uppbyggingar á Seljalandsdal, þar sem lagt er til að framlag Ísafjarðarbæjar verði 3 milljónir á árinu 2017 í samræmi við tillögu íþrótta- og tómstundanefndar frá 175. fundi nefndarinnar. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi uppbyggingasamning við Skíðafélag Ísfirðinga vegna uppbyggingar á Seljalandsdal. |
||
|
||
|
||
8. |
Uppbyggingasamningar við Golfklúbb Ísafjarðar 2017 - 2017020028 |
|
Kynnt eru drög að uppbyggingasamningi við Golfklúbb Ísafjarðar, þar sem lagt er til að framlag Ísafjarðarbæjar verði 3 milljónir á árinu 2017 í samræmi við tillögu íþrótta- og tómstundanefndar frá 175. fundi nefndarinnar. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi uppbyggingasamning við Golfklúbb Ísafjarðar. |
||
|
||
9. |
Uppbyggingas. við Skotíþróttafélag Ísafjarðar 2017 - 2017020028 |
|
Kynnt eru drög að uppbyggingasamningi við Skotíþróttafélag Ísafjarðar, þar sem lagt er til að framlag Ísafjarðarbæjar verði 3 milljónir á árinu 2017 í samræmi við tillögu íþrótta- og tómstundanefndar frá 175. fundi nefndarinnar. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi uppbyggingasamning við Skotíþróttafélag Ísafjarðar. |
||
|
||
10. |
Málþing um aðgengismál fatlaðra - 2017020174 |
|
Lagður fram tölvupóstur Guðjóns Helgasonar, f.h. Öryrkjabandalag Íslands, dagsettur 24. febrúar sl., þar sem boðið er á málþing um algilda hönnun í almenningsrými, í borgum, bæjum og á ferðamannastöðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
11. |
Málþing - Sveitarfélögin og ferðaþjónustan - 2017020159 |
|
Lagður fram tölvupóstur Guðjóns Bragasonar, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 20. febrúar sl., þar sem kynnt er málþingið "Sveitarfélögin og ferðaþjónustan", sem haldið verður 3. mars nk. Markmið málþingsins er að sveitarstjórnarmenn komi saman til þess að ræða málefni ferðaþjónustu og þær áskoranir og tækifæri sem felast í fjölgun ferðamanna sem leggja leið sína hingað til lands. Einnig er lögð fram dagskrá málþingsins. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
Fjórðungssamband Vestfirðinga - fundargerðir 2017 - 2017010014 |
|
Lagður fram tölvupóstur Aðalsteins Óskarssonar, f.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga, dagsettur 20. febrúar sl., ásamt fundargerð stjórnarfundar sambandsins frá 16. febrúar sl. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
13. |
Fundargerðir heilbrigðisnefndar og ýmis erindi 2017 - 2017020078 |
|
Lagður fram ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða fyrir árið 2016, dagsettur 10. febrúar sl. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
14. |
Fræðslunefnd - 377 - 1702014F |
|
Lögð er fram fundargerð 377. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 23. febrúar sl., fundargerðin er í 4 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
Brynar Þór Jónasson, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs mætir til fundarins kl. 9:10. |
||
15. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 472 - 1702021F |
|
Lögð er fram fundargerð 472. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 24. febrúar sl., fundargerðin er í 8 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
||
16. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 42 - 1702017F |
|
Lögð er fram fundargerð 42. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 21. febrúar sl., fundargerðin er í 3 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:25
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |