Bæjarráð - 961. fundur - 30. janúar 2017
Dagskrá:
1. |
Uppbygging knattspyrnumannvirkja á Torfnesi - ósk um fund með Ísafjarðarbæ - 2017010066 |
|
Fulltrúar íþróttafélagsins Vestra mæta til fundar við bæjarráð til að ræða uppbyggingu knattspyrnumannvirkja á Torfnesi. |
||
Fulltrúar Vestra og HSV óska eftir upplýsingum um fyrirætlanir í uppbyggingu knattspyrnumannvirkja á Torfnesi og óskuðu eftir samstarfi við Ísafjarðarbæ um uppbyggingu knattspyrnumannvirkja. |
||
|
||
Gestir |
||
Gísli Jón Hjaltason, stjórnarmaður Vestra - 08:08 |
||
Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri HSV - 08:08 |
||
Svavar Þór Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Vestra - 08:08 |
||
Hjalti Karlsson, formaður Vestra - 08:08 |
||
|
||
|
||
2. |
Ný reglugerð um eldvarnir og eldvarnaeftirlit - 2017010092 |
|
Lagt fram bréf Williams Freys Huntingdon-Williams, f.h. umhverfis- og auðlindaráðuneytis, dagsett 19. janúar sl., þar sem óskað er eftir umsögn um drög að nýrri reglugerð um eldvarnir og eldvarnaeftirlit. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar í skipulags- og mannvirkjanefnd. |
||
|
||
3. |
Neysluvatn í Reykjanesi - 2017010105 |
|
Lagt fram bréf Jóns Heiðars Guðjónssonar, f.h. Ferðaþjónustunnar Reykjanesi, þar sem óskað er eftir aðstoð vegna máls er varðar notkun Ferðaþjónustunnar á neysluvatni í Reykjanesi, og ágreinings við landeiganda þar um. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Súðavíkurhrepp um útvegun neysluvatns í Reykjanesi í Reykjafirði. |
||
|
||
4. |
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2017 - Álagning fasteignagjalda og afslættir - 2017010064 |
|
Lögð eru fram frumdrög að viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2017 af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra. Álagning fasteignagjalda 2017 leiddi í ljós aukningu á tekjum umfram áætlun um 5,4 milljónir króna. Jafnframt er lagt til að tekjuviðmið afslátta elli- og öryrkja vegna fasteignagjalda 2017 verði hækkuð um 10% sem leiðir til aukningu styrkja um 2,4 milljónir króna. Einnig er lagður fram styrkur til Hafstjörnunnar fyrir 1 milljón vegna unglingalandsmóts Landsbjargar sem haldið verður á Ísafirði í sumar. Afgangi viðaukans er ráðstafað í aukningu á áætluðum ófyrirséðum kostnaði um 2 milljónir króna. Viðaukinn hefur þau áhrif að tekjur aukast um 5,4 milljónir króna og gjöld aukast um 5,4 milljónir króna. Nettó áhrif viðaukans í rekstur samstæðu Ísafjarðarbæjar eru því kr. 0. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja 1. viðauka við fjárhagsáætlun. |
||
|
||
Gestir |
||
Edda María Hagalín, fjármálastjóri - 09:00 |
||
|
||
5. |
Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2017 - 2017010064 |
|
Lögð eru fram frumdrög að viðauka B (2) við fjárhagsáætlun 2017 af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra. Viðaukinn er vegna reiðskemmu fyrir Hestamannafélagið Hendingu og hefur þau áhrif að gjöld aukast um 8,1 milljónir króna, eignarhlutur í félögum eykst um 15 milljónir króna og handbært fé lækkar um 23,1 milljón króna. Áhrif viðaukans á afkomu samstæðu Ísafjarðarbæjar eru því lækkun úr kr. 35.353.535,- í kr. 27.253.535,-. |
||
Daníel Jakobsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, leggur fram eftirfarandi bókun:
|
||
Edda María yfirgefur fundinn kl. 9:11. |
||
|
||
6. |
Stútungur: Beiðni um niðurfellingu á leigu íþróttahúss - 2017010074 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Steinunnar G. Einarsdóttur, f.h. Stútungsnefndar 2017, frá 22. janúar sl., þar sem sótt erum styrk með niðurfellingu á leigu íþróttahúss Flateyrar 11. febrúar 2017 fyrir Þorrablótið Stútung. |
||
Bæjarráð samþykkir beiðnina. |
||
|
||
7. |
Umsókn um styrk - verkefni til að vekja athygli á kynferðisofbeldi gegn drengjum - 2017010042 |
|
Lagður fram tölvupóstur Hrafnhildar Ýrar Denke, dagsettur 21. janúar sl., þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 200.000 kr. vegna átaksverkefnis meistaranema og kennara Háskólans á Akureyri sem snýr að því að vekja athygli á kynferðisofbeldi gegn drengjum. |
||
Bæjarráð sér sér ekki fært að taka þátt í verkefninu. |
||
|
||
8. |
Sjókvíaeldi Arctic Sea Farm í Ísafjarðardjúpi - 2017010103 |
|
Lagt fram bréf Hólmfríðar Bjarnadóttur, f.h. Skipulagsstofnunar, dagsett 23. janúar sl., þar sem óskað er eftir umsögn Ísafjarðarbæjar um tillögu að matsáætlun um 7.600 tonna framleiðsluaukningu í laxeldi Arctic Sea Farm í Ísafjarðardjúpi. Óskað er eftir að umsögnin berist fyrir 8. febrúar nk. |
||
Lagt fram til kynningar og vísað til skipulags- og mannvirkjanefndar og hafnarstjórnar. |
||
|
||
9. |
Sundhöll Ísafjarðar Samkeppni - 2015090052 |
|
Lagt fram boðskort Ísafjarðarbæjar, sem sent var út 26. janúar sl. Viðtakendum er boðið að vera viðstaddir athöfn þar sem kynnt verða úrslit hugmyndasamkeppni um aukna og bætta íþrótta- og baðaðstöðu í Sundhöll Ísafjarðar. Athöfnin verður haldin í Sundhöllinni 1. febrúar nk. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
|
10. |
Samskip - hækkun á þjónustugjöldum - 2017010013 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Pálmars Óla Magnússonar, forstjóra Samskipa, frá 23. janúar sl., þar sem tölvupósti Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, er svarað varðandi hækkun flutningskostnaðar hjá Samskipum. |
||
Bæjarráð óskar eftir því að fulltrúar Samskipa mæti á fund bæjarráðs eins fljótt og verða má. |
||
|
||
11. |
Lónið Suðureyri - 2017010067 |
|
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá Fiskistofu um hvort Jens Daníel Hólm hafi fengið útgefið rekstrarleyfi til fiskeldis. |
||
Samkvæmt samkomulaginu var afnotarétturinn að Lóninu bundinn því skilyrði að þar væri starfrækt fiskeldi innan 12 mánaða frá undirritun samkomulagsins. Samkvæmt upplýsingum bæjarráðs fékk Jens Daníel Hólm ekki útgefið rekstrarleyfi fyrir fiskeldi í Lóninu í framhaldi af samkomulaginu við Ísafjarðarbæ, samkomulagið hefur því fallið úr gildi. |
||
|
||
12. |
Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið á Hornströndum - 2016110092 |
|
Lagður fram tölvupóstur Jóns Smára Jónssonar, f.h. Umhverfisstofnunar, ásamt fundargerð fyrsta fundar samstarfsnefndar vegna gerðar stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið á Hornströndum, sem haldinn var 17. janúar sl. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
13. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 40 - 1701008F |
|
Fundargerð 40. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 24. janúar sl., fundargerðin er í 4 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:37
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |