Bæjarráð - 956. fundur - 12. desember 2016
Dagskrá:
1. |
Opinn fundur um byggingar- og mannvirkjamál - 2016120010 |
|
Lagt fram bréf frá Samtökum Iðnaðarins, óundirritað, dagsett 1. desember sl., þar sem boðað er til opins fundar um byggingar- og mannvirkjamál þann 14. desember nk. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
2. |
Hámarkshraði í Pollgötu og Krók - 2014110033 |
|
Lagt fram bréf Karls Vilbergssonar, lögreglustjórans á Vestfjörðum, dagsett 2. desember sl., þar sem kynnt er afstaða lögreglustjóra um hækkun hámarkshraða á Pollgötu í 40 km/klst. Lögreglustjóri hafnar því að hækka hámarkshraðann. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Fjarðargata 10, Þingeyri, umsókn um rekstrarleyfi gistiheimilis - 2016010026 |
|
Lögð er fram umsagnarbeiðni Rósu Ólafsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 20. september sl. um rekstrarleyfi, skv. umsókn Sjóbátaleigunnar ehf., dags. 20. september sl., í flokki II fyrir Fjarðargötu 10, Þingeyri. Einnig er meðfylgjandi umsögn Axels Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 24. nóvember sl. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
||
|
||
4. |
Útboð á tryggingum Ísafjarðarbæjar 2016 - 2016060030 |
|
Lagt er fram bréf Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dagsett 8. desember sl., varðandi útboð á tryggingum Ísafjarðarbæjar 2016. Brynjar leggur til að samið verði við Vátryggingafélag Íslands hf. á grundvelli tilboðs þeirra. |
||
Bæjarráð samþykkir tillögu Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, um að semja við Vátryggingafélag Íslands á grundvelli tilboðs þeirra. |
||
|
||
5. |
Byggðakvóti fiskveiðiárið 2016/2017 - 2016090018 |
|
Kynntar athugasemdir við setningu sérreglna um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017 fyrir Ísafjarðarbæ og tillögur að sérreglum. Enn fremur er lagt fram bréf Lýðs Árnasonar, f.h. Stútungs ehf. á Flateyri, dags. 7. desember sl. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna tillögur að sérreglum um byggðakvóta fiskveiði árið 2016/2017 og leggja fyrir á bæjarstjórnarfundi. |
||
|
||
6. |
Greiðslur til bæjarfulltrúa og nefndarmanna - 2013020002 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, dags. 8. desember sl., ásamt tillögum að reglum um greiðslur til bæjarfulltrúa og nefndarmanna. Tillögurnar eru í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar að laun nefndarmanna og kjörinna fulltrúa taki ekki hækkunum samkvæmt úrskurði Kjararáðs frá 29. október sl. |
||
Bæjarráð samþykkir reglurnar um greiðslur til bæjarfulltrúa og nefndarmanna í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar um að laun nefndarmanna og kjörinna fulltrúa taki ekki hækkunum samkvæmt úrskurði Kjararáðs. |
||
|
||
7. |
Sindragata 4a Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir - 2016070043 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 9. desember sl., með tillögu um í hvaða formi stofnframlag Ísafjarðarbæjar yrði veitt til byggingar leiguíbúða. |
||
Bæjarráð samþykkir tillöguna, þ.e. að stofnframlag Ísafjarðarbæjar verði lóðaverð og önnur opinber gjöld, útlagður kostnaður framkvæmdaaðila vegna byggingarinnar sem áætlaður er 3% og hreint fjárframlag. Enn fremur setur Ísafjarðarbær þau skilyrði fyrir stofnframlaginu að það verði endurgreitt þegar önnur fjármögnun hefur verið greidd. |
||
|
||
8. |
Áskorun vegna Dýrafjarðarganga - 2012060001 |
|
Til umfjöllunar eru drög að fjárlögum 2017 og staða Dýrafjarðarganganna á fjárlögum. |
||
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun og vísar henni til bæjarstjórnar: |
||
|
||
9. |
Mánaðaryfirlit 2016 - 2016050081 |
|
Lagt er fram minnisblað Helgu Ásgeirsdóttur, verkefnastjóra á fjármálasviði, dags. 28.október sl, um skatttekjur og laun janúar til október 2016. Þar má sjá að útsvarstekjur eru á áætlun og eru 1.473,7 milljónir króna fyrir tímabilið. Jöfnunarsjóður er 1,3 milljónum króna yfir áætlun eða 603 milljónir króna. Að lokum er launakostnaður 22,4 milljónum króna undir áætlun en kostnaðurinn nemur 1.691,2 milljónir króna fyrir fyrstu 10 mánuði ársins 2016. |
||
Helga Ásgeirsdóttir mætti til fundarins og gerði grein fyrir skatttekjum og launum janúar til október 2016. |
||
|
||
Gestir |
||
Helga Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri - 09:00 |
||
Helga Ásgeirsdóttir yfirgaf fundinn kl. 9:08. |
||
|
||
10. |
Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047 |
|
Lögð eru fram lokadrög að fjögurra ára fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2017-2020 og fimm ára fjárfestingaráætlun 2017-2021. |
||
Edda María Hagalín, fjármálastjóri, mætti til fundarins og tók þátt í umræðum um fjögurra ára fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2017-2020. Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs, mætti til fundarins og tók þátt í umræðum um fimm ára fjárfestingaráætlun. |
||
|
||
Gestir |
||
Edda María Hagalín, fjármálastjóri - 09:10 |
||
Brynjar Þór Jónasson, sviðstjóri umhverfis- og eignasviðs - 09:28 |
||
|
||
|
||
11. |
Fundargerðir heilbrigðisnefndar og ýmis erindi 2016 - 2016020062 |
|
Lagður fram tölvupóstur Antons Helgasonar, f.h. Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, dagsettur 6. desember sl, ásamt fundargerð heilbrigðisnefndar frá 4. desember sl. Vakin er sérstök athygli á að sækja þarf um tímabundið starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits þegar halda á brennur í sveitarfélaginu. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 467 - 1611014F |
|
Fundargerð 467. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 7. desember sl., fundargerðin er í 5 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
12.4 |
2016120008 - 3X óskar eftir óverulegri aðalskipulagsbreytingu |
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Sigurður Jón Hreinsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |