Bæjarráð - 945. fundur - 26. september 2016
Dagskrá:
1. |
Útvarp í veggöngum - 2016090038 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Jónasar Guðmundssonar, f.h. Samgöngufélagsins, frá 31. ágúst sl., ásamt minnisblaði frá verkfræðistofunni Eflu um útvarpskerfi í jarðgöngum og uppsetningu búnaðar í Bolungarvíkurgöngum þannig að þar megi ná útsendingum útvarps. |
||
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hvetur Vegagerðina til að endurskoða öryggi við byggingu vegganga þannig að útvarp sé hluti af framkvæmd við gerð vegganga og öryggiskerfi þeirra, í samræmi við það sem gerist á Norðurlöndunum. |
||
|
||
2. |
Barnasýningar í boði Þjóðleikhússins - 2016060097 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Tinnu Lindar, hjá Þjóðleikhúsinu, frá 11. september sl., vegna barnasýningarinnar Lofthræddi örninn Örvar. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að verða við beiðninni eftir bestu getu og felur honum að hafa samband við Þjóðleikhúsið. |
||
|
||
3. |
Heimsókn frá Kujalleq í Grænlandi - 2016080020 |
|
Umræður um komu gesta frá Kujalleq til Ísafjarðar. |
||
Lögð eru fram drög að dagskrá heimsóknar fulltrúa Kujalleq til Ísafjarðar. |
||
|
||
4. |
Sjókvíaeldi Arnarlax í Ísafjarðardjúpi - drög að tillögu að matsáætlun - 2016090039 |
|
Lagt er fram bréf Hugrúnar Gunnarsdóttur, f.h. VERKÍS hf., dags. 15. september sl., ásamt drögum að tillögu að matsáætlun fyrirhugaðs sjókvíaeldis í Ísafjarðardjúpi með framleiðslu á allt að 10.000 tonnum á laxi á ári. |
||
Bæjarráð gerir athugasemd við að gamlar og úreltar tölur frá árinu 2009 um fjölda skemmtiferðaskipa séu notaðar í matsáætluninni, en á árinu 2016 komu 83 skemmtiferðaskip inn í Skutulsfjörð. Einnig tekur bæjarráð fram að lýsa þarf betur útliti fóðurpramma, hávaða og áhrifum af þeim, áhrifum lýsingar og sjónrænnar mengunar hennar sem og hávaða frá ljósavélum og mengun þeirra sem teknar eru til í 3. og 5. kafla matsáætlunarinnar. |
||
|
||
5. |
Kaup Landsbankans á eigin hlutum - 2016090052 |
|
Lagt er fram bréf Steinþórs Pálssonar, bankastjóra og Helgu Bjarkar Eiríksdóttur, formanns bankaráðs, dags. 16. september sl., þar sem bankanum býðst að kaupa eigin bréf. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að Ísafjarðarbær selji hluti sína í Landsbankanum hf. og feli bæjarstjóra að ganga frá sölunni. |
||
|
||
6. |
Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir - 2016070043 |
|
Lagt er fram bréf Hermanns Jónassonar, forstjóra Íbúðalánasjóðs, dags. 12. september sl., um framkvæmd laga um almennar íbúðir. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að halda áfram að fylgja málinu eftir og stuðla að því að byggðar verði íbúðir í sveitarfélaginu. |
||
|
||
7. |
Heimildarmynd um Fjallabræður - beiðni um styrk - 2016090078 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Hannesar Friðbjarnarsonar, frá 21. september sl., varðandi heimildarmynd um Fjallabræður. |
||
Bæjarráð vísar umsókninni í hefðbundið ferli til atvinnu- og menningarmálanefndar vegna styrkja til menningarmála. |
||
|
||
8. |
Heimsókn til Færeyja í tilefni 20 ára gjafar leikskólans á Flateyri - 2016070001 |
|
Umræður um heimsókn til Færeyja. |
||
Bæjarstjóri gerir grein fyrir áætlaðri heimsókn Ísafjarðarbæjar til Færeyja. Bæjarráð telur að fulltrúar bæjarráðs skuli taka þátt í heimsókninni og felur bæjarstjóra að kanna kostnað við ferðina. |
||
|
||
Kristján Andri Guðjónsson gerði grein fyrir sínum þætti málsins og yfirgaf fundinn undir þessum lið kl. 8:55. |
||
9. |
Neysluvatnssýni 2016 - 2016010059 |
|
Lagt er fram bréf Antons Helgasonar, heilbrigðisfulltrúa, dags. 19. september, varðandi neysluvatnssýni á Ísafirði, Flateyri og Þingeyri, einnig er lagður fram tölvupóstur Antons Helgasonar frá 25. september sl. |
||
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar biður íbúa Flateyrar afsökunar á að neysluvatn á Flateyri hafi ekki verið í lagi. Bæjarráð telur augljóst að bæta þurfi samskiptaleiðir Ísafjarðarbæjar og Heilbrigðiseftirlitsins, einnig mun Ísafjarðarbær skerpa á sínum verkferlum, til að svona ástand skapist ekki aftur. |
||
|
||
|
||
10. |
7. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036 |
|
Lagður er fram 7. viðauki við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2016, um tilfærslu á fjármagni á milli málaflokks 04 og 06. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að 7. viðauki sé samþykktur. |
||
|
||
Gestir |
||
Edda María Hagalín, fjármálastjóri - 09:08 |
||
|
||
11. |
8. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036 |
|
Lagður er fram 8. viðauki við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2016, um lífeyrisskuldbindingu og leigusamninga TÍ og Norðurtanga. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að 8. viðauki sé samþykktur. |
||
|
||
12. |
9. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036 |
|
Lagður er fram 9. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 um veikindapott og leiðréttingar launa afturvirkt til 2015. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að 9. viðauki sé samþykktur. |
||
|
||
13. |
10. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036 |
|
Lagður er fram 10. viðauki við fjárhagsáætlun 2016 um sáttarbeiðni Dagverðardal. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að 10. viðauki sé samþykktur. |
||
|
||
|
||
14. |
Nýting á húsnæði Ísafjarðarbæjar, Engi, Seljalandsvegur 102 - 2015030069 |
|
Lagt er fram tilboð í Seljalandsveg 102. |
||
Bæjarráð hafnar framkomnu tilboði í Seljalandsveg 102, Ísafirði. |
||
|
||
15. |
Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 146 - 1609009F |
|
Lögð er fram fundargerð 146. fundar barnaverndarnefndar sem haldinn var 20. september, tvö mál voru á dagskrá. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
16. |
Félagsmálanefnd - 411 - 1609014F |
|
Fundargerð 411. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 20. september sl., 7 mál voru á dagskrá. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
17. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 462 - 1609015F |
|
Lögð er fram fundargerð 462. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 21. september sl., fundargerðin er í 7 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
17.4 |
2016090054 - Mávagarður A - Umsókn um lóð |
|
|
||
Niðurstaða Skipulags- og mannvirkjanefnd - 462 |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Vestfirskir verktakar ehf. fái lóð A við Mávagarð, Ísafirði með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun. |
||
|
||
17.7 |
2016090056 - Smárateigur 2 - Umsókn um lóð |
|
|
||
Niðurstaða Skipulags- og mannvirkjanefnd - 462 |
||
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun með fyrirvara um samþykki frá Umhverfis- og auðlindaráðuneyti. |
||
|
||
|
||
18. |
Öldungaráð - 2 - 1609010F |
|
Lögð er fram fundargerð 2. fundar Öldungaráðs sem haldinn var 14. september sl. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar og ábendingum öldungaráðs vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2017. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:34
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |