Bæjarráð - 940. fundur - 22. ágúst 2016
Dagskrá:
1. |
Ósk um samstarf við Ísafjarðarbæ - 2016080022 |
|
Lagt fram bréf frá dýraverndunarfélaginu Villikettir, dags. 14. ágúst, þar sem óskað er eftir samstarfi við Ísafjarðarbæ um mannúðlegar leiðir til að stemma stigu við fjölgun villi- og vergangskatta. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfis- og framkvæmdanefndar. |
||
|
||
2. |
Heimsókn til Færeyja - 2016070001 |
|
Umræður um hugsanlega heimsókn til Færeyja í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá því að Færeyingar gáfu leikskóla á Flateyri. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra hugsanlega heimsókn. |
||
|
||
3. |
Símaþjónusta Ísafjarðarbæjar - 2014100025 |
|
Lagt fram minnisblað Hálfdáns Bjarka Hálfdánssonar, upplýsingafulltrúa, ásamt samningi við Vodafone um ytri símaþjónustu Ísafjarðarbæjar. |
||
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um málið. |
||
|
||
4. |
Bæjarstjórnarfundir 2016 - 2016060042 |
|
Lagt fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 18. ágúst, þar sem fram koma tillögur að dagsetningum bæjarstjórnarfunda t.o.m. júní 2017. |
||
Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar. |
||
|
||
5. |
Snjótroðari - 2016080029 |
|
Lagt fram minnisblað Margrétar Halldórsdóttur sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 19. ágúst, um kaup á snjótroðara fyrir Skíðasvæðið á Ísafirði. |
||
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um kaup á snjótroðara. |
||
|
||
6. |
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036 |
|
Lögð fram drög að viðauka 05 vegna breytinga á sviði fræðslumála á árinu 2016, yfirlit um fjárhagslegar ráðstafanir og minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 19. ágúst. |
||
Bæjarráð samþykkir viðaukann. |
||
|
||
7. |
Sorpmál - Samningar - 2011010069 |
|
Lagt fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs dags. 19. ágúst, þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til þess að framlengja og breyta verksamningi um sorphirðu í Ísafjarðarbæ. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samkomulag um framlengingu vegna sorphirðu í Ísafjarðarbæ. |
||
|
||
8. |
Nýting á húsnæði Ísafjarðarbæjar, Engi - 2015030069 |
|
Lagt fram bréf Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs dags. 19. ágúst, þar sem óskað er eftir heimild til að hefja söluferli fasteignarinnar að Seljalandsvegi 102. |
||
Bæjarráð veitir sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs heimild til að hefja söluferli á fasteigninni Seljalandsvegur 102. |
||
|
||
9. |
Fjórðungssamband Vestfirðinga - ýmis mál og fundargerðir 2016/2017 - 2016020005 |
|
Lögð er fram fundargerð stjórnarfundar Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldinn var 14. júlí. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
|
||
10. |
Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Tekin fyrir að nýju beiðni um umsögn vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi gististaðar í flokki II að Fitjateig 3 í Hnífsdal. |
||
Í umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa kemur fram að umsóknin sé ekki í samræmi við skipulag Ísafjarðarbæjar. Þar sem um endurnýjun er að ræða gerir bæjarráð þó ekki athugasemd við að rekstrarleyfið verði framlengt að þessu sinni í samræmi við ákvörðun bæjarráðs frá 4. júlí sl. |
||
|
||
11. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027 |
|
Lagður fram tölvupóstur frá nefndarsviði Alþingis, dags. 18. ágúst, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um námslán og námsstyrki, 794. mál. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
FENÚR - ráðstefna - 2016080031 |
|
Lagður fram tölvupóstur frá Lúðvík Eckardt Gústafssyni, dags. 19. ágúst, um málþing um hringrásarhagkerfið. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
13. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 461 - 1607012F |
|
Lögð fram fundargerð 461. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 17. ágúst. Fundargerðin er í 9 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
14. |
Fræðslunefnd - 370 - 1608007F |
|
Lögð fram fundargerð 370. fundar fræðslunefndar frá 18. ágúst. Fundargerðin er í 13 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
15. |
Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 145 - 1608007F |
|
Lögð fram fundargerð 145. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum sem haldinn var 19. ágúst. Fundargerðin er í 1 lið. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
16. |
Þátttaka Ísafjarðarbæjar í Menningarnótt í Reykjavík 2016 - 2016060019 |
|
Bæjarráð þakkar Reykjavíkurborg, þá sérstaklega borgarstjóra og starfsfólki Höfuðborgarstofu fyrir höfðinglegar móttökur á Menningarnótt. Einnig eiga sérstakar þakkir skildar Fjallabræður, Ísfirðingafélagið og Rás 2 auk allra annarra sem tóku þátt í að gera Menningarnótt að skemmtilegum degi. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |