Bæjarráð - 935. fundur - 27. júní 2016
Dagskrá:
1. |
Svæðisáætlun fyrir Vestfirði - Fjórðungssamband Vestfirðinga - 2016020005 |
|
Lögð er fram að nýju beiðni Aðalsteins Óskarssonar, framkvæmdastjóra, f.h. Fjórðungssamband Vestfirðinga, dags. 24. maí um tillögu að gerð svæðisáætlunar fyrir Vestfirði, ásamt bókunum frá skipulags- og mannvirkjanefnd, atvinnu- og menningarmálanefnd og umhverfis- og framkvæmdanefnd. |
||
Bæjarráð leggur áherslu á að sett sé fram skýr og einföld framtíðarsýn sem fyrst sem leitt geti til markmiðasetningar. Einnig kallar bæjarráð eftir kostnaðaráætlun svæðisáætlunar og þar komi fram hvernig sá kostnaður skuli greiddur. |
||
|
||
2. |
Haustþing Fjórðungssambands Vestfirðinga 2016 - 2016020005 |
|
Lagt er fram boð Aðalsteins Óskarssonar, framkvæmdastjóra f.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga, dags. 21. júní sl., á Haustþing Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldið verður 2. og 3. september nk. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Ósk um styrk til tónleikahalds á Ísafirði, til heiðurs Jónasi Tómassyni - 2016060063 |
|
Lögð er fram beiðni Sigríðar Ragnarsdóttur f.h. skipulagshóps tónleikahalds á Ísafirði, sumarkvöld í Hömrum með Jónasi Tómassyni. |
||
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til úthlutunar styrkja til menningarmála hjá atvinnu- og menningarmálanefnd. |
||
|
||
4. |
Sundhöll Ísafjarðar Samkeppni - 2015090052 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 23. júní sl., varðandi greiðslur til nefndarmanna í dómnefnd hugmyndasamkeppni um aukna og bætta íþrótta- og baðaðstöðu Sundhallar Ísafjarðar. |
||
Bæjarráð tekur ákvörðun um að greiða 2% af þingfararkaupi fyrir fundi allt að hálfum degi og 4% af þingfararkaupi fyrir fundi allt að heilum degi, sbr. reglur Ísafjarðarbæjar um greiðslur til bæjarfulltrúa og nefndarmanna. |
||
|
||
5. |
Krafa um ógildingu nauðungarsölu á Aðalstræti 12, Þingeyri, úrskurður - 2016060064 |
|
Lagður er fram úrskurður Héraðsdóms Vestfjarða 27. maí 2016 í máli nr Z-1/2016 í kærumáli þar sem krafa er gerð um ógildingu nauðungarsölu fasteignar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
6. |
Heimabær II, Hesteyri - kæra byggingarleyfis. - 2013050069 |
|
Lagt er fram til kynningar bréf Sævars Geirssonar, f.h. Verkfræðistofunnar Hamraborgar, dags. 22. júní sl. varðandi Heimabæ 1 á Hesteyri. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
7. |
Látrar í Aðalvík - ósk um niðurrif - 2014090019 |
|
Lagt er fram bréf Helga Þorvarðssonar, f.h. Miðvíkur ehf., dags. 10. júní sl., varðandi stækkun á sjávarhúsinu á Látrum í Aðalvík. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til skipulag- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
8. |
Ofanflóðavarnir í sunnanverðum Hnífsdal. - 2016040007 |
|
Lagt er fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar, dags. 23. júní sl., varðandi ofanflóðavarnir í sunnanverðum Hnífsdal. |
||
Bæjarráð óskar hér með eftir því við Ofanflóðasjóð að hafin verði vinna við ofanflóðavarnir í sunnanverðum Hnífsdal. |
||
|
||
9. |
Dekkjakurl á gervigrasvöllum Ísafjarðarbæjar - 2016060080 |
|
Lagt er fram sameiginlegt bréf Hverfisráðs hverfa í Skutulsfjarðarbotni, hverfisráðs Hnífsdals, Hverfisráðs Súgandafjarðar og Hverfisráðs Dýrafjarðar, dags. 1. júní sl., þar sem óskað er afstöðu Ísafjarðarbæjar til dekkjakurls á gervigrasvöllum sveitarfélagsins. |
||
Ísafjarðarbær hefur verið með málið til skoðunar og mun bæjarráð fylgjast með framvindunni á landsvísu, m.a. þeirri vinnu sem Alþingi hefur sett af stað. |
||
|
||
10. |
Skráning fasteigna og fasteignamat 2017 - Tilkynningar - 2016060056 |
|
Lagt er fram bréf Margrétar Hauksdóttur, forstjóra Þjóðskrár Íslands, dags. 14. júní sl., þar sem niðurstaða endurmats fasteignamats er kynnt. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
11. |
Kortlagning auðlinda í ferðaþjónustu - ósk um samstarf - 2014060084 |
|
Lagt er fram bréf Ólafar Ýrr Atladóttur, ferðamálastjóra, dags. 23. júní sl., þar sem óskað er eftir samstarfi um kortlagningu auðlindaferðaþjónustu. |
||
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur Upplýsingamiðstöð Ísafjarðarbæjar að halda utan um verkið. |
||
|
||
12. |
Breyting á lögum varðandi heimagistingu - 2016060047 |
|
Minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 23. júní sl., með upplýsingum um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald er varðar heimagistingu sérstaklega. |
||
Bæjarráð bendir á að breytingarnar á lögunum skerða tekjur sveitarfélagsins. |
||
|
||
13. |
Úttekt á reglum um rekstrarleyfi gististaða - 2016060047 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 23. júní sl., varðandi gistihús í Ísafjarðarbæ. |
||
Bæjarráð felur bæjarritara að gera tillögu að verklagsreglum sem m.a. taka á fjölda herbergja í heimagistingu, grenndarkynningu, kröfum um fjölda bílastæða og kanna hvort hægt sé að setja kröfu um að fólk hafi búsetu í húsnæðinu. |
||
|
||
14. |
Hafnarstræti 11 Flateyri- 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Lögð er fram umsagnarbeiðni sýslumannsins á Vestfjörðum um umsókn Gunnukaffis ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingastað að Hafnarstræti 11 í flokki II, dags. 14. júní sl. ásamt umsögn Axels Rodriquez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar, dags. 23. júní sl. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
||
|
||
15. |
Silfurtorg 1- 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Lögð er fram umsagnarbeiðni sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 14. júní sl., um umsókn Kristínar Hálfdánsdóttur um rekstrarleyfi fyrir gististað að Silfurtorgi 1 í flokki I ásamt umsögn Axels Rodriguez Överby, skipulags- og byggingarfulltrúa Ísafjarðarbæjar, dags. 23. júní sl. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins, en vekur athygli á að sýslumaður skuli gæta þess að ákvæði 27. gr. laga nr. 26/1994 skuli uppfyllt, þ.e. að breyting á hagnýtingu séreignar í fjöleignarhúsi sé háð samþykki allra eigenda í fjöleignarhúsinu, sbr. dóm héraðsdóms Reykjavíkur í máli E-2597/2015. |
||
|
||
16. |
Leikskóladeild fyrir 5 ára börn í Skutulsfirði, ungbarnadeild og fleiri lausnir í dagvistarmálum - 2013010070 |
|
Margrét Halldórsdóttir mætir til fundarins til að gera grein fyrir leikskólamálum í Ísafjarðarbæ. |
||
Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, mætir til fundarins og gerir grein fyrir stöðu leikskólamála á Ísafirði. |
||
|
||
Gestir |
||
Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - 09:40 |
||
|
||
|
||
17. |
Deiliskipulag fyrir Suðureyrarmalir, Suðureyri - 2016010045 |
|
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingartillaga B verði samþykkt. Nefndin telur að breytingin varði einungis hagsmuni lóðarhafa Freyjugötu 6 og sé það óveruleg að ekki þurfi að auglýsa tillöguna aftur, þar sem öðrum lóðum, sem málið snertir hefur ekki verið úthlutað. |
||
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
18. |
Þverárvirkjun - aðalskipulagsbreyting - 2015110045 |
|
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt óbreytt frá auglýsingu. |
||
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
19. |
Kaldárvirkjun - aðalskipulagsbreyting - 2015110046 |
|
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt óbreytt frá auglýsingu. |
||
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
20. |
Fjallskilanefnd - 7 - 1606013F |
|
Lögð er fram fundargerð 7. fundar fjallskilanefndar sem haldinn var 20. júní sl., fundargerðin er í 1 lið. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
21. |
Hafnarstjórn - 185 - 1606018F |
|
Lögð er fram fundargerð 185. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 21. júní sl., fundargerðin er í 6 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
22. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 459 - 1606010F |
|
Lögð er fram fundargerð 459. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 22. júní sl., fundargerðin er í 8 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
23. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 30 - 1606016F |
|
Lögð er fram fundargerð 30. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 21. júní sl., fundargerðin er í 5 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:53
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |