Bæjarráð - 923. fundur - 21. mars 2016
Dagskrá:
1. |
Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Lögð er fram umsókn Gróu Maríu Böðvarsdóttur, um endurnýjun rekstrarleyfis Krúsarinnar veitingahúss, dags. 17. desember 2015, til umsagnar. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfis Krúsarinnar veitingahúss. |
||
|
||
2. |
Styrkir til félaga og félagasamtaka 2016 - 2016030018 |
|
Lagt er fram minnisblað Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, dags. 15. mars sl., varðandi afgreiðslu styrkja til félaga- og félagasamtaka til greiðslu á fasteignagjöldum 2016. |
||
Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra um afgreiðslu umsókna um styrki til félaga og félagasamtaka auk þess sem bæjarráð ákveður að þessu sinni jafnframt að veita þeim styrk sem þegar hafa sent inn umsókn um styrk. |
||
|
||
3. |
Fasteignagjöld á íbúðir í útleigu til ferðamanna, gististaði - 2015080010 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 18. mars sl., varðandi gististaði í Ísafjarðarbæ. |
||
Bæjarráð telur nauðsynlegt að gera viðeigandi breytingar á aðalskipulaginu og felur bæjarritara að gera tillögur að breytingum og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs. |
||
|
||
4. |
Heimsókn frá Võru í Eistlandi - 2016030058 |
|
Lagt fram minnisblað Hálfdáns Bjarka Hálfdánssonar, upplýsingafulltrúa varðandi beiðni um samstarf sveitarfélagsins við hóp handavinnufólks frá Eistlandi vegna heimsóknar 2017. |
||
Bæjarráð samþykkir tillögu Hálfdáns Bjarka Hálfdánssonar, upplýsingafulltrúa, um samstarf við Eistlendingafélag Íslands vegna heimsóknar árið 2017. |
||
|
||
5. |
Umsókn um aukningu á stöðugildum - 2016030047 |
|
Umsókn frá leikskólanum Eyrarskjóli um aukningu á stöðugildum. |
||
Bæjarráð óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun vegna tillögu fræðslunefndar um að hækka stöðugildi sérkennslustjóra í Eyrarskjóli í 85% ótímabundið og stuðningsfulltrúa í 60% tímabundið fram að sumarlokun leikskóla. |
||
|
||
Gestir |
||
Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs - 08:35 |
||
|
||
|
||
6. |
Mávagarður - Þybbu mannvirki - 2016030002 |
|
Hafnarstjórn telur rétt að vinna áfram eftir útfærslu Verkís og leggur til við bæjarstjórn að sú leið verði farin. |
||
Bæjarráð samþykkir að stálið í þybbuna verði boðið út, en óskar eftir að viðauki verði lagður fyrir bæjarráð vegna framkvæmdarinnar. |
||
|
||
7. |
Fræðslunefnd - 365 - 1603012F |
|
Fundargerð 365. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 17. mars sl., fundargerðin er í 8 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
Íþrótta- og tómstundanefnd - 167 - 1603009F |
|
Fundargerð 167. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 16. mars sl., fundargerðin er í 4 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
9. |
Félagsmálanefnd - 407 - 1603006F |
|
Fundargerð 407. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 15. mars sl., fundargerðin er í 6 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
10. |
Hafnarstjórn - 184 - 1603011F |
|
Fundargerð hafnarstjórnar frá 184. fundi sem haldinn var 15. mars sl. Fundargerðin er í 3 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:54
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Jónas Þór Birgisson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |