Bæjarráð - 921. fundur - 7. mars 2016
Dagskrá:
1. |
XXX. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016020019 |
|
Boðun XXX. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið verður 8. apríl 2016 í Reykjavík. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
2. |
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2016020019 |
|
Lagðar eru fram fundargerðir 835. og 836. funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldnir voru 29. janúar sl. og 26. febrúar sl. |
||
Bæjarráð tekur undir með Byggðaráði Dalvíkurbyggðar að lausn þurfi að finna á framlagi vegna sölu félagslegra eignaríbúða samhliða nýjum húsnæðisfrumvörpum ríkisstjórnarinnar. |
||
|
||
3. |
Þingsályktunartillaga um endurskoðun laga um lögheimili - 2016010027 |
|
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendi til umsagnar tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, 32. mál. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
Þingsályktunartillaga um hæfisskilyrði leiðsögumanna - 2016010027 |
|
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi til umsagnar tillögu til þingsályktunar um hæfisskilyrði leiðsögumanna, 275. mál. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
Snjómokstursreglur og mokstursleiðir í Ísafjarðarbæ - 2011110042 |
|
Lagt er fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, sviðstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 4. mars sl., um snjómokstursreglur og mokstursleiðir í Ísafjarðarbæ og umsagnir hverfisráða Ísafjarðarbæjar. |
||
Bæjarráð vísar tillögum að snjómokstursreglum til bæjarstjórnar. |
||
|
||
6. |
Asahláka í febrúar 2015 - vatnsflóð, lærdómsskýrsla, verksamningur við VSÓ ráðgjöf - 2015020033 |
|
Lagt er fram bréf Viðars Helgasonar og Sverris Jónssonar, f.h. fjármála- og efnahagsráðherra, dags. 2. mars sl., varðandi fjárframlag til að mæta kostnaði Ísafjarðarbæjar af vatnsflóðum í febrúar 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
Mánaðaryfirlit 2015 - 2015020081 |
|
Lagt er fram minnisblað Helgu Ásgeirsdóttur, frá 4. mars sl., með rekstraryfirliti desember 2015 og skatttekjum og launum janúar 2016. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
Gestir |
||
Helga Ásgeirsdóttir - 08:30 |
||
|
||
|
||
8. |
Hafnarstjórn - 183 - 1603001F |
|
Fundargerð 183. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 1. mars sl., fundargerðin er í 9 liðum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:40
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Þórdís Sif Sigurðardóttir |
|
|