Bæjarráð - 919. fundur - 22. febrúar 2016
Dagskrá:
1. |
Rekstur á lyftingaaðstöðu í Vallarhúsi - 2013060084 |
|
Íþrótta- og tómstundanefnd lagði til við bæjarráð á 166. fundi sínum að Vestri fengi yfirráð yfir Vallarhúsinu á Torfnesi. Gerður yrði samningur um notkun hússins til eins árs í upphafi. Nefndin fól starfsmanni að gera drög að samningi, í samstarfi við HSV fyrir hönd Vestra. Drög að samningnum verði lögð fyrir nefndina áður en hann verður undirritaður. |
||
Bæjarráð samþykkir að gerð verði drög að samningi við Vestra vegna Vallarhússins á Torfnesi. |
||
|
||
2. |
Uppbyggingarsamningar við íþróttafélög - 2015020007 |
|
Vísað frá 166. fundi íþrótta- og tómstundanefndar. Íþrótta- og tómstundanefnd lagði til við bæjarráð á 166. fundi sínum að gengið yrði til samninga við GÍ á grundvelli fjárhagsáætlunar 2016. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá sambærilegum uppbyggingarsamningi við GÍ og gerður var árið 2015. |
||
|
||
3. |
Ársskýrsla 2015 - Slökkvilið Ísafjarðarbæjar - 2016020049 |
|
Lögð er fram til kynningar ársskýrsla Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar 2015, sem unnin er af Þorbirni J. Sveinssyni, slökkviliðsstjóra í Ísafjarðarbæ. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
Úthlutun 2015 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - 2014090008 |
|
Lagt er fram bréf Elínar Pálsdóttur og Elínar Gunnarsdóttur, dags. 17. febrúar sl., um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Lagt er fram bréf Rósu Ólafsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 18. febrúar sl., ásamt umsókn Kristófers Loga Arnarsonar, dags. 2. febrúar sl., um rekstrarleyfi til sölu heimagistingar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
6. |
Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016 leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Lagt er fram bréf Rósu Ólafsdóttur, f.h. Sýslumannsins á Vestfjörðum, dags. 18. febrúar sl., ásamt umsókn Ískleif ehf., dags. 18. febrúar sl., um rekstrarleyfi til sölu íbúðagistingar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
BsVest - rekstur og mögulegar úrbætur í málaflokki fatlaðra - 2016020065 |
|
Lögð er fyrir skýrsla R3-Ráðgjafar ehf.: Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks, rekstur og mögulegar umbótaaðgerðir, sem útgefin var í janúar 2016, auk greinargerðar fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar vegna skýrslunnar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
Sundhöll Ísafjarðar Samkeppni - 2015090052 |
|
Lagðar eru fram tilnefningar Arkitektafélags Íslands að dómurum í dómnefnd í samkeppni um hönnun á Sundhöll Ísafjarðar og umhverfi hennar við Austurveg. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tilnefning Arkitektafélags Íslands á dómurum í dómnefnd í samkeppni um hönnun á Sundhöll Ísafjarðar verði samþykkt. |
||
|
||
9. |
Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 140 - 1602011F |
|
Fundargerð 140. fundar barnaverndarnefndar sem haldinn var 11. febrúar sl., fundargerðin er í 1 lið. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
10. |
Fræðslunefnd - 364 - 1602014F |
|
Fundargerð 364. fundar fræðslunefndar sem haldinn var 18. febrúar sl., fundargerðin er í 4 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
11. |
Hátíðarnefnd - 6 - 1602016F |
|
Fundargerð 6. fundar hátíðarnefndar sem haldinn var 16. febrúar sl., fundargerðin er í 3 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
Íþrótta- og tómstundanefnd - 166 - 1602010F |
|
Fundargerð 166. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 17. febrúar sl., fundargerðin er í 4 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:58
Sigurður Jón Hreinsson |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |