Bæjarráð - 914. fundur - 18. janúar 2016
Dagskrá:
1. |
Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Hörpu Grímsdóttur og Tómasar Jóhannessonar, f.h. Veðurstofu Íslands, frá 7. janúar sl. með svörum um fyrirspurn Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra varðandi stoðvirki í Kubba. |
||
Bæjarráð þakkar Veðurstofu Íslands fyrir svörin. Bæjarráð felur bæjarstjóra að halda fund með íbúum um kynningu á snjóflóðavörnum í Kubba og svara bréfi Gauta Geirssonar o.fl. frá 3. desember sl. |
||
|
||
2. |
Sundhöll Ísafjarðar Samkeppni - 2015090052 |
|
Í framhaldi ákvörðunar bæjarstjórnar frá 19. mars 2015 er komið að því að skipuð verði dómnefnd vegna fyrirhugaðrar samkeppni um hönnun á Sundhöll Ísafjarðar og umhverfi hennar við Austurveg. Í dómnefndinni verða 5 fulltrúar, þar af 3 frá Ísafjarðarbæ en 2 munu koma frá Arkitektafélagi Íslands. |
||
Daníel Jakobsson lagði fram eftirfarandi bókun: |
||
|
||
3. |
Endurmat á málefnum fatlaðs fólks - 2015080077 |
|
Lagt er fram bréf Sifjar Huldar Albertsdóttur, f.h. Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks, dags. 8. janúar sl. varðandi greiðslu Ísafjarðarbæjar á framlagi til Byggðasamlagsins. |
||
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar gagnrýnir harðlega þá niðurstöðu innanríkisráðherra, að fenginni tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs, að ekki beri að styðja fyllilega við málaflokk fatlaðs fólks á Vestfjörðum, heldur láta Vestfirsk sveitarfélög sitja uppi með ógreiddan reikninginn af þjónustunni. Þetta er þvert á þau fyrirheit sem gefin hafa verið Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Byggðasamlagi Vestfjarða um málefni fatlaðs fólk. Ekki verður unað við þessa niðurstöðu. |
||
|
||
4. |
Snjómokstursreglur og mokstursleiðir í Ísafjarðarbæ - 2011110042 |
|
Í-listi leggur til að tillaga tæknideildar Ísafjarðarbæjar um breytingar á snjómokstursreglum Ísafjarðarbæjar verði vísað til umsagnar í hverfisráðum sveitarfélagsins. |
||
Bæjarráð samþykkir tillögu Í-listans og felur bæjarstjóra að kynna tillögurnar með frekari hætti. |
||
|
||
5. |
Vinna um samræmda lóðaafmörkun - 2016010024 |
|
Bréf Guðjóns Bragasonar, sviðsstjóra lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, varðandi samræmda lóðaafmörkun. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
6. |
Sýslumaðurinn á Ísafirði - 2016leyfisveitingar, rekstrarleyfi - 2016010026 |
|
Lögð er fram umsókn Kristínar Pétursdóttur, dags. 27. nóvember sl., um rekstrarleyfi til sölu gistingar í flokki II að Sæbóli 3, Ingjaldssandi. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2016 - 2016010036 |
|
Lögð fram drög að viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna hækkunar stöðugildis á leikskólanum Eyrarskjóli. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera lokadrög að viðaukanum og leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur. |
||
|
||
8. |
Húsbyggingasjóður Þroskahjálpar. - 2012090046 |
|
Lagður fram tölvupóstur frá Árna Múla Jónassyni, framkvæmdastjóra Landssamtaka Þroskahjálpar frá 15. janúar sl. varðandi byggingu fjölbýlishúss fyrir Þroskahjálp. |
||
Bæjarráði þykir leitt að Þroskahjálp skuli draga sig út úr málinu þegar það er loksins komið rekspöl. |
||
|
||
9. |
Hátíðarnefnd - 3 - 1601007F |
|
Lögð fram fundargerð 3. fundar hátíðarnefndar sem haldinn var 12. janúar sl. Fundargerðin er í einum lið. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
10. |
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 130 - 1601005F |
|
Lögð fram fundargerð 130. fundar atvinnu- og menningarmálanefndar sem haldinn var 12. janúar sl. Fundargerðin er í einum lið. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
11. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 448 - 1601001F |
|
Lögð fram fundargerð 448. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 13. janúar sl. Fundargerðin er í 8 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
Félagsmálanefnd - 405 - 1601009F |
|
Lögð fram fundargerð 405. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 14. janúar sl. Fundargerðin er í 6 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |