Bæjarráð - 911. fundur - 14. desember 2015
Dagskrá:
1. |
Snjómokstursreglur og mokstursleiðir í Ísafjarðarbæ - 2011110042 |
|
Á 23. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar vísaði nefndin tillögum tæknideildar Ísafjarðarbæjar um breytingu á snjómokstursreglum til bæjarstjórnar og lagði til að þær yrðu samþykktar með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
2. |
Endurskoðun erindisbréfa - 2012110034 |
|
Á 23. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar lagði nefndin til við bæjarstjórn að tillögur upplýsingafulltrúa um breytingu á erindisbréfi nefndarinnar og bæjarmálasamþykktum og drög að erindisbréfi fjallskilanefndar yrðu samþykktar með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Fjármögnun Eyrar Hjúkrunarheimilis - 2014090018 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Valdimars Svavarssonar hjá Virðingu, frá 2. desember sl., auk viðauka við veðsamning dags. 28. júlí sl. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi skjöl fyrir hönd Ísafjarðarbæjar. |
||
|
||
4. |
Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048 |
|
Lagt er fram bréf Önundar Jónssonar, f.h. íbúa Kjarrholts, dags. 5. desember sl., vegna snjóflóðavarna í Kubba. |
||
Bæjarráð þakkar bréfriturum fyrir áréttingar og bendir á að málið er í ferli. |
||
|
||
5. |
Dagverðardalur 3 - byggingarleyfi - 2012060005 |
|
Lagt er fram bréf Hjördísar Stefánsdóttur f.h. innanríkisráðherra, dags. 26. nóvember sl., með upplýsingum um stjórnsýslukæru. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu. |
||
|
||
6. |
Brennur, flugeldasölur og flugeldasýningar 2015 - 2015120029 |
|
Lagðar eru fram eftirfarandi umsóknir: |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknirnar. |
||
|
||
7. |
Hafnarstjórn - 182 - 1512005F |
|
Fundargerð 182. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 8. desember sl., fundargerðin er í 3 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 447 - 1512002F |
|
Fundargerð 447. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 11. desember sl., fundargerðin er í 5 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
9. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 23 - 1511023F |
|
Fundargerð 23. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 10. desember sl., fundargerðin er í 3 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:35
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Jónas Þór Birgisson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |