Bæjarráð - 904. fundur - 26. október 2015
Dagskrá:
1. |
Verkefni sem vísað er til bæjarstjóra af bæjarráði og bæjarstjórn - 2014100021 |
|
Lagður er fram til umræðu verkefnalisti bæjarstjóra. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
Helga Ásgeirsdóttir, staðgengill fjármálastjóra, mætti til fundarins undir þessum lið kl. 8:17. |
||
2. |
Mánaðaryfirlit 2015 - 2015020081 |
|
Lagt er fram mánaðaryfirlit Ísafjarðarbæjar sem tekið er saman í október 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
|
||
3. |
Innkaupareglur Ísafjarðarbæjar - endurskoðun 2014/2015 - 2014050024 |
|
Lögð er fram tillaga að breytingum á innkaupareglum Ísafjarðarbæjar. |
||
Málið verður aftur tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs. |
||
|
||
4. |
Tillaga frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins varðandi ársfjórðungsuppgjör og fjölgun starfsmanna í bókhaldi - 2015080056 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 23. október sl., um 9 mánaða uppgjör 2015. |
||
Bæjarráð samþykkir að gert verði 9 mánaða uppgjör samstæðu Ísafjarðarbæjar af utanaðkomandi aðila. |
||
|
||
5. |
Snjóflóðavarnir undir Kubba, framkvæmdaleyfi. - 2010120048 |
|
Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, dags. 21. október sl., varðandi ofanflóðavarnir í Kubba. |
||
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við Ofanflóðasjóð að hafist verði handa við næsta áfanga í ofanflóðavörnum við Holtahverfi. |
||
|
||
6. |
Rekstur LRÓ 2015-2016 - 2015090059 |
|
Tekið er fyrir að nýju erindi LRÓ frá 902. fundi bæjarráðs og lagt fram skjal með áhrifum hækkunar framlagsins til LRÓ á fjárhagsáætlun. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við málið. |
||
|
||
7. |
Kaup á vélsleða á skíðasvæðið - 2015100048 |
|
Lagt er fram minnisblað Margrétar Halldórsdóttur, sviðstjóra skóla- og tómstundasviðs, dags. 23. október sl., með beiðni um kaup á vélsleða. |
||
Bæjarráð samþykkir beiðni um kaup á vélsleða fyrir skíðasvæðið. |
||
|
||
8. |
Byggðakvóti fiskveiðiárið 2015/2016 - 2015090027 |
|
Lagt er fram bréf Hinriks Greipssonar og Jóhanns Guðmundssonar, f.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, dags. 20. október sl., með niðurstöðu um úthlutun byggðakvóta til Ísafjarðarbæjar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
9. |
Hátíðarnefnd í tengslum við 20 ára afmæli Ísafjarðarbæjar og 150 kaupstaðarafmæli Ísafjarðar - 2015090060 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, frá 23. október sl., vegna afmælis Ísafjarðar og Ísafjarðarbæjar 2016. |
||
Bæjarráð vísar beiðninni til fjárhagsáætlunar 2016. |
||
|
||
10. |
Suðureyri - óveruleg breyting á aðalskipulagi - 2015100006 |
|
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 verði samþykkt og að farið verði með aðalskipulagsbreytinguna skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem einungis er um fjölbreyttari landnotkun að ræða. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna. |
||
|
||
11. |
Deiliskipulag á Suðurtanga, Ísafirði - 2011020059 |
|
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir heimild Skipulagsstofnunar til birtingar deiliskipulags Suðurtanga, Ísafirði, í B-deild Stjórnartíðinda. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna. |
||
|
||
12. |
Dagverðardalur 16 - stofnun lóðar - 2015100033 |
|
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðin Dagverðardalur 16 verði stofnuð. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna. |
||
|
||
13. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 444 - 1510006F |
|
Fundargerð 444. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 21. október sl., fundargerðin er í 7 liðum. |
||
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:47
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |