Bæjarráð - 902. fundur - 12. október 2015
Dagskrá:
1. |
Verkefni sem vísað er til bæjarstjóra af bæjarráði og bæjarstjórn - 2014100021 |
|
Lagður er fram verkefnalisti bæjarstjóra sem vinnuskjal. |
||
Bæjarstjóri fer yfir verkefni sem vísað hefur verið til hans af bæjarráði. |
||
|
||
2. |
Tillaga að fjárfestingu Hverfisráðs Önundarfjarðar 2015 - 2011030002 |
|
Lögð er fram tillaga Hverfisráðs Önundarfjarðar, frá fundi ráðsins 23. september sl. Lagt er fram minnisblað Brynjars Þórs Jónassonar, dags. 9. október sl. |
||
Bæjarráð samþykkir tillögu Hverfisráðs Önundarfjarðar um uppsetningu á ærslabelg á Flateyri og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram. |
||
|
||
3. |
Ágóðahlutagreiðsla 2015 - 2015100019 |
|
Lagt er fram bréf Önnu Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands, dags. 6. október sl., varðandi ágóðahlutagreiðslu 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
Aðalgata, Suðureyri, akstursstefna - 2014090031 |
|
Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, dags. 8. október sl., vegna tvístefnu á Aðalgötu, Suðureyri. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gerð sé tillaga til lögreglustjórans á Vestfjörðum um að Aðalgötu á Suðureyri verði breytt í tvístefnugötu í samráði við tæknideild Ísafjarðarbæjar og hverfisráð Súgandafjarðar. |
||
|
||
5. |
Troðaramál á skíðasvæðum Ísfirðinga - 2015070043 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, frá 7. október sl., þar sem óskað er eftir staðfestingu bæjarráðs á sölu troðara af skíðasvæðum Ísfirðinga. |
||
Bæjarráð samþykkir sölu á Leithner LH500 troðara skíðasvæðis Ísfirðinga samkvæmt framlögðum gögnum. |
||
|
||
6. |
Rekstur LRÓ 2015-2016 - 2015090059 |
|
Tekið er aftur fyrir erindi Listaskóla Rögvnaldar Ólafssonar um beiðni um leiðréttingu á styrk til skólans skólaárið 2014-2015, en erindið var tekið fyrir á 899. fundi bæjarráðs og bæjarstjóra falið að vinna að leggja erindið fram að nýju. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa viðauka vegna málsins. |
||
|
||
7. |
Samruni Landsbankans hf. og Sparisjóðs Norðurlands. - 2015090087 |
|
Lagt er fram til kynningar bréf Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans hf., dags. 23. september sl., vegna framvæmdar uppgjörs vegna samruna Landsbankans hf. og Sparisjóðs Norðurlands ses. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
Þáttaröðin Að vestan - N4 - 2015100007 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Maríu Bjarkar Ingvadóttur, framkvæmda- og framleiðslustjóra N4 Sjónvarps, frá 24. september sl., þar sem kynnt er tillaga að þáttaröðinni Að vestan. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
9. |
Trúnaðarmál á stjórnsýslusviði - 2014090027 |
|
Lögð eru fram gögn vegna trúnaðarmáls. |
||
Bókun er færð í trúnaðarmálabók bæjarráðs. |
||
|
||
10. |
Fyrirspurn varðandi fjallskilanefnd - 2015100024 |
|
Lögð er fram fyrirspurn Helgu Dóru Kristjánsdóttur varðandi skipun fjallskilanefndar. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni. |
||
|
||
14. |
Ljósleiðari - Holt-Ingjaldssandur, Önundarfirði - 2015090051 |
|
Skipulags- og mannvirkjanefnd lagði til við bæjarstjórn á 443. fundi sínum að framkvæmdaleyfi verði samþykkt að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í umsögnum og að leiðin verði stikuð úr botni Valþjófsdals upp á Klúkuheiði og niður Brekkudal áður en framkvæmdir hefjast. Nefndin telur að framkvæmdin rúmist innan stefnu aðalskipulags Ísafjarðarbæjar 2008-2020, lagnaleiðin verður færð inn á aðalskipulagsuppdráttinn við endurskoðun. |
||
Bæjarráð samþykkir samhljóða að tillögu bæjarstjóra að veita framkvæmdaleyfið með þeim skilyrðum sem skipulags- og mannvirkjanefnd hefur sett. |
||
|
||
11. |
Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla - 2013030023 |
|
Lögð er fram fundargerð Framkvæmdasýslu ríkisins vegna Ofanflóðavarna Ísafirði, byggðar neðan Gleiðarhjalla frá 1. október sl. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 443 - 1509019F |
|
Fundargerð 443. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 7. október sl., fundargerðin er í 6 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
13. |
Hverfisráð Önundarfjarðar - 2011030002 |
|
Lögð er fram fundargerð Hverfisráðs Önundarfjarðar 23. september sl. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:08
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Helga Dóra Kristjánsdóttir |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |