Bæjarráð - 900. fundur - 28. september 2015
Dagskrá:
1. |
Endurbætur á bílskúrum við Fjarðarstræti 20, tillaga - 2015080079 |
|
Lagt fram bréf frá Birni S Hallssyni, arkitekt, dagsett 8. september sl., þar sem hann óskar eftir umræðu um kaup á skúrbyggingum að Fjarðarstræti 20. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um málið. |
||
|
||
2. |
Málefni kirkjugarða - 2013100065 |
|
Lagt fram bréf Björns Baldurssonar, formanns sóknarnefndar Ísafjarðarsóknar, dagsett 2. september sl., þar sem óskað er eftir að bærinn taki til athugunar að koma að uppsetningu lýsingar á göngustígum í Réttarholtskirkjugarði. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna umfang umbeðinnar aðstoðar. |
||
|
||
3. |
Aðalstræti 7, Edinborgarhúsið, Hönnun og frágangur lóðar - 2015090068 |
|
Lagt er fram bréf Matthildar Helgadóttur og Jónudóttur, rekstrar- og viðburðarstjóra Edinborgarhússins ehf., dags. 10. september sl., vegna lóðar við Edinborgarhúsið. |
||
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum og vísar beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2016. |
||
|
||
4. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2015 - 2015020078 |
|
Lagður fram tölvupóstur Sigrúnar Helgu Sigurjónsdóttur, ritara nefndasviðs Alþingis, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um byggingarsjóð Landspítala (heildarlög), 4. mál. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
Fjórðungssamband Vestfirðinga - ýmis mál og fundargerðir 2014/2015 - 2014090054 |
|
Lögð fram fundargerð stjórnarfundar Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldinn var 17. september sl. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
6. |
Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, framkvæmdaleyfi. - 2013030023 |
|
Lagt fram bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytis, dags. 18. september sl., þar sem upplýst er að ofanflóðasjóður taki þátt í kostnaði vegna viðgerða að Urðarvegi 76, sem skemmdist í asahláku í febrúar sl. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
Fjármögnun Eyrar Hjúkrunarheimilis - 2014090018 |
|
Lagt fram bréf velferðarráðuneytis, dagsett 21. september sl., ásamt undirritaðri yfirlýsingu um samþykki til veðsetningar hjúkrunarheimilisins Eyrar, sbr. ákvæði í viðaukasamningi um byggingu og þátttöku í leigu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða í Ísafjarðarbæ. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
Fyrirspurn vegna afgreiðslu erinda - 2015090046 |
|
Lögð fram fyrirspurn Jónasar Þórs Birgissonar, bæjarfulltrúa sjálfstæðisflokks, er barst í tölvupósti 23. september sl., þar sem hann óskar eftir upplýsingum um afgreiðslu máls hjá Ísafjarðarbæ. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni. |
||
|
||
9. |
Trúnaðarmál. - 2015090080 |
|
Lagt fram trúnaðarmál. |
||
Bókun er færð í trúnaðarmálabók bæjarráðs. |
||
|
||
10. |
Þingmannafundur með Fjórðungssambandi Vestfirðinga - 2014090054 |
|
Lagður fram tölvupóstur Aðalsteins Óskarssonar f.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga þar sem boðað er til þingmannafundar í Félagsheimilinu á Patreksfirði 1. október nk. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
Helga Ásgeirsdóttir mætti til fundarins kl. 08:50 og yfirgaf fundinn kl. 08:57. |
||
11. |
Mánaðaryfirlit 2015 - 2015020081 |
|
Lagt er fram rekstaryfirlit fyrir júlí 2015. Einnig er lagt fram yfirlit á skatttekjum og launum fyrir ágúst 2015 af Helgu Ásgeirsdóttur, staðgengli fjármálastjóra dags 25. september 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
Aðstaða til inniklifuræfinga á Ísafirði - 2015090069 |
|
Lagður fram tölvupóstur Örvars Dóra Rögnvaldssonar, dagsettur 21. september sl., þar sem óskað er eftir viðræðum við bæjaryfirvöld vegna aðstöðu til inniklifuræfinga á Ísafirði. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til íþrótta- og tómstundanefndar. |
||
|
||
13. |
Beiðni Aflsins um styrk - 2015010017 |
|
Lagður fram tölvupóstur Sigrúnar Friðfinnsdóttur f.h. Aflsins, dagsettur 25. september 2015, þar sem óskað er eftir styrk vegna starfsemi félagsins. |
||
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu. |
||
|
||
Arna Lára og Þórdís yfirgáfu fundinn undir þessum dagskrárlið. |
||
14. |
Beiðni Í kjölfar Bríetar um styrk - 2015010017 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Ásgerðar Þorleifsdóttur, f.h. Í kjölfar Bríetar, frá 24. september sl. þar sem óskað er eftir styrk vegna ráðstefnu sem haldin verður 23-25. október n.k. |
||
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 50 þúsund krónur. |
||
|
||
16. |
Lokanir afgreiðslustöðva Landsbankans í Bolungarvík, Suðureyri og Þingeyri - 2015090065 |
|
Umræður um aðgerðir Landsbankans um lokanir afgreiðslustöðva á Suðureyri, Þingeyri og í Bolungarvík. |
||
Formaður bæjarráðs skýrði frá fundi hennar og bæjarstjóra með Einari Kristni Guðfinnssyni og Gunnari Braga Sveinssyni, þingmönnum kjördæmisins, síðastliðinn föstudag þar sem rætt var um aðgerðir í framhaldi af lokun útibúa Landsbankans á Vestfjörðum. Þar var ákveðið að vinna hratt í málinu á næstu tveimur vikum. |
||
|
||
15. |
Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, framkvæmdaleyfi. - 2013030023 |
|
Lögð fram fundargerð verkfundar nr. 31 vegna ofanflóðavarna neðan Gleiðarhjalla á Ísafirði, dagsett 17. september sl. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
17. |
Félagsmálanefnd - 401 - 1509015F |
|
Lögð fram fundargerð 401. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 24. september sl. Fundargerðin er í 9 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
18. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 442 - 1509005F |
|
Lögð fram fundargerð 442. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 23. september sl. Fundargerðin er í 8 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:35
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Jónas Þór Birgisson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |