Bæjarráð - 897. fundur - 7. september 2015
Dagskrá:
1. |
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga - 2015010049 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Magnúsar Karels Hannessonar, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 1. september n.k. um fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
2. |
Lokun efnislosunarsvæðis - 2015090001 |
|
Lagt er fram bréf Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur, skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 1. september sl., þar sem tilkynnt er um lokun efnislosunarsvæðis í fjörunni við Hnífsdalsveg. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Aðalfundur Hvetjanda 2015 - 2015090010 |
|
Lagt er fram fundarboð vegna aðalfundar Hvetjanda hf., sem haldinn verður 16. september n.k. kl. 11:00 á Hótel Ísafirði. |
||
Bæjarráð felur Örnu Láru Jónsdóttur að mæta á fundinn fyrir hönd Ísafjarðarbæjar. |
||
|
||
4. |
Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2015 - 2015090016 |
|
Lögð er fram frétt um dag íslenskrar náttúru sem haldinn verður hátíðlegur 16. september n.k. og óskað eftir upplýsingum um viðburði, verkefni og uppákomur sem efnt er til í tilefni dagsins. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
Tillaga frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins varðandi ársfjórðungsuppgjör og fjölgun starfsmanna í bókhaldi - 2015080056 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, dags. 3. september n.k., með umsögn um tillögu fulltrúa sjálfstæðisflokksins varðandi ársfjórðungsuppgjör og fjölgun starfsmanna í bókhaldi Ísafjarðarbæjar. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fá tilboð í ársfjórðungsuppgjör og koma með drög að viðauka. Tillaga um fjölgun starfsmanna í bókhaldsdeild bæjarins er vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2016. |
||
|
||
6. |
Tillaga um að Ísafjarðarbær kaupi íbúðir á Hlíf I - 2015080081 |
|
Lögð er fyrir tillaga Marzellíusar Sveinbjörnssonar um kaup íbúða á Hlíf I, sem frestað var á 364. fundi bæjarstjórnar. |
||
Bæjarráð felur Marzellíusi Sveinbjörnssyni að umorða tillöguna og leggja fram að nýju á næsta bæjarráðsfundi. |
||
|
||
7. |
Strandblakvellir í Tungudal - umsókn um framkvæmdaleyfi - 2015060080 |
|
Umsókn blakfélagsins Skells um framkvæmdaleyfi sem lögð var fyrir á 895. fundi bæjarráðs lögð aftur fyrir bæjarráð til afgreiðslu. |
||
Bæjarráð vísar umsókninni um framkvæmdaleyfi til bæjarstjórnar. |
||
|
||
8. |
Framtíðarhúsnæði fyrir skjalasafnið - 2014050036 |
|
Lagt er fram minnisblað Jónu Símoníu Bjarnadóttur og Brynjars Þórs Jónassonar, dags. 4. september sl., með svari við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins varðandi skjalageymslur Ísafjarðarbæjar. |
||
Daníel Jakobsson, fulltrúi sjálfstæðisflokksins í bæjarráði leggur fram eftirfarandi bókun: |
||
|
||
9. |
Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, framkvæmdaleyfi. - 2013030023 |
|
Lögð er fram fundargerð Ofanflóðavarna Ísafjarðar, byggða neðan Gleiðarhjalla, frá 20. ágúst 2015. |
||
Lögð fram til kynnningar. |
||
|
||
10. |
Fundargerðir Fjórðungssamband Vestfirðinga - 2014090054 |
|
Lagðar eru fram fundargerðir stjórnarfunda Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldnir voru 3. júlí sl. og 20. ágúst sl. |
||
Lagðar fram til kynningar. |
||
|
|
|
11. |
Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 136 - 1508004F |
|
Lögð er fram fundargerð 136. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum, sem haldinn var 17. ágúst sl., fundargerðin er í 1 lið. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
Íþrótta- og tómstundanefnd - 159 - 1508016F |
|
Lögð er fram fundargerð 159. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 2. september sl., fundargerðin er í 5 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |