Bæjarráð - 891. fundur - 29. júní 2015
Dagskrá:
1. |
Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048 |
|
Rætt verður um næstu skref fjárhagsáætlunar 2016. |
||
Umræður fóru fram í kjölfar vinnufundar sem haldinn var fimmtudaginn 25. júní 2015. Vinna við gerð fjárhagsáætlunar heldur áfram í sumar. |
||
|
||
2. |
Sýslumaðurinn á Ísafirði - leyfisveitingar 2015 - 2015010098 |
|
Lögð er fram umsókn Sigurrósar Sigurðardóttur um endurnýjun rekstrarleyfis gistiskála í Sútarabúðum í Grunnavík, dags. 3. júní sl., ásamt umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 23. júní sl. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun leyfisins. |
||
|
||
3. |
Sýslumaðurinn á Ísafirði - leyfisveitingar 2015 - 2015010098 |
|
Lögð er fram umsókn Litlabýlis Guesthouse ehf. um rekstrarleyfi gistiheimilis í flokki II að Eyrarvegi 13, Flateyri, dags. 23. júní sl., ásamt umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 23. júní sl. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. |
||
|
||
4. |
Ungmennaráð og öldungaráð - Endurskoðun bæjarmálasamþykktar Ísafjarðarbæjar - 2012120018 |
|
Lagðar eru fram tillögur að breytingum á samþykktum um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar vegna öldungaráðs og ungmennaráðs til annarrar umræðu. |
||
Bæjarráð samþykkir breytingarnar á samþykktum um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar. |
||
|
||
5. |
Fráveituútrásír á Þingeyri - 2011010046 |
|
Lagt er fram bréf Brynjars Þórs Jónassonar, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 22. júní sl., þar sem lagt er til að samið verði við Vestfirska verktaka ehf. um verkið "Fráveituútrásir á Þingeyri". |
||
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Vestfirska verktaka ehf. um verkið "Fráveituútrásir á Þingeyri" að uppfylltum skilyrðum innkaupareglna Ísafjarðarbæjar og að verkefnið verði minnkað í samráði við umhverfisfulltrúa. |
||
|
||
6. |
Listamannaþing 2015 - 2015050021 |
|
Lagt er fram bréf Félags vestfirskra listamanna, sem barst 22. júní sl., þar sem Félag vestfirskra listamanna hvetur Ísafjarðarbæ til að halda barnamenningarhátíð á Vestfjörðum. |
||
Þökkum Félagi vestfirskra listamanna fyrir erindið. Bæjarráð vísar erindinu til atvinnu- og menningamálanefndar að fengnum tillögum íþrótta- og tómstundafulltrúa. |
||
|
||
7. |
Vestfjarðavíkingurinn 2015 - 2015020099 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 26. júní sl., þar sem fram kemur tillaga Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra um að bæjarráð samþykki styrkveitingu að fjárhæð kr. 200.000,- til Vestfjarðavíkingsins 2015. |
||
Bæjarráð samþykkir að veita Vestfjarðavíkingnum umbeðinn styrk. |
||
|
||
8. |
Hlaupahátíð á Vestfjörðum 2012-2015 - 2012070021 |
|
Lagt er fram bréf Guðbjargar Rósar Sigurðardóttur, f.h. stjórnar Hlaupahátíðar á Vestfjörðum, dags. 24. júní sl. þar sem óskað er stuðnings við Hlaupahátíðina á Vestfjörðum. |
||
Bæjarráð samþykkir að styrkja Hlaupahátíðina á Vestfjörðum um kr. 50.000,- og veita aðra aðstoð í samráði við bæjarstjóra. |
||
|
||
9. |
Útboð á fjármögnun Eyrar Hjúkrunarheimilis - 2014090018 |
|
Lagt er fram tilboð í endurfjármögnun á Hjúkrunarheimilinu á Ísafirði, þar sem Ísafjararbær gæfi út skuldabréf að fjárhæð 1,1 milljarður króna. Lagt er til að bæjarráð samþykki tilboð í útgáfu og sölu skuldabréfs vegna hjúkrunheimilis með veði í fasteigninni Eyri og leigutekjum sbr. ákvæði tilboðsins og að bæjarstjóra verði falið að vinna að frágangi málsins. |
||
Bæjarráð samþykkir tilboð í fjármögnun með útgáfu og sölu skuldabréfs vegna hjúkrunarheimilis að fjárhæð kr. 1.100.000.000,- með veði í fasteigninni Eyri (fastnr. 233-6788) og leigutekjum sbr. ákvæði tilboðs. Bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita nauðsynleg gögn og falið að vinna að frágangi málsins. |
||
|
||
10. |
Skráning fasteigna og fasteignamat 2012-2015 - Tilkynningar - 2011100014 |
|
Lagt er fram bréf Margrétar Hauksdóttur, forstjóra Þjóðskrár Íslands, dags. 24. júní sl., vegna fasteignamats 2016. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
11. |
Ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla, framkvæmdaleyfi. - 2013030023 |
|
Lögð er fram til kynningar fundargerð fundar Framkvæmdasýslu ríkisins sem haldinn var 11. júní sl., vegna ofanflóðavarna Ísafirði, byggðar neðan Gleiðarhjalla. |
||
Rætt var um hvort fráveitukerfi Ísafjarðar ráði við það aukna magn sem mun fara í gegn um lagnirnar eftir að ofanflóðavörnum lýkur og felur bæjarstjóra að senda erindi til ofanflóðasjóðs vegna þessa. |
||
|
||
Gestir |
||
Brynjar Þór Jónasson, sviðstjóri umhverfis- og eignasviðs - 08:42 |
||
Brynjar Þór yfirgefur fundinn kl. 09:02 |
||
|
||
12. |
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 437 - 1506018F |
|
Fundargerð 437. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 24. júní sl., fundargerðin er í 6 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
13. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 15 - 1506014F |
|
Fundargerð 15. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar sem haldinn var 25. júní sl., fundargerðin er í 1 lið. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
14. |
Fundargerðir nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis - 2014080051 |
|
Fundargerð 47. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis sem haldinn var 18. júní sl., fundargerðin er í 4 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:10
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Jónas Þór Birgisson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |