Bæjarráð - 889. fundur - 15. júní 2015
Dagskrá:
1. |
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2015 - 2015010094 |
|
Lögð eru fram drög að 8. viðauka við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2015 vegna ýmsa leiðréttinga. |
||
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur. |
||
|
||
2. |
Mánaðaryfirlit 2015 - 2015020081 |
|
Lögð eru fram drög að rekstraryfirliti fyrir apríl 2015. Einnig er lagt fram yfirlit á skatttekjum og launum fyrir maí 2015 af Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra og Helgu Ásgeirsdóttur dags. 12. júní 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Stefnumótun í atvinnumálum Ísafjarðarbæjar - 2010080057 |
|
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fjármagn í eftirfarandi verkefni Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða á grundvelli samnings Ísafjarðarbæjar og Atvinnuþróunarfélagsins um atvinnuþróunarverkefni: |
||
Bæjarráð samþykkir úthlutunina á grundvelli samningsa Ísafjarðarbæjar og Atvinnuþróunarfélagsins um atvinnuþróunarverkefni. |
||
|
||
4. |
Lokun stofnana í tilefni 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna - 2014080014 |
|
Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra, dags. 11. júní sl., varðandi veitingu leyfis og lokun leikskóla eftir hádegi 19. júní n.k. |
||
Bæjarráð samþykkir að veita öllu starfsfólki leikskóla frí frá kl. 13:00 19. júní n.k. til að fagna þessum viðburði sem mun ekki koma aftur í Íslandssögunni og til þess að verða við tilmælum ríkisstjórnarinnar. |
||
|
||
5. |
Skipulagning á bæjarskrifstofu - 2015060049 |
|
Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, bæjarritara, dags. 12. júní sl., um lokun bæjarskristofu Ísafjarðarbæjar 13. júlí - 3. ágúst. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við þá tilhögun að bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar sé lokað í 3 vikur á tímabilinu 13. júlí - 3. ágúst. |
||
|
||
|
||
6. |
Jafnréttisáætlun og jafnlaunakönnun - 2010050008 |
|
Félagsmálanefnd samþykkir jafnréttisáætlunina með áorðnum breytingum og leggur til við bæjarstjórn að hún verði samþykkt. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stefnuna. |
||
|
||
7. |
Hátíðargróðursetning 27. júní 2015 - 2015060034 |
|
Lagt er fram boð Gísla Eiríkssonar, formanns Skógræktarfélags Ísafjarðar, dags. 8. júní sl. á hátíðargróðursetningu 27. júní n.k. |
||
Bæjarráð þakkar erindið og hvetur alla til að mæta. |
||
|
||
8. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2015 - 2015020078 |
|
Lögð er fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um eflingu brothættra byggða og byggðafestu veiðiheimilda, 588. mál, þingskjal 1020. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
9. |
Raggagarður - Samstarfssamningur, styrkur - 2015040005 |
|
Lagt er fram bréf Vilborgar Arnarsdóttur, framkvæmdastjóra f.h. Raggagarðs, dags. 5. maí sl. þar sem óskað er eftir framlagi vinnuskóla Ísafjarðar við vinnu í Raggagarð. |
||
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að gera nauðsynlegar ráðstafanir. |
||
|
||
10. |
Verkefni nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu - 2014080062 |
|
Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu leggur til við bæjarstjórn drög að samþykktum um öldungaráð Ísafjarðarbæjar verði samþykktar. Nefndin leggur enn fremur til að breytingar verði gerðar á bæjarmálasamþykktinni til samræmis við samþykktir þessar. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við erindið. |
||
|
||
11. |
Verkefni nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu - 2014080062 |
|
Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu leggur til við bæjarstjórn að drög að samþykktum um ungmennaráð Ísafjarðarbæjar verði samþykktar. Nefndin leggur enn fremur til að breytingar verði gerðar á bæjarmálasamþykktinni til samræmis við samþykktir þessar. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við erindið. |
||
|
||
12. |
Sparisjóður Norðurlands - aðalfundur 2015 - 2015060029 |
|
Lagt er fram fundarboð vegna aðalfundar Sparisjóðs Norðurlands ses. sem haldinn verður 22. júní n.k. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mæta til fundarins í umboði Ísafjarðarbæjar. |
||
|
||
13. |
Styrktarsjóður EBÍ 2015 - 2015020086 |
|
Lagt er fram fundarboð vegna aðalfundar Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands, sem verður haldinn 23. september n.k. |
||
Bæjarráð felur Jónu Benediktsdóttur, kjörnum fulltrúa Ísafjarðarbæjar í fulltrúaráði Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands, að mæta til fundarins. |
||
|
||
14. |
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 126 - 1506007F |
|
Fundargerð 126. fundar atvinnu- og menningarmálanefndar sem haldinn var 11. júní sl., fundurinn er í 7 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. Góðar umræður sköpuðust á fundinum. |
||
|
||
15. |
Félagsmálanefnd - 398 - 1506001F |
|
Fundargerð 398. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 2. júní sl., fundargerðin er í 3 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
16. |
Félagsmálanefnd - 399 - 1506009F |
|
Fundargerð 399. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 11. júní sl., fundargerðin er í 6 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
||
17. |
Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu - 5 - 1506005F |
|
Fundargerð 5. fundar nefndar íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu sem haldinn var 5. júní sl., fundargerðin er í 2 liðum. |
||
Lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:03
Kristján Andri Guðjónsson |
|
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
Jónas Þór Birgisson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |