Bæjarráð - 885. fundur - 11. maí 2015
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari.
Dagskrá:
1. |
Hverfisráð Ísafjarðarbæ - 2011030002 |
|
Lögð er fram fyrirspurn Aðalsteins Egils Traustasonar, f.h. hverfisráðs Súgandafjarðar, sem barst 5. maí sl. |
||
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu. |
||
|
||
2. |
Almennar styrkbeiðnir og styrktarlínur 2015 - 2015010017 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Berglindar Helgadóttur, verkefnastjóra Dags Myndlistar, þar sem óskað er eftir ferðastyrk til að halda kynningu um starf myndlistarmannsins í skólum sveitarfélagsins. |
||
Bæjarráð hafnar erindinu. |
||
|
||
3. |
Sýslumaðurinn á Ísafirði - leyfisveitingar 2015 - 2015010098 |
|
Lögð er fram umsókn Guðríðar Guðmundsdóttur um rekstrarleyfi til heimagistingar að Hlíðarvegi 14, Ísafirði ásamt umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa, dags. 6. maí sl. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfisins. |
||
|
||
4. |
LÚR-festival 2015, óskað eftir styrk - 2015040004 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Ólafar Dómhildar Jóhannsdóttur, frá 20. apríl sl., með þeim upplýsingum sem óskað var eftir á 881. fundi bæjarráðs. |
||
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að finna því stað innan fjárhagsáætlunar. |
||
|
||
5. |
Héraðsþing HSV 2015 - 2015050011 |
|
Lagt er fram boðsbréf Guðnýjar Stefaníu Stefánsdóttur, formanns HSV, dags. 6. maí sl., þar sem Héraðssamband Vestfirðinga býður bæjarfulltrúum Ísafjarðarbæjar á héraðsþing sitt sem haldið verður 20. maí n.k. |
||
Bæjarráð þakkar boðið og hvetur bæjarfulltrúa eindregið til að þiggja boðið. |
||
|
||
6. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2015 - 2015020078 |
|
Lögð er fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um undirbúning að gerð þjóðhagsáætlana til langs tíma, 344. mál. |
||
Tillagan að þingsályktuninni lögð fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum - 2015050017 |
|
Lögð er fram fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem haldinn var 16. apríl sl. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 13 - 1504019F |
|
Fundargerð 13. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar haldinn 7. maí sl., fundargerðin er í 2 liðum. |
||
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:45
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
Jónas Þór Birgisson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |