Bæjarráð - 863. fundur - 17. nóvember 2014
Dagskrá:
1. |
2014100021 - Verkefni sem vísað er til bæjarstjóra af bæjarráði og bæjarstjórn |
|
Lagður er fram til kynningar listi yfir verkefni bæjarráðs. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
2. |
2011110063 - Stefna vegna skiptingar lands í Neðri Breiðadal. |
|
Lögð fram stefna, er lögð verður fram í Héraðsdómi Vestfjarða 19. nóvember nk., vegna skiptingar lands í Neðri Breiðadal. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
2014110014 - Laugar í Súgandafirði - vatnsréttindi |
|
Lögð fram stefna, er lögð var fram í Héraðsdómi Vestfjarða 5. nóvember sl., vegna vatnsréttinda á jörðinni Laugum í Súgandafirði. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
2014110013 - Ósk um afnot af snjóbíl í eigu Ísafjarðarbæjar |
|
Lagt fram bréf Ólafs S. Kristjánssonar, f.h. Björgunarfélags Ísafjarðar, dagsett 2. nóvember sl., þar sem óskað er eftir afnotum af snjóbíl í eigu Ísafjarðarbæjar. |
||
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið, með því skilyrði að hann sé til staðar þegar þörf er fyrir hann á Þingeyri. Bæjarráð óskar þó eftir umsögn Íbúasamtakanna Átak áður en ákvörðun er tekin. |
||
|
||
5. |
2013090050 - Innanríkisráðuneyti - Ýmis erindi 2013/2014 |
|
Lagt er fram bréf Hermanns Sæmundssonar og Eiríks Benónýssonar, f.h. Innanríkisráðuneytisins, dags. 10. nóvember sl., um skil á fjárhagsáætlun áranna 2015-2018. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
6. |
2014110022 - Söngkeppni framhaldsskólanna - styrkbeiðni |
|
Lagt fram bréf Ísaks Emanúels Róbertssonar og Þóris Karlssonar, f.h. nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði, dagsett 6. nóvember sl., þar sem óskað er eftir styrk vegna söngkeppni framhaldsskólanna. |
||
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara í samræmi við umræður á fundinum. |
||
|
||
7. |
2014110029 - Störf fyrir atvinnuleitendur með skerta starfsgetu - samstarfsverkefni VMST ÖBÍ og Þroskahjálpar |
|
Lagt fram bréf Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, dagsett 10. nóvember sl., og varðar samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar, Öryrkjabandalags Íslands og Þroskahjálpar sem miðar að því að skapa störf fyrir atvinnuleitendur með skerta starfsgetu. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálanefndar. |
||
|
||
8. |
2013120028 - Úthlutunarlíkan og samstarfssamningur |
|
Lagt fram minnisblað Margrétar Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs varðandi greiðslur til LRÓ. |
||
Bæjarráð staðfestir að greitt verði samkvæmt skilagreinum frá LRÓ. Greiðslur miðast við samsetningu launa starfsmanna LRÓ og nemendafjölda. |
||
|
||
9. |
2014110033 - Hámarkshraði í Pollgötu og Krók |
|
Lagður fram tölvupóstur Daníels Jakobssonar, þar sem hann leggur til að skipulags- og mannvirkjanefnd skoði kosti og galla þess að hækka hámarkshraða í Pollgötu og Krók í allt að 50 km/klst. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
10. |
2014110037 - 10 ára afmæli Snjóflóðaseturs Veðurstofu Íslands |
|
Bæjarráð þakkar boðið og hvetur bæjarfulltrúa til að mæta. |
||
|
||
11. |
2014020082 - Grenjavinnsla 2014 |
|
Nefnd um umhverfis- og framkvæmdamál vísar bókun sinni til bæjarráðs. |
||
Bæjarráð tekur undir bókun umhverfis- og framkvæmdanefndar og neitar að semja við ríkið á þeim forsendum sem gengið er út frá, þar sem framlag ríkisins hefur á fáum árum lækkað úr 50% niður í 10% en það hlutfall telur bæjarráð algjörlega óviðunandi. |
||
|
||
12. |
2014060094 - Áheyrnarfulltrúar framsóknarflokks í nefndum |
|
Lagt er fram minnisblað Gísla Halldórs Halldórssonar, dags. 13. nóvember sl., vegna greiðslna til áheyrnarfulltrúa í nefndum. |
||
Bæjarráð frestar málinu. |
||
|
||
13. |
2014110008 - Kjarasamningaviðræður við tónlistarkennara |
|
Lögð eru fram til kynningar eftirfarandi bréf: |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
14. |
2014110026 - Endurskoðun laga um lögheimili, 33. mál - tillaga til þingsályktunar |
|
Lagður fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur 10. nóvember sl., þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili. |
||
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til félagsmálanefndar. |
||
|
||
15. |
2014110034 - Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, 305. mál - umsagnarbeiðni |
|
Lagður fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur 12. nóvember sl., þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum. |
||
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
16. |
2014110035 - Lagning raflína, 321. mál, tillaga til þingsályktunar - umsagnarbeiðni |
|
Lagður fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur 12. nóvember sl., þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda í lagningu raflína. |
||
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
17. |
2014110036 - Frumvarp til breytinga á vegalögum |
|
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 13. nóvember sl., og frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, dagsettur 14. nóvember sl., og varða breytingu á vegalögum. |
||
Bæjarráð vísar beiðninni um umsögn til skipulags- og mannvirkjanefndar. |
||
|
||
18. |
1411006F - Atvinnumálanefnd 13/11. |
|
Lagt fram til kynningar. |
||
18.1. |
2012110034 - Endurskoðun erindisbréfa |
|
Á 122. fundi atvinnumálanefndar var samþykkt að eðlilegt væri að menningarmál færu undir atvinnumálanend, en taldi um leið rétt að nefndin héti atvinnu- og menningarmálanefnd. Atvinnumálanefnd leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi erindisbréf nefndarinnar verði samþykkt. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu atvinnumálanefndar. |
||
|
||
|
||
19. |
1411011F - Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum 13/11. |
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
20. |
1411002F - Fræðslunefnd 6/11. |
|
Lagt fram til kynningar. |
||
20.1. |
2012110034 - Endurskoðun erindisbréfa |
|
Á 350. fundi fræðslunefndar samþykkti fræðslunefnd erindisbréf nefndarinnar með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum. Erindisbréfið verður lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar. |
||
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu fræðslunefndar. |
||
|
||
21. |
1411010F - Hafnarstjórn 11/11. |
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
22. |
1410006F - Nefnd um umhverfis- og framkvæmdamál 6/11. |
|
Lagt fram til kynningar. |
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:10
Arna Lára Jónsdóttir.
Kristján Andri Guðjónsson.
Daníel Jakobsson.
Marzellíus Sveinbjörnsson.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.
Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari..