Bæjarráð - 860. fundur - 3. nóvember 2014
Dagskrá:
1. |
2014100021 - Verkefni sem vísað er til bæjarstjóra af bæjarráði og bæjarstjórn |
|
Lagður er fram verkefnalisti bæjarstjóra. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
2. |
2014080027 - Fjárhagsáætlun 2015 |
|
Lögð fram vinnuskjöl frá Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra, vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
2014020058 - Fjármál Ísafjarðarbæjar, fyrirspurn frá bæjarfulltrúa |
|
Lögð fram fyrirspurn Jónasar Þórs Birgissonar, dagsett 31. október sl., um þróun gjalda 2014 miðað við fjárhagsáætlun. Fyrir fundinum liggur einnig samantekt Eddu Maríu Hagalín, fjármálastjóra. |
||
Samantekt fjármálastjóra lögð fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
2014090033 - Byggðakvóti fiskveiðiárið 2014/2015 |
|
Umræður um úthlutun byggðakvóta. |
||
|
||
5. |
2014080027 - Tillaga bæjarfulltrúa framsóknarflokks |
|
Lögð er fram áskorun Marzellíusar Sveinbjörnssonar, bæjarfulltrúa framsóknarmanna, dagsett 31. október sl., þar sem lagt er til að skipaður verði starfshópur til að kanna möguleika á samrekstri slökkviliðs, áhaldahúss og daglegrar umsýslu hafnarmannvirkja. |
||
Bæjarstjóri vill geta þess í, tilefni af tillögu fulltrúa framsóknarmanna, að hann hefur að undanförnu haft til skoðunar ýmsa möguleika í samstarfi áhaldahúss og slökkviliðs, en einnig mögulegan samrekstur með nágrannasveitarfélögum. Bæjarstjóri tekur undir með fulltrúa framsóknarflokks og er þess fullviss að ná megi fram auknu hagræði. Öll slík úrræði ættu að rúmast innan fjárhagsáætlunar en nákvæmar útfærslur þurfa að vinnast í nánu samráði við starfsmenn. Slíku verki og útfærslu þess verður því ekki lokið á skömmum tíma í aðdraganda fjárhagsáætlunar. |
||
|
||
6. |
2014100070 - Uppbyggingaráætlun gönguskíðasvæðis |
|
Lagt fram bréf Skíðafélags Ísafjarðar, dagsett 30. október sl., þar sem óskað er eftir viðræðum við fulltrúa Ísafjarðarbæjar vegna uppbyggingar gönguskíðasvæðis. |
||
Lagt fram til kynningar og vísað til Héraðssambands Vestfirðinga til umsagnar. |
||
|
||
7. |
2014090031 - Aðalgata, Suðureyri, akstursstefna |
|
Lagt fram bréf Klofnings ehf., dagsett 20. október sl., vegna gámaflutninga um Aðalgötu á Suðureyri. |
||
Bæjarráð hafnar erindinu, en felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um aðrar mögulegar lausnir. |
||
|
||
8. |
2014100066 - Verndar- og stjórnunaráætlun fyrir náttúruvættið Dynjanda í Arnarfirði |
|
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar, dagsett 27. október sl., þar sem óskað er eftir að Ísafjarðarbær tilnefni fulltrúa í samstarfsnefnd um gerð verndar- og stjórnunaráætlunar fyrir náttúruvættið Dynjanda í Arnarfirði. |
||
Bæjarráð vísar erindinu til nefndar um umhverfis- og framkvæmdamál. |
||
|
||
9. |
2014020027 - Styrktarsjóður EBÍ 2014 |
|
Lagt fram bréf Eignarhaldsf. Brunabótaf. Íslands, dagsett 24. október sl., vegna ágóðahlutagreiðslu 2014. Hlutur Ísafjarðarbæjar á árinu verður 2.410.000 kr. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
|
|
10. |
2014090008 - Áætlun framlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir árið 2015 |
|
Lagður fram tölvupóstur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dagsettur 29. október sl., þar sem upplýst er að áætlanir um framlög til sveitarfélaga hafa verið birtar á heimasíðu sjóðsins. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
11. |
2014060089 - Nýsköpunarráðstefna og nýsköpunarverðlaun í opinberri stjórnsýslu |
|
Lagður fram tölvupóstur fjármála- og efnahagsráðuneytis, dagsettur 29. október sl., vegna nýsköpunarráðstefnu 2014. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
12. |
2014010071 - Málþing um stöðu innflytjenda |
|
Lagður fram tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 28. október sl., um málþing um stöðu innflytjenda í sveitarfélögum, sem haldið verður í Reykjanesbæ 14. nóvember nk. |
||
Lagt fram til kynningar og vísað til félagsmálanefndar. |
||
|
||
13. |
1410012F - Félagsmálanefnd 28/10. |
|
Lagt fram til kynningar |
||
13.1. |
2010050008 - Jafnréttisáætlun og jafnlaunakönnun |
|
Niðurstöður jafnlaunakönnunar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
14. |
1410009F - Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu 27/10. |
|
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
15. |
2011030002 - Hverfisráð Eyrar og efri bæjar. |
|
Lögð fram til kynningar fundargerð hverfisráðs Eyrar og efri bæjar frá 21. október sl. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:20
Arna Lára Jónsdóttir |
|
Kristján Andri Guðjónsson |
Jónas Þór Birgisson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Hjördís Þráinsdóttir |
|
|
|