Atvinnu- og menningarmálanefnd - 135. fundur - 14. desember 2016
Dagskrá:
1. |
Tendrun jólaljósa í Ísafjarðarbæ - 2015100010 |
|
Umræður um mögulegar breytingar á tendrun jólaljósa í Ísafjarðarbæ. |
||
Í ljósi umræðna á fundinum taldi atvinnu- og menningarmálanefnd rétt að áherslan eigi að vera á barnaskemmtun við tendrun jólaljósa í sveitarfélaginu. Upplýsingafulltrúa falið að vinna eftir því við næstu tendrun. |
||
|
||
Gestir |
||
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, upplýsingafulltrúi - 15:00 |
||
|
||
|
||
2. |
Stefnumótun um Vestfirsk ferðamál 2016-2020 - 2016110014 |
|
Á 953. fundi bæjarráðs var lagður fram tölvupóstur Magneu Garðarsdóttur, verkefnastjóra stefnumótunarvinnu fyrir ferðamál á Vestfjörðum, dagsettur 10. nóvember sl., þar sem óskað var eftir því að Ísafjarðarbær tæki til umfjöllunar stefnumótun vestfirskrar ferðaþjónustu 2016-2020. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar vinnunni sem hefur verið lögð í stefnumótunina og leggur til við bæjarráð að unnið verði eftir stefnunni og að þeim verkefnum er að sveitarfélaginu lúta. Nefndin telur vert að skoða sérstaklega merkingar og upplýsingaskilti í sveitarfélaginu. |
||
|
||
3. |
Virðisaukinn - 2013110016 |
|
Atvinnu- og menningarmálanefnd ákveði hver hljóti virðisaukann árið 2016. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd ákvað útnefningu virðisaukans árið 2016. Nefndin leggur til við bæjarráð að afhending Virðisaukans fari fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi Ísafjarðarbæjar 2017. |
||
|
|
|
4. |
Verkefni atvinnu- og menningarmálanefndar - 2014110025 |
|
Almennt um verkefni atvinnu- og menningarmálanefndar. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd fór yfir atvinnumálastefnu Ísafjarðarbæjar sem útgefin var 2014 og skoðaði verkefni henni tengd. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:37
Inga María Guðmundsdóttir |
|
Björn Davíðsson |
Bryndís Ásta Birgisdóttir |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |