Atvinnu- og menningarmálanefnd - 133. fundur - 9. júní 2016
Dagskrá:
1. |
Atvinnuástand á Flateyri - 2011070075 |
|
Lögð er fram tillaga Shirans Þórissonar, f.h. Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, um styrk á grundvelli atvinnuþróunarsamnings í verkefni á Flateyri. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til við bæjarráð að tillaga Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða verði veittar kr. 1.200.000,- af framlagi samnings milli Ísafjarðarbæjar og Atvest um atvinnuþróunarverkefni verði samþykkt. |
||
|
||
Gestir |
||
Shiran Þórisson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða - 15:07 |
||
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, upplýsingafulltrúi - 15:00 |
||
|
||
2. |
Þátttaka Ísafjarðarbæjar í Menningarnótt í Reykjavík 2016 - 2016060019 |
|
Fjallað er um þátttöku Ísafjarðarbæjar í Menningarnótt Reykjavíkur 2016 í tilefni af 150 ára kaupstaðarafmæli Ísafjarðarbæjar. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur starfsmanni nefndarinnar að vinna að kostnaðaráætlun fyrir viðburðinn. |
||
|
||
|
||
3. |
17. júní 2016 - 2015100011 |
|
Umræður um hátíðarhöld 17. júní 2016, fjallkonu og ræðumann hátíðarræðu. |
||
Umræður fóru fram um 17. júní 2016 og lögð lokahönd á dagskrá hátíðarinnar á Ísafirði. |
||
|
||
|
||
4. |
Fjórðungssamband Vestfirðinga - ýmis mál og fundargerðir 2016/2017 - 2016020005 |
|
Bæjarráð vísar erindi Aðalsteins Óskarssonar, f.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga, dags. 24. maí sl., um umsögn um tillögu að gerð svæðisáætlunar fyrir Vestfirði, til umfjöllunar í atvinnu- og menningarmálanefnd. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd telur að um góða greiningu á núverandi ástandi sé að ræða og línur lagðar fyrir næstu skref, nefndin leggur áherslu á að markmiðin séu skýr og mælanleg. Enn fremur leggur atvinnu- og menningarmálanefnd til að sveitarfélögin sameinist um þau markmið að öryggi á strandveiðum verði bætt, sveitarfélögin fái hlutdeild af veiðigjaldi og að stefna í fjarskiptamálum verði efld. |
||
|
||
5. |
LÚR-festival 2016, óskað eftir styrk - 2016060010 |
|
Lagður er fram tölvupóstur Ólafar Dómhildar Jóhannsdóttur, f.h. skipulagshóps LÚR-festival 2016, frá 3. júní sl. þar sem óskað er eftir styrk til skipulagningar og frágangs hátíðarinnar í júní-júlí. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd telur sig ekki hafa fjármuni til ráðstöfunar og vísar erindinu því til bæjarráðs. |
||
|
||
6. |
Bæjarlistamaður 2016 - 2016040065 |
|
Lögð eru fram drög að rökstuðningi fyrir bæjarlistamann Ísafjarðarbæjar 2016. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur starfsmanni nefndarinnar að lagfæra textann og hafa samband við þann sem hlýtur titilinn bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar 2016. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30
Inga María Guðmundsdóttir |
|
Björn Davíðsson |
Bryndís Ásta Birgisdóttir |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |