Bæjarstjórn
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
Fjarverandi aðalfulltrúar eru Nanný Arna Guðmundsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir, í þeirra stað sitja Gunnar Jónsson og Magnús Þór Bjarnason.
1.Byggðakvóti fiskveiðiárið 2015/2016 - 2015090027
905. fundur bæjarráðs leggur eftirfarandi tillögur til við bæjarstjórn að breytingum á reglugerð um úthlutun byggðakvóta í Ísafjarðarbæ fiskveiðiárið 2015/2016:
-
30% verði skipt jafnt, þó ekki meira en viðkomandi landaði á fyrra fiskveiðiári, undanskildir eru frístundabátar.
-
landa megi hvar sem er í sveitarfélaginu til vinnslu í viðkomandi byggðalagi.
-
frístundabátar fá 1,0 tonn per bát.
-
a-liður og b-liður verði áfram eins og á síðasta fiskveiðiári. (Um er að ræða í a-lið ákvæði um frístundabáta og í b-lið um lögheimili í sveitarfélagi þess sem rekur útgerð í byggðalagi)

Til máls tóku: Kristján Andri Guðjónsson, forseti og Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 8-0.
Einn situr hjá við atkvæðagreiðsluna.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 8-0.
Einn situr hjá við atkvæðagreiðsluna.
2.Dagverðardalur 16 - stofnun lóðar - 2015100033
Tillaga 444. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar um tillögu að lóðamörkum fyrir nýja frístundahúsalóð Dagverðardal 16, verði samþykkt og stofnuð. Lóðin verði í samræmi við tillögu sem samþykkt var á 397. fundi umhverfisnefndar þar sem lóðin bar heitið Dagverðardalur 11.
Til máls tóku: Kristján Andri Guðjónsson, forseti, Sigurður Jón Hreinsson og Marzellíus Sveinbjörnsson.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
3.Þingeyri - deiliskipulag - 2009120009
Tillaga 444. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar varðandi birtingu auglýsingar um deiliskipulag á Þingeyri. Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að athugasemdir Skipulagsstofnunar og viðbrögð við þeim hafi ekki efnisleg áhrif á viðkomandi deiliskipulagstillögu og breytingarnar séu óverulegar. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir heimild Skipulagsstofnunar til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Til máls tóku: Kristján Andri Guðjónsson, forseti og Sigurður Jón Hreinsson.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
4.Deiliskipulag á Suðurtanga, Ísafirði - 2011020059
Tillaga 444. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar varðandi deiliskipulag á Suðurtanga, Ísafirði. Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að athugasemdir Skipulagsstofnunar og viðbrögð við þeim hafi ekki efnisleg áhrif á viðkomandi deiliskipulagstillögur og breytingarnar séu óverulegar. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að óskað verði eftir heimild Skipulagsstofnunar til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Til máls tóku: Kristján Andri Guðjónsson, forseti, Daníel Jakobsson og Sigurður Jón Hreinsson.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 6-0.
Þrír sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 6-0.
Þrír sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
5.Suðureyri - óveruleg breyting á aðalskipulagi - 2015100006
Tillaga 444. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar vegna óverulegra breytinga á aðalskipulagi Suðureyrar. Skipulags- og mannvirkjanefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og að farið verði með aðalskipulagsbreytinguna skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem einungis er um fjölbreyttari landnotkun að ræða.
Til máls tóku: Kristján Andri Guðjónsson, forseti og Sigurður Jón Hreinsson.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.
6.Tjaldsvæði í Ísafjarðarbæ 2016 - 2015080043
Tillaga 21. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar varðandi erindi rekstur á salernum við Dynjanda í Arnarfirði. Þar sem Ísafjarðarbær fer aðeins með skipulagsvald á svæðinu þá telur nefndin sig ekki hafa ákvörðunarvald og leggur til við bæjarstjórn að hún svari erindinu og bendi á að eigandi landsins er Rarik og umsjón með náttúruvættinu Dynjanda er hjá Umhverfisstofnun
Til máls tóku: Kristján Andri Guðjónsson, forseti, Daníel Jakobsson, Sigurður Jón Hreinsson, Kristín Hálfdánsdóttir, Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri og Gunnar Jónsson.
Forseti leggur fram eftirfarandi breytingartillögu við tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar:
"Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar ályktar að sveitarfélagið mun ekki taka þátt í rekstri salerna eða annarrar aðstöðu við náttúruvættið Dynjanda í Arnarfirði."
Bæjarstjóri leggur til eftirfarandi tillögu að breytingum á breytingartillögunni:
"Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar ályktar að sveitarfélagið mun ekki taka þátt í rekstri salerna eða annarrar aðstöðu við náttúruvættið Dynjanda í Arnarfirði, að svo komnu máli. Engu að síður er brýnt að málið verði leyst með einhverjum hætti sem fyrst."
Forseti ber tillögu bæjarstjóra að breytingum á breytingartillögunni upp til atkvæða.

7.Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048
Lögð verða fram frumdrög að rekstraráætlun Ísafjarðarbæjar 2016 til umræðu.
Til máls tóku: Kristján Andri Guðjónsson, forseti, Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri og Daníel Jakobsson.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, fór yfir undirbúning fjárhagsáætlunar og frumdrög að rekstrarreikningi fjárhagsáætlunar.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, fór yfir undirbúning fjárhagsáætlunar og frumdrög að rekstrarreikningi fjárhagsáætlunar.
8.Innkaupareglur Ísafjarðarbæjar - endurskoðun 2014/2015 - 2014050024
Tillaga 905. fundar bæjarráðs um breytingar á innkaupareglum Ísafjarðarbæjar. Bæjarráð samþykkti fyrir sína parta framlagðar tillögur, með þeirri breytingu að öll innkaup á verkum yfir kr. 20.000.000,- skuli bjóða út. Tillagan er lögð fram til samþykktar bæjarstjórnar.
Til máls tóku: Kristján Andri Guðjónsson, forseti, Jónas Þór Birgisson, Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri og Daníel Jakobsson.
Daníel Jakobsson leggur til að innkaupareglum Ísafjarðarbæjar verði breytt með þeim hætti að öll innkaup, bæði á vörum, þjónustu og verkum verði að fjárhæð kr. 12.000.000,- og að fjárhæðum í 1. mgr. 4. gr. verði breytt til samræmis.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, leggur til að málinu verði vísað aftur til bæjarráðs.
Forseti ber frávísunartillögu bæjarstjóra upp til atkvæða.
Tillagan felld 5-4.
Forseti ber breytingartillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 5-4.

9.Bæjarráð - 904 - 1510018F
Fundargerð 904. fundar bæjarráðs sem haldinn var 26. október sl., fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tók: Kristján Andri Guðjónsson, forseti.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
10.Bæjarráð - 905 - 1510022F
Fundargerð 905. fundar bæjarráðs sem haldinn var 2. nóvember sl., fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Kristján Andri Guðjónsson, forseti.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
11.Félagsmálanefnd - 402 - 1510020F
Fundargerð 402. fundar félagsmálanefndar sem haldinn var 29. október sl., fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tók: Kristján Andri Guðjónsson, forseti.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
12.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 21 - 1510016F
Fundargerð 21. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem haldinn var 27. október sl., fundargerðin er í 3 liðum.
Til máls tók: Kristján Andri Guðjónsson, forseti.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
13.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 444 - 1510006F
Fundargerð 444. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 21. október sl., fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tók: Kristján Andri Guðjónsson, forseti.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:07.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?