Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
544. fundur 19. desember 2024 kl. 17:00 - 17:48 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir varaformaður
  • Magnús Einar Magnússon forseti
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Kristín Björk Jóhannsdóttir varamaður
  • Guðmundur Ólafsson varamaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir staðgengill bæjarstjóra
  • Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Fundargerð ritaði: Arndís Dögg Jónsdóttir Skjalastjóri
Dagskrá

1.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - 2024040018

Tillaga frá 1307. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 16. desember 2024, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 18 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2024, vegna hækkana á kjarasamningum við KÍ, en breytingarnar tóku gildi afturvirkt frá 1. júní 2024.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0,-.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og er því rekstrarafgangur óbreyttur 185.800.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og er því rekstrarafgangur óbreyttur í kr. 738.700.000
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Kristján Þór Kristjánsson og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Undanþágur verkfallsheimilda 2024 - 2024110045

Tillaga frá 1307. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 16. desember 2024, um að bæjarstjórn samþykki lista yfir þá starfsmenn sem ekki hafa verkfallsheimild með tilvísun til laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og 2. gr. laga nr. 129/2020, um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Endurskoðun - Reglur um fjárhagsaðstoð í Ísafjarðarbæ. - 2024030106

Tillaga frá 483. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 10. desember 2024, um að bæjarstjórn samþykki reglur um fjárhagsaðstoð í Ísafjarðarbæ.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Mótttaka flóttamanna 2024 - 2024010067

Tillaga frá 483. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 10. desember 2024, um að bæjarstjórn samþykki annan viðauka við þjónustusamning milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Ísfjarðarbæjar um samræmda móttöku flóttafólks sem var undirritaður 4. apríl 2024, en um er að ræða viðbót við 6. gr. samningsins.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Brekka í Dýrafirði, skógrækt. Umsókn um framkvæmdaleyfi - 2024110142

Tillaga frá 643. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. desember 2024, um að bæjarstjórn samþykki að afturkalla framkvæmdaleyfi til landeiganda Brekku í Dýrafirði, en heimild var veitt á 543. fundi bæjarstjórnar þann 5. desember 2024. Þá skuli skipulags- og mannvirkjanefnd endurupptaka málið og veita upplýsingar til umsækjanda um tilkynna fyrirhugaða framkvæmd til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu, þar sem um er að ræða nýræktun skóga á verndarsvæðum, sem er óháð umfangi, þ.e. framkvæmdir sem eru að umfangi undir viðmiðunarmörkum í flokki B en fyrirhugaðar á verndarsvæði, sbr. iii. lið 2. tölul. 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Jóhann Birkir Helgason, og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Jóhann Birkir Helgason ber upp eftirfarandi breytingartillögu: "Xd leggur fram breytingartillögu við tillögu Skipulags- og mannvirkjanefnd um að afturkalla ekki framkvæmdaleyfið til skógræktar á þeim forsendum að svæðið er á landbúnaðarsvæði og á Náttúruminjaskrá segir:"Skaginn milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, Þingeyrarhreppi, V-Ísafjarðarsýslu. (1) Allur skaginn utan ræktaðs lands og þéttbýlis". Svæðið er á ræktuðu landi."

Forseti bæjarstjórnar gerði fundarhlé kl: 17:15.
Fundi fram haldið kl: 17:30.

Forseti bar breytingatillöguna upp til atkvæða.

Tillögunni hafnað 5-2
Samþykkir: Jóhann Birkir Helgason, Steinunn Guðný Einarsdóttir
Hafnað: Kristín Björk Jóhannsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Nanný Arna Guðmundsson, Gylfi Ólafsson og Magnús Einar Magnússon.
Sitja hjá: Kristján Þór Kristjánsson og Elísabet Samúelsdóttir

Forseti bar upphaflega tillögu upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 7-0.
Steinunn Guðný Einarsdóttir og Jóhann Birkir Helgason sátu hjá.

6.Eyrargata 3, Ísafirði. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2024120018

Tillaga frá 643. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. desember 2024, um að bæjarstjórn samþykki lóðarleigusamning við Eyrargötu 3 á Ísafirði.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Gatnagerð á Þingeyri, fráveitulögn og tenging hreinsistöðvar - 2024050044

Tillaga frá 643. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. desember 2024, um að bæjarstjórn samþykki að heimila stofnun lóðar undir hreinsistöð á Þingeyri við Hafnarstræti 26.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Bæjarráð - 1306 - 2412008F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1306. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 9. desember 2024.

Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

9.Bæjarráð - 1307 - 2412014F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1307. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 16. desember 2024.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

10.Hafnarstjórn - 257 - 2412013F

Lögð fram til kynningar fundargerð 257. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 17. desember 2024.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tóku: Magnús Einar Magnússon, forseti, Kristján Þór Kristjánsson, Gylfi Ólafsson, Magnús Einar Magnússon og Jóhann Birkir Helgason.

Lagt fram til kynningar.

11.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 643 - 2412001F

Lögð fram til kynningar fundargerð 643. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 12. desember 2024.

Fundargerðin er í 12 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

12.Velferðarnefnd - 483 - 2412007F

Lögð fram til kynningar fundargerð 483. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 10. desember 2024.

Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Magnús Einar Magnússon, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:48.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?