Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
542. fundur 21. nóvember 2024 kl. 17:00 - 17:57 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Sædís Ólöf Þórsdóttir varamaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Finney Rakel Árnadóttir varamaður
Starfsmenn
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir staðgengill bæjarstjóra
  • Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Fundargerð ritaði: Arndís Dögg Jónsdóttir skjalastjóri
Dagskrá

1.Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - 2022050136

Tillaga forseta bæjarstjórnar um breytingar á dagsetningum funda í apríl og maí vegna lagafrests um samþykkt ársreiknings 2024. Nýjar tímasetningar verði miðvikudaginn 16. apríl (nýr fundatími vegna páska), miðvikudaginn 30. apríl (í stað þriðjudagsins 29. apríl) og fimmtudaginn 15. maí (í stað funda 8. og 22. maí).
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Frístundastyrkir - 2024110087

Tillaga frá 1303. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki að kr. 10.000.000 verði eyrnamerktar verkefni um frístundastyrk á árinu 2025 og að fjárhæðin verði hluti af fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2025.

Jafnframt tillaga um að bæjarstjórn samþykki að vísa gerð reglna og verklags um úthlutun frístundastyrkja Ísafjarðarbæjar til skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Kristján Þór Kristjánsson, Gylfi Ólafsson og Steinunn Guðný Einarsdóttir.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - 17 Stofnframlög Brákar - 2024040018

Tillaga frá 1303. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki endurmat á 12% stofnframlagi sveitarfélagsins, og þar með viðauka 17 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar vegna aukins stofnframlags í verkefnum tengdum sölu á íbúðum á Suðureyri og Þingeyri til Brákar.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0,-.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og er því rekstrarafgangur óbreyttur 185.800.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og er því rekstrarafgangur óbreyttur í kr. 738.700.000
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - 16 Alþingiskosningar - 2024040018

Tillaga frá 1302. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 16 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2024, vegna Alþingiskosninga 2024.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er aukinn kostnaður um kr. 2.633.390

Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er lækkun hagnaðar um kr. 2.633.390, og lækkar rekstrarafgangur því úr kr. 187.100.000 og verður kr. 184.466.610.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er lækkun hagnaðar um kr. 2.633.390 og lækkar rekstrarafgangur því úr kr. 740.000.000 og verður kr. 737.366.610.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - 14 Velferðarþjónusta Vestfjarða - 2024040018

Tillaga frá 1302. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 14 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2024, vegna Velferðarþjónustu Vestfjarða, n.t. vegna skammtímadvalar á Reykhólum og stuðningsþjónustu innan heimilis.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma i kr. 187.100.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 740.000.000,-
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Þjónustukjarni á Þingeyri - Blábanki - 2015100017

Tillaga frá 1302. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjun á þjónustusamningi Blábankans, samfélagsmiðstöðvar á Þingeyri við Ísafjarðarbæ, til áranna 2025-2027.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Sædís Ólöf Þórsdóttir.

Sædís vék af fundi kl 17:14 og kom aftur til fundar 17:15.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 8-0.

7.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024 - 15 þjónustubifreið Hafnasjóðs - 2024040018

Tillaga frá 256. fundi hafnarstjórnar, sem haldinn var þann 5. október 2024, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 15 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2024, vegna kaupa á nýjum þjónustubíl fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar.

Áhrif viðaukans á sveitasjóð A-hluta eru kr. 0 og rekstrarafgangur því óbreyttur í kr. 187.100.000.
Áhrif viðaukans á samantekinn A- og B-hluta eru kr. 0 og er rekstrarafgangur óbreyttur í kr. 740.000.000.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Tunguskeið, Skutulsfirði. Nýtt deiliskipulag á svæði í2 - 2024090115

Tillaga frá 641. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 14. nóvember 2024, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Jóhann Birkir Helgason og Gylfi Ólafsson.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Úrgangsstjórnun og svæðisáætlun - 2022090018

Tillaga frá 641. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 14. nóvember 2024, og frá 152. fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 7. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum 2024-2035.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson og Jóhann Birkir Helgason.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Efnisnáma Mýrum í Dýrafirði. Ósk um aðalskipulagsbreytingu, Kýrá - 2024100090

Tillaga frá 641. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 14. nóvember 2024, um að bæjarstjórn heimili breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna efnistökusvæðis við Kýrá nr. 22694, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Reglur um útgáfu stöðuleyfa - 2022070024

Tillaga frá 641. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 14. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki uppfærðar reglur um stöðuleyfi.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Jóhann Birkir Helgason og Bryndís Ósk Jónsdóttir, staðgengill bæjarstjóra.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.Framkvæmdaleyfi. Dagverðardalur, orlofshúsasvæði á F21 - 2024090018

Tillaga frá 641. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 14. nóvember 2024, um að bæjarstjórn heimili útgáfu framkvæmdaleyfis, í samræmi við umsókn og fyrirliggjandi gögn. Aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag var staðfest hjá Skipulagsstofnun 8. nóvember 2024.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Fab lab smiðja í MÍ - beiðni um samstarf - 2023060085

Tillaga frá 12. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd, en fundur var haldinn 6. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki samning um rekstur Fab lab á Ísafirði, en samningurinn gildir til ársloka 2026.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Endurskoðun reglna um ferliþjónustu 2024 - 2024020101

Tillaga frá 482. fundi velferðarnefndar, en fundur var haldinn 12. nóvember 2024, um að bæjarstjórn samþykki nýjar reglur um akstursþjónustu.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

15.Bæjarráð - 1303 - 2411006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1303. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 18. nóvember 2024.

Fundargerðin er í 11 liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Lagt fram til kynningar.

16.Bæjarráð - 1302 - 2410031F

Lögð fram til kynningar fundargerð 1302. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 11. nóvember 2024.

Fundargerðin er í 15 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

17.Hafnarstjórn - 256 - 2410021F

Lögð fram til kynningar fundargerð 256. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 5. nóvember 2024.

Fundargerðin er í 7 liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson og Jóhann Birkir Helgason.

Lagt fram til kynningar.

18.Sameinuð almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps - 41 - 2410016F

Lögð fram til kynningar fundargerð 41. fundar sameinaðrar almannavarnanefndar Ísafjarðarbæjar og Súðavíkurhrepps, en fundur var haldinn 29. október 2024.

Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

19.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 641 - 2410019F

Lögð fram til kynningar fundargerð 641. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 14. nóvember 2024.

Fundargerðin er í 14 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

20.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 12 - 2410029F

Lögð fram til kynningar fundargerð 12. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 6. nóvember 2024.

Fundargerðin er í 8 liðum.
Til máls tóku: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Lagt fram til kynningar.

21.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 152 - 2410026F

Lögð fram til kynningar fundargerð 152. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 7. nóvember 2024.

Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

22.Velferðarnefnd - 482 - 2410025F

Lögð fram til kynningar fundargerð 482. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 12. nóvember 2024.

Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

23.Öldungaráð - 15 - 2409028F

Lögð fram til kynningar fundargerð 15. fundar öldungaráðs, en fundur var haldinn 29. október 2024.

Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:57.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?