Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
535. fundur 06. júní 2024 kl. 17:05 - 17:50 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Gylfi Ólafsson aðalmaður
  • Jóhann Birkir Helgason aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson aðalmaður
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Magnús Einar Magnússon aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir aðalmaður
  • Elísabet Samúelsdóttir aðalmaður
  • Sigríður Júlía Brynleifsdóttir aðalmaður
  • Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Hjördís Þráinsdóttir skjalastjóri
  • Tinna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
  • Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari
  • Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá

1.Sala hjúkrunarheimilisins Eyrar - 2024030137

Tillaga frá 1286. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 3. júní 2024, um að bæjarstjórn samþykki að hefja sölu á fasteigninni Eyri á Ísafirði.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Gylfi Ólafsson, Jóhann Birkir Helgason, Kristján Þór Kristjánsson, Steinunn Guðný Einarsdóttir, Nanný Arna Guðmundsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Fagrihvammur L137997 í Skutulsfirði. Lóðamál - 2024040156

Tillaga frá 1285. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 27. maí 2024, um að bæjarstjórn samþykki að falla frá forkaupsrétti að landi og mannvirkjum Fagrahvamms, fnr. 211-8921, í þetta skipti, vegna fyrirhugaðrar sölu þess.

Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Félagsheimili Súgfirðinga - endurbætur - 2018080053

Tillaga frá 1286. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 3. júní 2024, um að bæjarstjórn samþykki niðurrifi viðbyggingarinnar við Félagsheimilið á Suðureyri, með þeim fyrirvara að byggingafulltrúi þurfi jafnframt að gefa leyfi.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Gylfi Ólafssson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Suðurtangi, atvinnustarfssemi. Breyting á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - 2023110129

Tillaga frá 631. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 30. maí 2024, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í því felst að tillagan er auglýst með áberandi hætti, svo sem í dagblaði sem gefið er út á landsvísu og lögbirtingarblaði og öðrum miðlum sveitarfélagsins og í gegnum skipulagsgátt.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Æðartangi 2, 400. Umsókn um stækkun lóðar vegna aðkomu - 2023100066

Tillaga frá 631. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 30. maí 2024, um að bæjarstjórn heimili stækkun lóðarinnar Æðartanga 2, á Ísafirði, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og framlögð gögn.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

6.Ósk um breytingu á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-20, svæði Í9. Dagverðardalur, orlofshúsabyggð - 2021060044

Tillaga frá 631. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 30. maí 2024, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 31 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila.


Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

7.Dagverðardalur, frístundahúsasvæði. Nýtt deiliskipulag - 2023100068

Tillaga frá 631. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 30. maí 2024, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð á greinargerð og uppdrætti, vegna deiliskipulagstillögu við Dagverðardal, Skutulsfirði, á svæði F21, dags. í maí 2024, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

8.Ból Ísafjarðarbæ. Nýtt deiliskipulag - 2022110039

Tillaga frá 631. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 30. maí 2024, um að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag, skv. uppfærðum uppdrætti og greinargerð, unnin af M11 arkitektum dags. 23. maí 2024, þar sem brugðist hefur við athugasemdum Skipulagsstofnunar dags. 4. apríl 2024, sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda telur nefndin að áorðnar breytingar séu ekki þess eðlis að auglýsa þurfi tillöguna að nýju, þar ekki er um veigamiklar breytingar að ræða.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

9.Fjarðargata 72 á Þingeyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2024050096

Tillaga frá 631. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 30. maí 2024, um að bæjarstjórn samþykki endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Fjarðargötu 72, Þingeyri.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

10.Fjarðargata 35, Þingeyri. Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - 2024050140

Tillaga frá 631. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 30. maí 2024, um að bæjarstjórn samþykki lóðarleigusamning undir Fjarðargötu 35 á Þingeyri, í samræmi við mæliblað tæknideildar dags. 27. maí 2024.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

11.Suðurtangi 18 og 20, Ísafirði. Umsókn um afnot svæðis - 2023100113

Tillaga frá 631. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var 30. maí 2024, um að bæjarstjórn samþykki afnotasamning á Suðurtanga 18 og 20 á Ísafirði.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

12.69. Fjórðungsþing Vestfirðinga - 2024020035

Tillaga frá 1286. fundi bæjarráðs, frá fundi sem haldinn var 3. júní 2024, um að bæjarstjórn kjósi Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarstjóra, sem aðalfulltrúa og Sigríði Júlíu Brynleifsdóttur sem varafulltrúa í kjörnefnd fyrir 69. Fjórðungsþing Vestfirðinga að sumri.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

13.Reglur Ísafjarðarbæjar um netnotkun, meðferð tölvupósts, gagna, tölvu- og hugbúnaðar 2024 - 2024050167

Tillaga frá 1286. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 3. júní 2024, um að bæjarstjórn samþykki reglur Ísafjarðarbæjar um netnotkun, meðferð tölvupósts, gagna, tölvu- og hugbúnaðar, og að fyrri reglur um meðferð á tölvupósti hjá Ísafjarðarbæ frá 2000, verði felldar úr gildi.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

14.Hafnarstjórn - 253 - 2405019F

Lögð fram til kynningar fundargerð 253. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 28. maí 2024.

Fundargerðin er í sjö liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Gylfi Ólafsson.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

15.Menningarmálanefnd - 172 - 2405011F

Lögð fram til kynningar fundargerð 172. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 16. maí 2024.

Fundargerðin er í sex liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti og Jóhann Birkir Helgason.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

16.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 631 - 2405013F

Lögð fram til kynningar 631. fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 30. maí 2024.

Fundargerðin er í 22 liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

17.Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 5 - 2405008F

Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 15. maí 2024.

Fundargerðin er í fimm liðum.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Elísabet Samúelsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

18.Starfshópur um málefni leikskóla - 6 - 2405006F

Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar starfshóps um málefni leikskóla en fundur var haldinn 8. maí 2024.

Fundargerðin er í einum lið.
Til máls tók: Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, forseti, Jóhann Birkir Helgason, Gylfi Ólafsson og Nanný Arna Guðmundsdóttir.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:50.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?