Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Hleðslustöð fyrir rafbíla - gjöf til Ísafjarðarbæjar - 2016110024
Lagður fram tölvupóstur Friðriks Valdimars Árnasonar, f.h. Orkusölunnar ehf, dagsettur 7. nóvember sl. Orkusalan ehf. færði Ísafjarðarbæ að gjöf rafhleðslustöð fyrir bíla, með það að markmiði að stuðla að uppbyggingu innviða, sem auðvelda rafbílavæðingu.
Bæjarráð þakkar gjöfina og felur bæjarstjóra að finna stað fyrir hleðslustöðina og vinna að uppsetningu stöðvarinnar í Ísafjarðarbæ.
2.Fundargerðir heilbrigðisnefndar og ýmis erindi 2016 - 2016020062
Lögð er fram fundargerð 109. fundar Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis frá 4. nóvember sl., ásamt fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlits 2017 og upplýsingum um skiptingu kostnaðar.
Leitað er eftir samþykki Ísafjarðarbæjar á fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2017 og skulu athugasemdir berast fyrir 9. desember n.k.
Leitað er eftir samþykki Ísafjarðarbæjar á fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2017 og skulu athugasemdir berast fyrir 9. desember n.k.
Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða fyrir árið 2017.
3.Þjónustusvæði í málaflokki fatlaðs fólks - 2016020019
Lagt er fram bréf Karls Björnssonar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. október sl., varðandi undanþágur frá íbúafjölda þjónustusvæða í málaflokki fatlaðs fólks.
Lagt fram til kynningar.
4.Bílastæði við golfskála - styrkbeiðni - 2016110029
Lagt fram bréf Kristins Kristjánssonar, formanns Golfklúbbs Ísafjarðar, og Björns Helgasonar, nefndarmanns, dagsett 10. október sl. Í bréfinu er óskað eftir styrk frá Ísafjarðarbæ til malbikunar á bílastæði við golfskálann.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar HSV og bendir á að vert sé að skoða málið í samræmi við uppbyggingasamninga.
5.Kerfisáætlun Landsnets 2014-2023 og 2016-2025 - 2014050071
Lagður fram tölvupóstur frá Landsneti, frá 26. október sl., ásamt svörum við matslýsingu kerfisáætlunar 2016-2025.
Lagt fram til kynningar.
6.Laun grunnskólakennara - krafa frá kennurum til sveitarfélaga - 2016110030
Lagt fram bréf frá grunnskólakennurum á Íslandi, ódagsett og óundirritað, ásamt undirskriftalista. Í bréfinu er þess krafist að sveitarfélög bregðist við því ástandi sem skapast hefur í skólakerfinu vegna rangra áherslna í kjarastefnu sveitarfélaga gagnvart grunnskólakennurum.
Lagt fram til kynningar.
7.Endurskoðun brunavarnaráætlunar - 2014100048
Lagt fram bréf Péturs Valdimarssonar, f.h. Mannvirkjastofnunar, dags. 9. nóvember sl. Óskað er eftir að stofnuninni verði send endurskoðuð brunavarnaáætlun sveitarfélagsins innan þriggja mánaða, þar sem núverandi áætlun er útrunnin.
Lagt fram til kynningar.
8.Stuðningur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við tónlistarnám 2016-2018 - 2016060028
Lagt fram bréf Guðna Geirs Einarssonar og Tinnu Dahl Christiansen, f.h. innanríkisráðherra, dags. 8. nóvember sl. Tilkynnt er að sækja þurfi um framlag, vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags, fyrir 23. nóvember nk.
Lagt fram til kynningar og vísað til sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs.
9.Fatlaðir nemendur í grunnskólum 2017 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - 2016090019
Lagt fram bréf Guðna Geirs Einarssonar og Elínar Gunnarsdóttur f.h. innanríkisráðherra, dags. 8. nóvember sl. Tilkynnt er um áætlað framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2017, sbr. umsókn sveitarfélagsins þar að lútandi.
Lagt fram til kynningar og vísað til sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs.
10.Skólamál á Flateyri - 2016110039
Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, mætir til fundarins.
Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, gerði grein fyrir skólamálum á Flateyri.
Margrét Halldórsdóttir yfirgefur fundinn kl. 9:10.
Gestir
- Margrét Halldórsdóttir, sviðstjóri skóla- og tómstundasviðs - mæting: 08:45
11.Melrakkasetur - aðalfundur 2016 - 2016100053
Lögð fram skýrsla stjórnar Melrakkaseturs Íslands ehf, fyrir starfsárið 2015, ásamt ársreikningi Melrakkasetursins fyrir árið 2015.
Lagt fram til kynningar.
12.Aðalfundur Hvetjanda 2016 - 2016110034
Lagt er fram fundarboð vegna aðalfundar Hvetjanda hf., dags. 9. nóvember sl., sem haldinn verður 16. nóvember n.k., ásamt ársreikningi 2015.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mæta til fundarins fyrir hönd Ísafjarðarbæjar.
13.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, fundargerð - 2016020019
Lagður fram tölvupóstur Vals Rafns Halldórssonar, f.h. Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 20. október sl., ásamt fundargerð ársfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, frá 23. september sl.
Lagt fram til kynningar.
14.Íþrótta- og tómstundanefnd - 173 - 1611006F
Fundargerð 173. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 9. nóvember sl., fundargerðin er í 4 liðum.
Lagt fram til kynningar.
15.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 465 - 1610021F
Fundargerð 465. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 9. nóvember sl., fundargerðin er í 10 liðum.
Lagt fram til kynningar.
- 15.3 2016080019 Ósk um deiliskipulagsbreytingu og hugsanlega Aðalskipulagsbreytingu við afrennslissvæði MjólkárvirkjanaSkipulags- og mannvirkjanefnd - 465 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila að skipulags- og matslýsing verði kynnt opinberlega skv. skipulagslögum 123/2010. Matslýsingin verði tekin til meðferðar í samræmi við VII. og VIII. kafla skipulagslaga nr. 123/2010
-
Skipulags- og mannvirkjanefnd - 465 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að AB Fasteignir. fái lóð inn á Skeiði við Götu B, Ísafirði skv. uppdrætti með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Fundi slitið - kl. 09:15.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?