Bæjarráð
Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
Dagskrá
1.Ósk um íbúðir í Múlalandi 12 - 2014120005
Lögð er fram umsókn HSV um íbúðir í eigu Fasteigna Ísafjarðarbæjar ehf., dags. 9. september sl. auk bréfs Fasteigna Ísafjarðarbæjar til bæjarráðs Ísafjarðarbæjar, dags. 4. desember sl.
Bæjarráð ákveður að fyrirkomulagið skuli vera óbreytt að sinni. Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða verklagsreglur varðandi afhendingu íbúða til HSV og vinna málið áfram í samráði við framkvæmdastjóra HSV.
2.Reglur um auglýsingar starfa - 2014120014
Lagðar eru fram tillögur að reglum um auglýsingu starfa hjá Ísafjarðarbæ.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera þær breytingar á reglunum sem ræddar voru á fundinum.
3.Umsókn um styrk vegna Landsmóts kvennakóra - 2014120015
Lögð er fram umsókn Kvennakórs Ísafjarðar um styrk vegna Landsmóts kvennakóra.
Bæjarráð fagnar því að Landsmót kvennakóra verði haldið á Ísafirði 2017. Bæjarráð felur bæjarstjóra að bóka íþróttahúsið og að vera í sambandi við bréfritara.
4.Byggðasafn Vestfjarða 2014 - 2014080064
Lagt er fram fundarboð á ársfund Byggðasafns Vestfjarða
Bæjarráð hvetur bæjarfulltrúa til að mæta.
5.Lánasjóður - ýmis erindi 2012/2014 - 2012020099
Lagt er fram afrit af lánsbeiðni Ísafjarðarbæjar, dags. 10. desember sl., til Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
Lagt fram til kynningar.
6.Umsókn Hinsegin kórsins um styrk til menningarmála - 2014020060
Lögð er fram umsókn Hinsegin kórsins, dags. 4. nóvember sl., um styrk til menningarmála.
Bæjarráð getur ekki orðið við styrkbeiðninni, en vil gjarnan vera þeim innan handar eftir því sem kostur er.
7.Mánaðaryfirlit 2014 - 2014090065
Lagt er fram mánaðaryfirlit 31.11.2014.
Edda María Hagalín mætir til fundarins undir þessum lið kl. 08:48. Edda María yfirgefur fundinn kl. 09:00.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
8.Fundargerðir umhverfis- og framkvæmdanefndar - 2014080054
7. fundur umhverfis- og framkvæmdanefndar, haldinn 11. desember sl. og er í þremur liðum.
Lögð fram til kynningar.
9.Fundargerðir atvinnu- og menningarmálanefndar - 2014080042
123. fundur atvinnu- og menningamálanefndar haldinn 11. desember sl. og er í 5 liðum.
Lögð fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:05.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?